Fálkinn - 07.06.1930, Qupperneq 10
10
P A L K I N N
SOLINPILLUR
eru framleiddar úr hreinum
jurtaefnum, þær hafa engin
skaðleg áhrif á líkamann, en
góð og styrkjandi áhrif á
meltingarfærin. — Sólinpillur
hreinsa skaðleg efni úr blóð-
inu. Sólinpillur lækna van-
líðar. er stafar af óregluleg-
um liægðum og hægðaleysi.
Notkunarfyrirsögn fylgir
hverri dós.
Verð aðeins kr. 1.25. — Fæst
hjá hjeraðslæknum og
öllum lyfjabúðum.
Þjer standið yður allaf við að
biðja um „Sirius“ súkkulaði
og kakóduft.
2 Gætið vörumerkisins.
VAN HOUTENS
konfekt og átsúkkulaði
er annálað um allan heim
fyrir gæði.
Zebo
ofnlögur
hefir nýlega
fengið mikla
endurbót.
Gefur fagran,
dimman gljáa.
Vátnjggingarfjelagið NYE j
| DANSKE stofnað 186b tekur \
\ að sjer LlFTfíYfíGlNfíAR j
j og RRIJNA TfíYfífílNGAR \
\ allskonar með bestu vá- ■
I trgggingarkjörum.
: Aðalskrifstofa fyrir ísland: j
Sigfús Sighvatsson,
Amtmannsstig 2. j
Léreftstuskur kauplr Herbertsprent.
Fyrir kvenfólkið.
Hvernifl nota má gamla sokka.
Gamlir sokkar eru ekki mikils virði
að okkur finst. Þegar þræðir fara að
rakna upp úr silkisokkunum eru þeir
varla til nokkurs nýtir. Það eru þvi
ekki svo fáir sokkar, sem safnast
fyrir á liverju ári á þennan hátt.
Takið þá til. Það má hekla ljóm-
andi fallega gólfábreiðu úr gömlum
sokkum. Ábreiðan á myndinni er gerð
úr svörtum og gráum ullarsokkum.
Klippið 1 sm. briðar ræmur og teyg-
ið vel á þeim, þá er betra að hekla
úr þeim. Helkla má þær aflangar, fer-
hyrntar eða kringóttar. Tvær hinar
fyrnefndu tegundir eru heklaðar inn-
anfrá. Berjið það vel þegar það er
fullgjört, þá losnið þið við alla lausa
spotta. Gul og grá ábreiða er mjög
falleg. Notið altaf fasta inöskva yst,
þá verður ábreiðan sterkari. Nota má
venjulega grófa stránál.
Ern konuraar fallegastar
i september.
Eigandi einnar þektustu fegrunar-
stofnunarinnar í New York hefir látið
hafa það eftir sjer, að konurnar væru
fallegastar í septembermánuði.
A vetrum segir hún að andlitsdrætt-
irnir harðni af kuldanum. Einkum
sje það i deseinber, janúar og febr-
úar. Á vorin, í mars, apríl og maí
sje húðin óhrein og á sumrin sje hún
of feit og auguii gljáalaus.
Á haustin lifni stúlkurnar við. Þá
sje svo margt, sem þær hlaki til og
eigi í vændum og það liafi þau á-
hrif á útlit þeirra, að þá sjeu þær
miklu fallegri en nokkurntima ann-
ars.
ÓVENJULEG ATVIK.
Julianne Horgos er stúlka ein
nefnd. Er hún ungversk að ætt og
uppruna og fluttist til Budapest fyr-
ir mörgum árum síðan til að leita
gæfunnar. Gerðist hún þjónustustúlka
þar i borginni. Júlíana var fríð sýn-
um, stór og föngulegur kvenmaður.
En sagt er að þeir sem ólíkastir eru
dragist stundum hvað mest saman.
Kinverji var þar einn litill í borg-
inni og fremur óásjálegur. Hafði hann
ofan af fyrir sjer á sama hátt og ýms-
ir af hinum gulu bræðrum hans með
því að selja alskonar austurlenskt
glingur, falskar perlur, glerskraut og
þess háttar.
Dag nokkurn þegar Júliana gekk
um strætið fyrir utan búðarholu Kin-
verjans, festi hann auga á lienni og
varð ástfanginn í stúlkunni þegar i
stað. Leist henni einnig mæta vel á
manninn og þar sem Kínverjinn hafði
talsvert góðar tekjur af verslun sinni
og ekkert var því til fyrirstöðu að
þau gætu gift sig, tóku þau sig til og
ljetu gefa sig saman á kínverska vísu
af borgarlegum embættismanni.
Þetta skeði fyrir 6 árum. Hjóna-
bandið var hið hamingjusamasta. Þau
hjón eignuðust tvö börn saman, og
sóttu bæði börnin í móðurættina,
nema hvað þau voru nokkuð hidekkri
en Ungverjar alment.
Fyrir ári siðan veiktist Li snögg-
lega af bráðatæringu og dó eftir
þriggja vikna legu. Ekkjan sat ein
uppi. Hún hafði lítið sjer til lífsvið-
urværis því verslunin var ekki mikils
virði. Foreldrar hennar, sem áttu
býli uppi í sveit höfðu útskúfað henni
þegar hún gekk að eiga Iíinverjann.
En Júlíana var ekki ein þeirra kvenna
sem gefst upp hvað lítið sem ábjátar.
Hún gerðist aftur þjónustustúlka og
gat með mikilli sparsemi og dugnaði
framfleytt báðum börnum sinum á
þann hátt.
Dag nokkurn datt lienni alt í einu
i hug, að eiginlega ætti hún að til-
kynna tengdaforeldrum sinum i Hong-
kong um dauða sonarins. Bað liún vin
manns sins um að skrifa fyrir sig og
láta þau vita livernig farið hefði.
Nú liðu nokkrir mánuðir og frú Li
var búin að gleyma öllu saman. Þá
vill svo til einn dag að til hennar
kemur dálítill Kínverji. Hann var svo
nauðalíkur manni hennar sáluga, að
henni kom ekki annað í liug en þarna
væri Li sinn afturgenginn. Þetta var
þá mágur hennar, sem búsettur var í
Berlín. Var hann kominn til Buda-
pest í þeim erindagjörðum að gift-
ast henni. í Kína er það nefnilega
æfagömul venja að elsti bróðurinn
giftist ekkju bróður síns, sje liún á
MiiiiiiiiimiiiMimmmiiiim
í IDOZANÍ
tm
S er heimsfræfít .iármneöal viö 5
| blóðleysi i
og þar af lútandi S
5 þreytu og taugaveiklun. |
m mm
Fæst í lyfjabúðunum. 3 S
riiiiiiiimiiiiiMiiiiiiiiiiiimiH
Vandlátar húsfreyjur
kaupa
Tígulás-
jurtafeiti.
Elsta, besta
og þektasta
ryksugan
er
Nílfisk.
Aðalumboð
hjá
Raftækja-
verslunin
Jón SiBurðss.
Austurstr. 7.
vonarvöl. Hafði hann fengið skipun
frá foreldrum sínum í Ilongkong um
að ganga að eiga konuna.
En Júlíana var ekki á því að gifta
sig aftur. Kom mágur hennar því
þannig fyrir að hún fór með börn sin
til Honkong og settist að hjá tengda-
foreldrum sínum þar. Síðan fór litli
Kínverjinn aftur til Berlínar. Hann
skildi hreint ekki í þessu, að liún
skildi ekki vilja eiga liann.