Fálkinn


Fálkinn - 27.08.1932, Page 3

Fálkinn - 27.08.1932, Page 3
FÁLKINN VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. fíitstjórar: Vilh. Finsen og Skuli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Áskriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Alt er þjer ómögulegt ef. þú hefir gert þjer í hugarlund, að þú getir ekki gert það. Hugur ræður meira en hálfum sigri, hann ræður, „stærri helmingnum" al' hon- um, en kjarkleysið ræður fullum ó- sigri, ávalt og alstaðar. Enginn hefir orðið maður nema hann hafi kunn- að að þora, og ragmenni er með verstu skammaryrðum, sem islensk tunga á. Dags daglega verða fyrir manni bestu menn, vinnusamir og vel gefn- ir — menn sem allir hjeldu um, að verða mundu forustumenn og þóttu liklegii1 til þess að komast langt. En þeir standa í sömu sporunum ár frá ári, bæta engu við hæð sína og fara svo í gröfina, að enginn getur sjeð, að þeir hal'i áorkað neinu i líf- inu. Þeir eru vel látnir og öllum er lilýtt til þeirra. Það er altaf vand- sagt um slika menn, að þeir hafi sett ljós sitl undir mæliker og van- rækt að neyta hæfileika sinna. Að rjettu lagi mætti segja svo, að þeir vissu best sjálfir um, hve hátt þeim væri hæfilegt að reiða og að öðrum kæmi það ekki við. En hati það verið svo, að þessa menn hafi ekki brostið neitt nema kjarkinn, þá er miður l'arið. Því að sessinn, sem þeir átu að taka, stendur ekki auð- ur, heldur hefir hann tekið við öðr- um manni, sem ekki brast kjarkinn en vantaði ef til vill flest annað, sem til þuríli. Maðurinn, sem hikar og hopar við hvert smáræð'ið er illa settur. Hann langar og hann finnur með sjálfum sjer að hann getur. En hann þorir ekki. Hánn vantar aðeins herslumuninn. En sá er enn ver settur, sem ávalt lelur sjer trú um, að hann geti alls ekki. Þar er að vísu ekkert hik, heldur auðsveip uppgjöf: .leg gel það ekki — jeg er ekki maður til þess. Og svo kemst þessi hugsunar- háttur upp í vana og maðurinn þor- ir aldrei neitl og ræðst þessvegna aldrei í neitt. Hann er andlegur ör- kumlamaður. Honum verður alt ó- mögulegt. Það er langt milli þessa manns og hins, sem el' til vill hefði meiri ástæðu til að þora ekki, en gerir það samt og segir: ,)eg skal! Hann brennir sig ef lil vill oft og fær byltu i margri tilrauninni, en það er meira mannsbragð að honum. Hann herðist við hverja pláguna og vex með hverjum ósigrinum, nema iiann sje svo einkennilega gerður að vanta alt nema þráann og þorið. Víasla Þverárbrúar. Þverárbrúin var vígð siðastliðinn sunnudag, að viðstöddu svo miklu fjölmenni, að atdri mun t'leira fólk hafa verið viðstatt brúarvígslu hjer á landi og aldrei fjölmennari sam- koma hafa verið i Rangárvallasýslu. Munu viðstaddir hafa verið hátt á 5. þúsund. Á undan vigslunni hjelt s'éra Erlendur Þórðarson í Odda guðsþjónustu, en að því loknu setti sýsluinaður Björgvin Vigfússon liá- líðinu og sagði i ræðu sinni sögu hrúannálsins. Eins og kunnugt er, gekst hann og fleiri hjeraðsbúar fyr- ir þvi, uð safna fje til brúargerðar ú Þverá og At'falli og bjóða rikimi það til láns. Tókst þetta og ákvað stjórnin að lúta framkvæma verkið þegar, er hjeraðsbúar höfðu sýnt i verki svo mikinn áhuga á, að því yrði flýtl. — Þá hjelt Þorsteinn Briem atvinnumálaráðherra vígslu- ræðu og lýsli brúnni sjálfri. Er hún 17(1 metrar á lengd og þriðja lengstu brú ú landinu, bygð ú stauraokum, 18 talsins og er tíu metra háf milli okunnu. Brúargólfið hvilir á lang- bitum úr járni og ú þeim eru þver- bitar úr limbri. tíólfið er úr timbri en járnrið beggja vegna. Brú- in sjálf kostar um 70.000 kr. — K ,F. U. M.-kórið skemti fólki með söng ú mótinu og var m. a. sungin brúar- drápa eftir Þorstein Gislason. — A efstu myndinni sjesl brúin, en á þeirri næstu ráðherrafrúin er hún klippir sundur strenginn á brúnni. Sjást á inyndinni m. a. atviunumála- ráðherra, sýslumaður og vegamála- sljóri. A neðstu myndinni sjesl munnfjöldinn við guðsþjónustugerð- ina og presturinn í stólnum. Loks er mynd hjer að ofan af atvinnu- múlaráðherru er hunn l'lyturræðuna. Somkoman fór hið besta fram og vurð öllum hlutaðeigendum til hins mesta sóma. Er það eins og áður er sagt fjölmennasta samkoman;, sem haldin hefir verið í Rangárvalla- sýsln og lælur nærri að fólkið hafi verið jafnmargt og allir sýslubúar eru samtals. Fjöldi bifreiða einkum úr Reykjavík, flutti fólk á staðinn allan fyrri part dagsins og heim að kvöldi og hefir aldrei verið meiri umferð um Suðurlandsbraut en þennan dag. — Innan skamms verð- tir brúin yfir Affallið fullgerð og el' lil vill verður hægt að gera bráða- birgðabrú yfir Álana úr efni því, sem afgangs verður af þessum tveimur brúm. Pjetur Hafliðason beykir Selja- veg 17 verður 75 ára 29. ágúst. Ekkjan Guðrún Guðtiad., Berg- st.str. 38 oerður 75 ára 29. þ. m.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.