Fálkinn - 18.02.1933, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
GAMLA BÍÓ
Gift til fjár.
Talmynd í 9 þáttum eftir Don-
aid Stewart.
ASalhlutverk leika:
Clive Brook og
Tallulah Bankhead,
frægasta leikkona Bretlands.
Lærdómsrík og vel leikin
mynd.
iEGILS
PILSNER |
BJÓR
MALTÖL
HVÍTÖL.
■ ■
! SIRIUS
GOSDRYKKIR,
9 tegundir.
SÓDAVATN
| SAFT i
LÍKÖRAR, 5 teg. :
j Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘ j
{ tryggja gæðin.
| H.f. Öloerðin j
j Eyili Skallaorimsson |
: Sími 1390. [
!
Reykjavík.
Fálkinn
er vjðlesnasta blaðiö
er besta heimilisblaðið
P R 0 T 0 S - ryksugan
Nýja gerðin.
Sterkur hreyfill.
Mikið sogmagn.
Besti efniviður
Fæst hia raftœkjasólum
,,BATA“ gúmmístígvjel
Ein grein af hinum góða og
ódýra „BATA“ skófatnaði eru
ailskonar gúmmiskófatnaður . .
Barna gúmmístigvjel.Nr. 6-8 Kr. 5.50
- - .... - 9-1 - 7.50
Unglinga — - 2-5 — 9.00
Karlm. hnjehá — - 6-12 — 14.00
- háifhá - - 6-12 - 18.50
Kven. skóhlífar 3.00 tU 3.75 SnjóhUfar 7.00 til 11.00
Karlm. skóhUfar 4.50
LARUS G. LÚÐVÍGSSON, skóverslnn
------ NÝJABÍO --------------
Kelsaravalslnn.
Stórfalleg söngmynd, sem segir
þátt úr æfi Jóhanns Strauss —
valsakonungsins frá Wien.
ASalhlutverk:
Michael Bohnen hirSsöngvari,
Lee Parry,
Paul Hörbiger og
Gretl Theimer.
Sýnd um helgina.
er bragðgott, drjúgt og gott til
bökunar.,
I
„•0-*H..-0"Ui.'0
.••!«..■ o ,,it.^o"iiM O"n.^o i
Drekkiö Egils-öl
^ O ''IU-'O-"fceo"IkeO••uuc -m...0 “«m-O••*«„■ O O••'<1». 0 -U...0
Hljóm- og
GIFT TILFJÁR. Mynd þessi er
------------- er lekin af Para-
mountfjelaginu og hefir Georg Cukor
stjórnað tökunni. Hefir hann tekið
fjólda ágætra mynda og er talinn
í hópi béstu leiks.jóra. En aðalhlut-
verkin leika Tallulah Bankhead, ein
vinsælasta leikkona Englands og
Clive Brook, ameríkanski leikarinn,
sem fiestir bíógestir kannast við.
Myndin segir frá ungri stúlku,
Nancy Caroll, sem alist héfir up])
við auð og alsnægtir og aldrei gert
sjer grein fyrir hvað peningar væru.
En svo missir faðir hennar allar
eignir sínar og deyr, og hún stend-
ur uppi allslaus ásamt móður sinni,
sem er ímynd sjálfselskunnar. Nancy
lætur tilleiðast að gif.ast til fjár,
auðmanninum Norman Cravath, s?m
elskar hana heitt, en sjálf elskar
hún hann ekki heldur fátækan list-
málara og skáld, De Witt Taylor.
Hún finnur ekki gæfuna í hjóna-
bandinu og þegar móðir liennar, sem
hún hefir orðið að ala önn fyrir,
erfir svo mikið fje, að liún getur
sjeð fyrir.. sjer sjálf, þá biður hún
mann sinn um skilnað og fer frá
honum. En einmitt um sama leyti
hefir hann mist eignir sínar, og
heldur þvi — sem að vissu leyti er
rjett — að hún hafi aðeins átt sig
vegna peninganna. Nú ber fundum
Nancy. og DeWitt saman á ný en
hún fær brátt að reyna, að hann er
ekki verður ástar hennar. Hann er
manngildislaxrs aumingi. Eftir þvi
sem lengra liður frá verður Nancy
ljósara hve mikOs hún hefir mist
er hún yfirgaf Norman Cravath, en
slærilæti hennar er svo mikið, að
talmyndir.
hún kemur sjer ekki lil að fara á
fund lians og biðja hann fyrirgefn-
ingar og friðmælast við hann. Hún
er með barni og er hún hefir alið
j)að, verður þrá hennar eftir föður
þess enn sterkari en áður. Og loks
fer svo að þau sameinast aftur og
hún finnur að, að hún ann Norman
Cravath meira en hún hefir haldið.
Leikur aðaljpersónanna beggja er
prýðilegur og myndin öll einkar
liugnæm. Af öðfum leikendum en
nefndir hnfa verið má minnast á
Alekander Kirklahd, sem leikur De-
Wití „ Elisabeth Petterson, sem leik-
ur móður Nancy og Phoebe Foster
sem leikur ríka unga ljettúðardrós,
Gei'maine Prentiss, Myndin verður
sýnd i Gamla Bíó um lielgina.
KEISARAVALSINN, Johann Strauss-
-----------)■-myndin sem
sagt var frá í síðasta blaði verður
sýnd í Nýja Bíó núna um helgina.
Þeir sem gaman hafa af hljómlist
ætti ekki að láta hjá líða að sjó
þessa mynd, því að það fer ekki hjá
því, að þeir heillist af henni. Auk
þess fræðir hún einkar vel um stór-
borgarlífið á dögum „valsakonungs-
ins“ mikla. Þe.ta er ein af þeim
myndum, sem hefir stórmikið menn-
ingargildi, auk þess sem hún er
einkar listræn. Aðalhlutverkið syng-
r.r hirðsöngvarinn Michael Bohnen,
en auk hans leika þarna Lee Perry,
Gretl Theimer og Paul Hörbiger.
KVIKMYNDIN UM IVAR KREUGER.
Jafnmiklir kaupsýslumenn og kvik-
myndastjórarnir eru, gátu þeir vit-
anlega ekki látið það tækifæri ganga
úi' greipum sjer, að gera mynd af
æfi fjárglæframannsins Ivar Iíreuger
Er æfisaga hans sögð i myndinni á
all reyfarafenginn hátt. Kreuger
byrjar þar lífsferil sinn sem götu-
sópari í New York og hækkar svo
smámsaman í tigninni þangað til
liann kemst á hátind fjeglæfranna.
Sagan snýst að miklu leyti um ást-
ir hans og ónefndrar kvikmynda-
dísarog er frágangur myndarinnar
þannig, að það er fyllilega gefið í
skyn að þessi stúlka sje Greta Gar-
bo. Lily Damita leikur þetta hlut-
verk og er sögð stæla hina frægu
leikkonu mjög áberandi í öllum hátt-
um og tilburðum og hefir þetta
vakið umtal og þykir óviðfeldin að-
ferð til að vekja athygli á mypdinni.
En Kreuger sjálfur er leikinn af
Warren Williams. Hjer ó myndinni
sjást þessir tveir leikendur aðal-
hlutverkanna.
BRUNABÓTAFJELAG ÍSLANDS.
Atliygli skal vakin á auglýsingu
þess í blaðinu í dag. Samkvæmt
lienni hefir fjelagið á hendi allar
'skyldutryggingar fasteigna, en þær
ná til allra kaupstaða og kauptúna
nema Reykjavíkur, hvort sem kaup-
túnin eru stór eða smá, en áður
náði tryggingarskyldan aðeins til
kauptúna með yfir 300 ibúum. Auk
þess tryggir fjelagið fasteignir utan
kaupstaða og kauptúna (þ. e. í
sveitum) en þar eru menn sjálf-
ráðir um hvort þeir vilja hafa vá-
trygt eða ekki. Einnjg tekur fjelag-
ið að sjer tryggingar ó lausafjár-
munum.
Varasjóður fjelagsins var samkv.
reikningi 15. okt. 1931 1.124.278 kr.
en auk þess hefir fjelagið ábyrgð
ríkissjóðs fyrir alt að 800.00 kr. fjár-
upphæð, svo að alls hefir fjelagið
nálega 2.000.000 króna tryggingu
fyrir skuldbindingum sínum.
Alþjóða frímerkjasýning verður
haldin í Wien í sumar, 24. júní til
9. júlí. í sambandi við sýninguna
verða haldin 12 frímerkjaþing.