Fálkinn


Fálkinn - 16.09.1933, Qupperneq 3

Fálkinn - 16.09.1933, Qupperneq 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. fíitstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: SvavarHjaltested. Aðalskrifstofa: BanKastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjöthsgade 14. BlaSið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði; kr. 5.00 á ársfjórðuugi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. ðuglýsingaverð: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþankar. Mikilmennið finnur til með þjóð- inni en hann lætur hana ekki teynia sig. Hann heldur sinu stryki, án tillits til almenningsálitsins. Hann er rólegur. Hann treystir tilverunni og Verður sjaldan óþolinmóður. Hann hugsar skýrt, talar skynsam- lega og lifir óbrotnu lífi. Hann hefur aldrei mikið að gera. Hann fyrirlítur aldrei neinn. Hann er líkur hinu þögla í nátt- úrunni, eins og hafið, himininn eða eyðimörkin. Hjegómagirnd er ekki til í hon- um. Hann langar ekki til að aðr- ir hrósi sjer og þessvegna verður hann aldrei fyrir vonbrigðum. Hann hefir ávalt meira en honum finst hann eiga skilið. Iiann vill altaf vera að læra. Jafn- vel af ungbörnum. En hann gerir sjer ekki far um að kenna öðrum. Hann er ekki boðinn og velkom- inn í neina stjett eða flokk, vegna þess að honurn er ljúfara að reyna að skilja aðra en að láta aðra skilja sig. Hann vinnur vegna ánægjunn- ar af vinnunni en ekki vegna laun- anna. Hann getur ekki endurgoldið ilt með illu, því að hann á ekki heima í flokki jjeirra, sem langar til að gera öðrum ilt. Lof eða lasl verkar ekki á hann. Hann brennur af áhuga fyr- ir öllum velferðarmálum. Hann eískar, hann líður, hann hlær. Þeg- ar maður er í návist hans finnur maður, að það sem maður hefir, peningar, staða og þessháttar, er alls ekki aðalatriðið, og ef honum líkar vel við mann er það ekki vegna þess sem maður segir eða gerir, heldur vegna þess hvernig sál nmnns er. Ilann lætur ekki hlekkjast af happi eða óhappi. Hann þorir að breyta um skoð- un og viðurkenna að sjer hafi skjátlast. Hann kærir sig ekkert um að halda skoðunum sínum til streitu. Hann þráir sannleikann. Hann hefir trú á því, að æfi manns- ins endi með sigri hins góða og hann er aldrei óþolinmóður. Hann þekkir ekki biturleik eða svartsýni heldur kærleika, von og umburðar- lyndi. Þegar þú færð ást á svona manni, þa stækkar þú sjálfur, því að mik- ilmennið er sterkt, þó það fari liægt. Frank Crane. Frægt flugfólk. Hjer birtast myndir af frægu flugfólki, sem mikið liefir ver- ið talað um í sumar. Á efri myndinni sjást Balbo, frú Lindbergli og Charles Lindberg. En á neðri myndinni sjást að ofan Lind- bergshjónin en að neðan Mollisonshjónin. Habsborgarættin, sem rekín var frá völdum í Austurríki hefir far- ið í mál við ríkisstjórnina þar og krefst 240 miljóna skaðabóta veg.m þess að rílcið hefir gert upptæk n allar eignir ættarinnar og — vill mgii skila aftur. —-—x------ Ekkjan Þórunn Sigurðardóttir í Lambhaga varð 90 ára 13. sept. í Marseilles, var „generalkonsúll“ nýlega tekinn fastur, staðinn að hvítri þrælasölu. Handtakan fór fram alveg þegar maðurinn ætlaði að ganga að eiga 42. konuna. Kon- súllinn er ríkur og hafði tælt ung- ar stúlkur og látist giftast þeini. Fn a brúðkaupsferðinni, sem æfi.i- !ega var farin til San Francisco, „skihli hann þær eftir“ hverja ;.f annari, l'. e. a. Si seldi þær. Sá, sem „gifti“ var ekki prestur, held- ur leikari, sem konsúllinn kevpti til l>ess. Hann var vitanlega lika tekinn fastur og margra ára betr- narhússvist bíður þeirra beggja. -----------------x---- Amerískur vísindamaður hefir cftir margra ára rannsókn komist að þéirri niðurstöðu, að flær geta .stokkið 32 centimetra að lengd og um 214 meter að liæð. Þeir hafa lítið að gera, amerísku vísinda- mennirnir, eftir þessu að dæma. -----------------x---- í London hefir áttræð kerling rætl um skilnað við mann sinn. sem er 78 ára að aldri. Karlinn var eitthvað að manga til vi"ð unga' stúlku — og það þoldi ekki kerl- ing. ----x---- Soldáninn i Marokkó er sem stendur „í sumarfrii“ í Nizza. 'Uut 50 manns eru í fylgd hans, kveu- fólk og karlmenn. ----x—--- Sextán ára strákur og 72 ára gamall karl lenti í slag í Frakk- landi um daginn. Strákurinn gaf karlinum utan undir með flatri' hendi, svo karlinn hneig Íiiður steindauður. ----x—— Maður i Chicago liefir farið í skaðabótamál við eiganda gistihúss nokkurs þar i borginni og krefsl 100.000 dollara þóknun. Málinú er þannig varið, að maðurinn Var bitinn i nefið af humar á veitinga- húsinu. Hann kom þar inn til þess að fá sjer að borða, pantaði humar, en þótti hann vondur og kvartaði við eigandann yfir þvi að humar- inn væri gamall. Eigandinn sótti lifandi humar út i eldhús, en er hann var að sýna og sanhfæra gestinn um að humaririn væri lif- andi, hjelt hanri dýrinu svo ná- lægt riefinu á gestinurn,. að humar- inn skelti klónni uin það, svo hlæddi mjög. Vasahnífur er ómissandi hverjumnianni Hnifarogskæri í bestu úrvali hjá BRUUN, - Qleraugnabúðin Laugaveg 2.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.