Fálkinn - 15.06.1935, Qupperneq 3
F Á L K 1 N JN
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6.
Skrifslofa í Oslo:
A n t o n S c li j ö t h s g a d e 14.
BlaðiS kemur út hvern laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði;
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Auglijsingaverð: 20 aura millimeter.
Herbertsprent prentaði.
Skraðdaraþankar.
Besta aðferðin til að sjá ekki
hluti, sem vert er að sjá, er að at-
huga þá. Til dæmis drauga. Einka-
draugar manns sjálfs eru miklu
eftirtektarverðari en vinirnir úr
holdi og blóði, og svo á maður þá
útaf fyrir sig. Og enginn hefir
nokkurntíma sjeð draug. Þeir sjást
ekki. Maður grilir aðeins í þá; þeim
bregður fyrir og svo hverfa þeir.
Hann er þar ekki núna, en þú ert
tiandviss uni, að þú sást hann áðan.
Mikilli þakklætisskuld standa
inenn í við þessar merkilegu ver-
ur, álfa, huldufólk og vofur. Mikið
væri heimurdnn leiðinlegur ef mað-
ur sæi aðeins það, sem maður get-
ur sjeð.
Svona er það líka með ýms sanu-
indi, sem altaf eru að hrella oss;
en sem við aldrei getum útskýrt.
Þráustu staðreyndirnar eru þær,
sem ekki er hægt að sanna. Venju-
leg manneskja „finnur það á sjer“.
„Jeg vildi óska að þú hefðir sem
minst saman við þennan mann að
sælda“, segir konan, „það er eins
og því sje hvíslað að mjer, að þú
hafir óþægindi af þvi“.
Og þegar „þvi er hvísiað að kon-
unni, er hest að vera á verði. Sál
góðrar konu er eins og nef á spor-
hundi, hún nasar pretti og prakk-
ara löngu áður en maðurinn sjer
nokkurn hlut.
Fordómur eða sannfæring, sem
eiginlega aðeins er sem innri mót-
mæii og sem maður getur ekki gert
sjer neina skýringu á, er miklu
sterkara en nokkur trúarsetning á
svörtu og hvítu. Við getum fengið
okkur ofan af skoðun, sem við höf-
um komist á fyrir rök, en við get-
um ómögulega lcæft hugmynd, sem
fæðst hefir í okkur, svo að segja
án þess að við vissum af því.
Með öðrum orðum: Skoðanir
breytast en hjátrúin er eilíf. Fyrir
þúsund árum var fólk lirætt við
föstudaga, við töluna 13 og það var
spáð i kaffikorg, maður trúði á á
hrif stjarnanna, mátti ekki ganga
undir stiga og ekki velta saltkerinu.
Eftir þúsund ár verður sami átrún-
aðurinn til i fylgsnum mannsand-
ans. Það sem maður sjer aðeins
bregða fyrir verður mest sann-
færandi. Fegurð sem aðeins sjest i
svip hefir sterkust áhrif. Hætta sem
birtist snögglega en líður lijá er
slcelfilegust. Sæi maður himinn eða
helvíti rjett sem snöggvast eins og
vofurnar mundu það verka miklu
sterkar á mann en ef maður fengi
að athuga það i næði.
Frank Crane.
W
Brúðkaupsgjafir Islands.
1 síðustu utanför sinni afhenti
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra Friðriki krónprins og Ingi-
ríði krónprinsessu þau tvö lista-
verk, sem hjer birtast myndir af,
sem brúðargjöf frá íslensku þjóð-
inni. Annað er hin gamalkunna
standmynd Einars Jónssonar,
„Lampinn", sem liann mótaði fyrir
nálægt 15 árum, og vakið liefir að-
dáun allra sem sjeð hafa. Hitt er
nýtt málverk eftir Jón Stefánsson,
sem fáir hafa þvi miður sjeð, vegna
þess að málarinn lagði síðustu hönd
á verkið skömmu áður en það var
sent utan. Því miður gefur myndin
ekki aliskostar rjetta hugmynd um
málverkið —- forgrunnurinn er ljós-
ari en vera skyldi, því að á mynd-
inni er vatnsflöturinn dimmblár.
En aðallitir myndarinnar eru blátl
(vatn og fjöll í fjarska) og hvítt
(svanirnir og jökulbungur). Myndin
gefur í baksýn útsýn úr ofanverðri
Hálsasveit og munu kunnugir fljótt
kannast við Strútinn, Iíalmans-
tunguna og lengst til hægri Eiríks-
jökul. — Hafa gjafir þess'ar vakið
mikla athygli erlendis á íslandi og
íslenskri list og munu skipa heið-
urssæti í hibýlum rikisarfa og
drotningarefnis, þó að margt fagurt
og veglegt hærist þeim brúðhjón-
unum annarsstaðar að.
Stærsla gjöfin er þau fengu, voru
400.000 krónur í peningum, sem
ætlast er til að þau reisi sjer sum-
arbústað fyrir. Þessir jieningar eru
fengnir með frjálsum samskotum
meðal dönsku þjóðarinnar. Færey-
ingar gáfu þeim málverk, en einna
sjerkennilegasta brúðkaupsgjöfin
var lítil eftirlíking af svefnvagni,
með áletruninni „Stockholm-Köben-
havn“ og var hún frá Vett forstjóra
í Magasin du Nord.
Rakarinn; Þetta verða 75
aurar.
— Hvernig stendur á því; það
er 35 aurum dýrara en annars-
staðar.
— Haldið þjer kanske að þjer
fáið heftiplásturinn ókeypis.
Síra Matthías Eggertsson t Karl Guðmundsson lögreglu-
Grímsey verður sjötugur í dag. þjónii verður fertugur á morgun.