Fálkinn - 06.07.1935, Síða 3
FÁLKINN
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvœmdastj.: Svavar Hjaltested.
A ðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sínii 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—0.
Skrifstofa i Oslo:
A n t o n S c h j ö 1 h s g a d e 14.
Blaðið kemur út hvefn laugardag.
Askriftarverð-er kr. 1.50 á mánuði;
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Anglýsingaverð: 20 aara millimeter.
Herbertsprent prentaði.
Skraddaraþankar.
Á hún að segja honum það?
Jeg fjekk einkennilegt brjef hjerna
um daginn. Ung stúlka skrifar mjer
á þessa leið:
„Jeg er á þrítugs aldri. Fyrír
nokkrum árum gleymdi jeg mjer
um stund og var svo óheppin og
ófyrirgefanlega heimsk, að „mis-
stíga“ mig á lífsins hálu braut. Jeg
týndi ekki sálu minni en í athuga-
leysi mínu setti jeg blett á sam-
visku mína. Eftir nokkra stund
vaknaði samviskan. Jeg sá á hvaða
leið jeg var, og staðnæmdist. .Teg
iðraðist sárlega verknaðar mins og
hugsana. Jeg bað með sjálfri mjer
um fyrirgefning og fanst jeg fá
hana. Mjer datt ekki í hug, þegar
jeg gerði mig seka i þessari synd,
ao ástin mundi koma siðar og á-
kæra mig.
En nú er jeg ástl'angin af manui
og hann elskar mig af öllum sín-
um liuga. Hann heldur að jeg hati
alla þá kosti, sem konan á að hafa
og verður að bafa. Ef jeg segi hon-
um sannleikann um fortíð mina,
þá veit jeg að hann muni fyrirlita
mig. Jeg finn, að ef jeg þegi áfrani,
þá er jeg ekki verð áslar hans, og
að jeg geri honum rangt til með
þvi að giftast honum og svíkja hann
með þögninni.
Hvað á jeg að gera? Á jeg að
segja honum upp alla sögu? Jeg
hafði haldið að iðrun og frómt líf-
erni mundi afmá alla synd; en jeg
get ekki fundið frið eftir að ástin
er komin inn í tilveru mína og
jeg stend sem sakborningur l'yrir
dómstóli hennar.
Er jeg verðug ástar góðs manns?
Eða á jeg að hafna honum og loka
kærleikann úti um aldur og æfi,
vegna þess að mjer hefir orðið það
á, sem ekki skytdi ?
Jeg veit að fyrra líferni unnusta
iníns hefir heldur ekki verið ólast-
anlegt, og hann hefir ekki gert neitl
til að dylja það fyrir mjer. En
mjer finst þetta vera öðru vísi, þeg-
ar það varðar kvenfólk.
Á jeg að segja honuin frá öllu
saman? Eða á jeg að þegja?“
Frh.
Frank Crane.
Það er í fyrsta skifti i sögu
landsins, að núna fyrir skömmu
fór hver að gjósa, fyrir tilstilii
mannavalda. Bogi A. Þórðarson frá
Lágafelli, sem á flesta hverina í
Hveragerði í Ölfusi, hefir með nýj-
um umbúnaði komið gömlum hver
til verka á ný, og gýs hann nú svo
rösklega, að sagt er að gosstrókur-
inn komist í alt að 70 feta hæð.
Hjer birtist mynd af hvernum, sem
er nú tvíinælalaust hæsti goshver
á Islandi. Er staðurinn svo stutt frá
Beykjavík, að gera má ráð fyrir,
að bæði innlendir menn og erlendir
sæki þennan nýja stað heim frekar
en flesta aðra.
Gullbrúðkaup eiga þ. 1A. þ. m. hjónin fvú Þórunn og Davíð
Scheving Tliorsteinsson læknir, Þingholtsstræti 27.
Sigurður Ilalldórsson trésmíða- Gottskálk G. Björnsson, trje-
meistari Þingholtsstræti 7 verð- smiður Borgarnesi varð 65 ára
ur 60 ára 10. þ- m. 29- júní.
Íslandsfllíman.
Islandsglíman var háð á íþrótta-
vellinum síðastliðið mánudagskvöld
1. júlí. Keppeudur voru skráðir 0
en aðeins 5 mættu til leiks allir
frá Glíniufjelaginu Ármann. Voru
það þeir Sigurður Thorarenseu,
I-árus Salómonsson, Ágúst Kristjáns-
son, Skúli Þorleifsson og Gunnar
Salómonsson. Yfirleitt var glíman
góð og sjerstaka athygli vakti glím-
an milli Ágústar Kristjánssonar og
Sigurðar Thorarensen. Úrslit urðu
þau að Sigurður Thorarensen hlaut
enn Glímubelti 1. S. í. ásamt nafn-
bótinni glímukonungur Islands,
Sigurðar Thorarensen glimukonunq-
nr Istands.
liafði hann 3 + 1 vinning. Ágúst
Kristjánsson lilaut Stefnuhornið
aftur og þarmeð nafnbótina glímu-
snillingur íslands, fjekk hann 3
vinninga. Lárus Salómonsson hafði
2 vinninga. Skúli Þorleifsson 2 vinn-
inga og Gunnar Salómonsson engan.
Áður en fslandsglíman hófst sýndi
úrvalsflokkur drengja úr glíniu-
ljelaginu Ármann fimleika undir
stjórn Vignis Andressonar og þótti
flokknum takast prýðilega.
Agúst Kristjánsson glimusnillingur
íslands.