Fálkinn - 04.01.1936, Side 8
r
8
F Á L K I N N
Austurríkismenn Inku í surtiar við að
gera bílveg yfir Grossglocknerskarð í
Alpafjöllum og er þessi vegur full-
komnasti og merkilegasti fjallvegur í
álfunni. Hann liggur allra vega hæst:
um og yfir 2500 metra yfir sjó, og
hann er breiðari en allir aðrir fjall-
vegir og svo vel lagður, að þar eru
háðir kappakstrar á bifreiðum. Sýnir
myndin slíkan kappakstur og áhorf-
endur, sem hafa gott útsýni yfir veg-
inn. Á þessum slóðum er Ijómandi
fallegl, og fjallið Grossglockner, sem
er 3800 metra hátt, mjög eftirsótt af
göngugörpum, enda hefir vegur þessi
nær eingöngu verið lagður til þess að
draga að skemtiferðafólk.
Á myndinni hjer að neðan sjest Alex-
andrína drotning á basar, sem hald-
mn var í Khöfn til ágóða fyrir Dia-
konissestiftelsen. Afgreiddi hún þar
við eitt borðið og seldi1 vel.
Danska verkfræðingaf jelagið liefir ný-
verið lokið við að reisa siórhýsi eitl
mikið í Kaupmannahöfh, sem fram-
vegis verður lieimili fjelagsins. Stend-
ur það við Vester Farimagsgade og
kvað vera afbragð annara húsa að
öllum frágangi og fyrirkomulagi. Á
myndirini hjer að ofan er sýnt and-
dyri hússins.
Bogfimi hefir [rii alda öðli verið ein
af uppáhalds íþróttum Englendinga.
Var hún iðkuð þar í fornöld og á
miðöldum og ein af bestu listum þjóð-
söguhetjunnar Robin Hood var sú,
hve vel luinn skaut af boga. Þegar
önnur skoivopn urðu almenningseign
var boginn lagður á hilluna, en síð-
ustu árin hefir bogfimi komist í tísku
aftur og er nú iðkuð bæði af körlum
og konum. Myndin er af samkepni
kvenna í Oxford.
i
«