Fálkinn


Fálkinn - 18.07.1936, Blaðsíða 8

Fálkinn - 18.07.1936, Blaðsíða 8
8 F Á L K 1 N N VNCWW LE/SNMIftMIR Ólympsleikar og íþróttir. Jeg get hugsað, að ykkur þyki gam- an að því að sjá leikvöllinn eða iþróttavöllinn, sem þátttakendur Olympsleikjanna eiga að keppa á í næsta mánuði, þar á meðal Íslendiíig- arnir, sem þangað koma. Þið sjáið sjálfan völlin til vinstri, á teikning- unni sem merkt er 1. Svörtu kaflarn- ir eru gangbrautir, en hvitu braut- irnar sem merktar eru með 2, eru áhorfendasvæði og komast þar fvrir 85 þúsund áhorfendur. Reiturinn sem merktur er með 3 er yfirbygður á- horfendapallur, þar sem dýru satin eru. Við hliðina á leikvanginum, til hægri er sundlaugin stærsta. Sjálf laugin er merkt tölunni 4 og efst í lauginni, þar sem hún er mjög djúp, eru háir pallar til að stinga sjer af, merktir tölunni 5. Bak við sUndlaug- ina er stórt svæði, 6, þar sem sund- fólkið hefst við, fyrir og eftir að það hefir tekið þátt í samkepninni. Hálf- hringurinn sem er á milli þessa pláss og sundlaugarinnar er gerður ú'r súlnagöngum í fornum stil, bygður sem einskonar gafl að sundlauginni. Þar blasir við, beint á móti svæði það, sem ætlað er til frjálsra íþrótta. Meðfram liliðinni er breitt svæði, sem líka er merkt tölunni 8. Þar er aðal-inngangurinn á leikvanginn. Þar sem skákrossinn er markaður á teikn- inguna er gifurlega há flaggstöng, sem ber uppi Olympsfánann, fánann með fimm sameinuðum hringjum. Við endann á sundlauginni eru einnig minni flögg, þrjú alls. Þessar flagg- stengur eiga að bera uppi fána þeirra þjóða, sem keppa samtímis, hvort heldur er á íþróttavellinum eða í sundlauginni. Þegar þið farið að lieyra frjettirn- ar frá Olympsleikjunum eigið þið hægra með að átta ykkur á þvi, hvernig alt fer fram, ef þið hafið þessa mynd fyrir framan ykkur. Að iðka íþróttir er miklu meira en það eitt að kunna að synda, hlaupa og vera i knattspyrnu. Það eru fjölda margar íþróttagreinar til, sem j:>ið máske þekkið að nafninu til, án þess að vita hvernig þessar iþróttir eru iðkaðar með rjettu móti. Jeg skal því minnast á þrjá flokka íþrótta, sem allir áhugasamir drengir geta tamið sjer. Fyrsta æfingin er kúliwarp. Til þessa þarf þunga járnkúlu, senx þið verðið að kaupa, ef vel skal vanda til en annars getið þið æft ykkur á þungum steini, hnattmynduðum. Þið sjáið á mynd II hvernig þið haldið steininum, en byrjunarstöðuna fyrir kastinu sjáið þið á I. Iíúlan er höfð í hægri hendi og hendinni stutt upp að öxlinni og allur líkamsþunginn látinn hvíla á hægra fæti. Svo hopp- iir maður stutt áfram á sama fæti og spyrnir síðan vinstra fæti vel i, ská- halt tii vinstri og.hendir kúlunni. Vit- anlega er um að gera, að varpa kúl- unni sem lengst. En munið að þegar þið kastið henni megið jxið til að vera vissir um, að hún grandi ekki nein- um, sem nærri er staddur. Og gætið að tánum á ykkur fyrsta kastið, meðan það kemur fyrir að þið miss- ið kúluna í kastinu. Svo er það spjótkast. Það liafa ýms- ir fráir drengir oft reynt, en oftast nær með slæmum árangri. Ódýr spjót eru ekki dýr í iþróttagagnaverslun- Langar þig til að verða iþróttamaður? Setjið þið saman! 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. þrenn verðlaun: kr. 5, 3 oa 2. 1. 2, 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. Hefðártitill. Hægt (í músík). Franskur undrabær. Persakonungur. Óþarfi. Fylki í U. S. A. Borg í Ítalíu. Hlóðir. Bæjarnafn. Höggormar. Ávaxtatrje. Gamalt ’ vikingabæli. Blautfiskur. Kvenheiti. Ekki neðan. 9. . 10. 11. 12. 13. 14. 15. a—a—a—a—ald—an—an—bar—borg —dag—dar—des—eld—i—i—ing—ing —in—í—ír—kot—lour—me—ne-nöðr —o—os—o—of—ón —pel—rúð—sal— soðn—stó—trje—u—ur—van—þörf Samstöfurnar eru alls 40 og á að setja þær saman í 15 orð í samræmi við það sem orðin eiga að tákna, þannig að fremstu stafirnir i orð- um, taldir ofan frá og niður og öft- ustu stafirnir, taldir að neðan og upp og og nxyndi nöfn tveggja isl. forustumanna. Strykið yfir hverja samstöfu um leið og þjer notið hana í orð og skrifið nafnið á listann til vinstri Nota má ð sem d og i sem í, a sem á, o sem ó og u sem ú. Sendið „Fálkanum", BankaStræti 3, lausnina fyrir 30 ágúst og skrifið nöfnin í horn umslagsins. um, en annars getið jxið komist af með trjeskaft, sem að þið látið setja þungan járnbrodd á. Jeg vona að þið liafið mikla aðgætni þegar þið farið að reyna þetta áhald. — Spjótinu er lcastað með hægri hendi, ef rnaður er ekki kominn svo langt, að maður kasti með báðum höndum til skiftis, eins og á íþróttamótunum. Maður lieldur spjótinu eins og sýnt er á mynd III. Takið eftir, að í þeim stell- ingum sem myndin sýnir, er öll orka efri hluta kroppsins dregin að handleggnum sem kastað er með. Maður hleypur til með spjótið undir kastið, 10—15 metra; áður til tilhlaup- ið byrjar heldur maður hendinni það hátt að liún nemi við eyrað, en þeg- ar tilhlaupið er búið er hendin sveigð aftur, eins og sjest á teikningunni. Um leið og hægra fæti er spyrnt fast í jörðina snýr maður vinstri lilið í þá átt, sem kasta skal i og vinstra fæti spyrnt í — svo miðar maður kastið með þvi að beygja liægri hendi dálítið fram að eyranu og svo aftur til baka — og kastar svo. Spjótinu er slept með lxumal- og vísifingri og með þessum fingrum spyrnið þið síðast á eftir spjótinu, áður en þið sleppið því. Loks er það kringlukastið. Kringl- an er lxung, kringlótt skífa úr trje en járnbrydd, og er henni kastað lárjett og getur flogið býsna langt. Líttu á teikninguna IV. Kringlan er tekin i hægri hönd og brúnin á henni á að nema við , ystu fingurliðina. Maður tekur stöðu með vinstri hliðina á áttina sem maður ætlar að kasta í, og byrjar með því að hreyfa hand- legginn fram og aftur og styður þá kringluna urn leið með vinstri hendi, þegar maður hreyfir hinn handlegg- inn áfram, en beygir sig i hægra hnje, þegar maður hreyfir hægrá handlegg til baka. Þegar maður hef- ir fengið jafnvægi á kroppinn með þessum hreyfingum hringsnýr maðixr sjer í þá átt, sem kasta skal, með því að snúast fyrst á vinstra fæti og síð- an á þeim hægri, þegar hann er kominn niður og stígur eftir snún- inginn. vinstra fæti framan við þann hægri. Um leið rjettir maður úr hægri handlegg í axlarhæð, beint út, með hendina lárjetta. Þegar maðui- kastar sleppir maður fyrst litla- fingri af kringlunni, næst baug- fingri, þá löngutöng og loks vísifingri og þrýstir vel á eftir með honum áð- ur en kringlan sleppir hendinni. Mundu að láta búkinn fylgja vel ó eftir kastinu og kasta eins laust og þjer er mögulegt. Þessar æfingar þykja þjer máske flóknar, en svona eru nú reglurnar, og það er um að gera að fara eftir þeim. Reyndu að lesa þær og hreyfa höndina og lík- amann um leið og jxú lesl, eftir því sem sagt er fyrir, og þá kemst að raun um, að þetta er ekki svo erfitt sein þú hyggur, heldur þvert á móti eðlilegt. Tóta frænka. HÖFUNDUR MARSEILLAISEN, Rouget de Lisle átti 100 árá dánar- afinæli 2. júni og voru mikil liátiða- höíd í tilefni af því i Frakklandi. Myndin sýnir minnisvarða lians i Choisy-le-Roy.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.