Fálkinn - 25.09.1937, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
-------- GAMLA BÍÓ -------------
Hraðboði keisarans.
(Kurier des Zaren)
Framúrskarandi spennandi og
viðburSarrík talmynd, gerð eftir
hinni heimsfrægu æfintýrasögu
eftir JULES VERNE.
Aðaihlutverkiö leikur hinn kari-
mannlegi og glæsilegi leikari
ADOLF WOHLBRUCK.
Sýnd bráðlega!
„Hraðboði keisarans“ er gerð eftir
liinni alkunnu sögu Jules Verne,
hins fræga franska hugarflugshöf-
undar og gerist á þeim tíma, sem
Tatarar gerðu uppreisn gegn Alex-
ander II. Rússakeisara, undir for-
ustu höfuðmannsins Feofar Klian og
breiddist uppreisn þessi um atla
Siberiu. Þá er það, að rússneska
liðsforingjanum Michael Strogoff er
faljð, að koma áríðandi boðum frá
keisaranum til Fedors stórfursta,
sem er bróðir keisarans og lands-
stjóri í Irkutsk í Siberíu, en su
borg er umsetin af uppreisnar-
mönnunum.
Óvinir keisarans gera út fagra
æfintýra-mær, sem Zangara heitir,
til þess að elta Strogoff og reyna
að ná hinu áriðandi brjefi, sem
hann á að koma til stórfurstans.
Hún er gerð út af svikaranum Oga-.
reff, sem er hægri liönd uppreisn-
arforingjans og fyrverandi ofursti í
rússneska liernum. Nú gerist það a
leið Strogoffs austur, að hann kynn-
ist ungri stúlku, sem Nadja heitir
og er á leið tii Irkutsk til þess að
heimsækja föður sinn. Hann býður
henni að vera henni hjálplegur á
leiðinni og þau halda áfram ferð-
inni þannig, að aðrir farþégar
lialda, að hún sje systir hans. Stro-
goff hefir tekið sjer dulnefni og
kallar sig nú Korpanoff. Á fljóta-
skipi á Volga verður Strogoff tij
l^ess að bjarga Zangöru undan
hrammi tamins bjarnar, sem hefir
ærsl, og ætlaði að drepa stúlkuna.
Síðan er förinni haldið áfram i
troika-sleðum austur yfir sljetturnar
og á þeirri leið verður Strogoff til
þess að bjarga tveimur erlendum
blaðamöiinum frá vísum dauða,
Frakkanum M. Jolivet og Englend-
ingnum Blount. Alt gengur vel
þangað til í Omsk og enginn veit,
að Strogoff er sendiboði keisarans;
en í þeim bæ hittir hann móður
sína, sem af fögnuði yfir að sjá son
sinn hrópar nafn hans upp, svo
að margir heyra. Þekkist hanu þá,
og er þegar í stað tekinn til fanga
af uppreisnarmönnum. Þegar hú.n
sjer, að hún hefir hlaupið á sig,
reynir hún- að láta sem sjer hafi
missýnst og þrætir nú fyrir, að
þetta sje sonur hennar. En þegar
uppreisnarmenn fara að pína hana
til sagna, með því að hýða hana,
getur Strogoff ekki á sjer setið en
slær böðulinn keyrishögg í and-
litið. Strogoff er lagður í hlekki og
hið áriðr.ndi brjef tekið af honum.
Sigfús Valdimarsson prentari
varð 50 ára 22. þ. m.
Einþór B. Jónsson innheimtu-
maður, Grettisgötu k8, verður
60 ára 27. þ. m.
Jónas Jónasson skósmiður,
Laugaveg 91, verður 'tO ára
27. þ. m.
— Ef jeg gifti mig á annað borð
vil jeg giftast hygginni konu.
— Og svo á hún líklega að vera
falleg líka?
— Já, falleg og hafa gaman af
hljómlist. Og góð og eðallynd.
Og meira?
— Já, og náttúrlega rík.
— Þá lilyti hún að vera heimsk
ef hún giftist þjer.
— Já, það á hún líka að vera.
Þannig er byrjun sögunnar, en
hvernig henni lýkur, verður ekki
rakið hjer. Ilinn ágæti þýski leik-
ari Adolf Wohlbrúck leikur aðal-
hlutverkið en Maria Andergast og
Hilde Hildabrand kvenblutverkin
tvö.
ilénry Bay aðalkonsúll verður
sextugur 27. sept.
Magnús Dallioff bóndi í Haga
Ölfusi verður fimtugur 27. þ. m.
jr
I næstci blaði
,,FÁLKANSW
er sagan eftir norska rithöfundinn
Alf Due og heitir: „Þegar þorið
bregsl“. Efni sögunnar er úr daglega
lifinu en meffferff höfumlarins á því
er svo snildarleg, að hver maffnr hef-
ir bæði gagn og yndi af því aff lesa
sóguna.
Þú skrifar Jónas Þorbergssuii
einkar fróðlega grein um ferff, sem
varö eftirminnileg i islenskri sögv.
Greinin heitir „Frá Nev/ Yurk til
Straumness“ og segir sögn hinnar
siffnstn ferffar Goðafoss liins fgrra.
ei lauk í klettunum á Straumnesi
viff ísafjarðárdjúp. Var Jónas út-
varpsstjóri farþegi meff skipinu alla
leiff frá Ameriku í þessari ferff, og
eins og öllum tandsmönnum er
kunnugt, kann hann allra manna
best aff segja frá, og á þann hátl,
aff lesandanum verffi minnisstætt.
í næsta blaði hefst mjr flokkur í
blaffinu, sem kallast „Bókahillan ‘.
Sá flokkur heldur áfram í hverju
blaffi mcffan útkoma nýrra bóka er
sem mest, en þó verffur þar ekki
eingöngu minst á nýjar bækur held-
ur og ýmsar góöar og gagnlegw
bækur, sem áffur hafa komiff út,
en eru þess eðlis, aff aldrei verður
of oft á þær minst.
Á nœstunni verður og tekinn upp
a ný ftokkurinn „Menn sem lifa'.
ÍJr öllum áttum hafa Fálkanúm boi-
ist tilmœli um, aff þessi flokkur
hjeldi áfram. Verffur í framhaldi
hans bæði sagt frá skáldum og
öffrum „mönnum sem lifa“, svo
sem frœgustu tónsnillingum heims-
ins, hugvitsmönnum, málurum o. ;l.
Veturinn fer i hönd. Gerist áskrif-
endur blaffsins frá næstu ársfjórö-
ungsskiftum, svo aff þjer fariff ekki
á mis við ódýrustu heimilisánægj-
una, sem fólk getur veitt sjer.
------ NÝJA BÍÓ. ------------
Skautadrotntaflin.
(A Girl in a Million)
Hin heimsfræga mynd Fox-
fjelagsins, tekin undir stjórn
Sidney Lanfield, ineð heims-
meistara allra skautakvenna.
SONJU HENIE
i aðalhlutverkinu. Helslu Jeik-
endur aðrir eru:
JEAN HERSHOLT,
DON AMECHE og
ADOLPHE MENJOU.
í þessari mynd sýnir Sonja
listir sínar á glæsilegri hátt en
nokkur hefir sýnt áður.
Kemur innan skamms.
Það er víst óþarfi að kynna les-
endum Fálkans Sonju Henie. Þessí
unga norska stúlka vann það til síns
ágætis, að vinna heimspieistaratign í
listhlaupi á skautum tíii ár i röð, og
er það einsdæmi í sögunni um
nokkra manneskju. En að svo búnu
hefir hún víst þóst eiga skilið, að
gerast atvinnu-iþróttakona og fór tii
Ameríku til þess að sýna listir sinar
og leið þá vitanlega ekki á löngu,
þangað til kvikmyndafjelögin fóru
að draga sig eftir henni. Fox-fjelagið
var hlutskarpast og nú sýnir Nýja
Bio á næstunni hina fyrstu mynd
með „hinni töfrandi Sonju“, sein
eigi aðeins hefir liað til sins ágætis
að renna sjer betur á skautum en
nokkur stúlka hefir gert fyr eða
síðar, heldur leikur einnig ágæt-
lega. Þessi mynd „A Girl in a
MiIlion“ þykir hafa tekist ágællega
og va'r hennar beðið með mikilli
eftirvæntingu, ekki síst i Noregi.
Því að aldrei hefir manneskja iagt
út á kvikmyndabrautina með eins
mikla frægð að baki sjer. Nafn
Sonjú Henie var svo frægl, að það
var margra peninga virði, enda var
hún dýrkeypt. En þó er sagt að fje-
lagið hafi grætt margar miljónir
dollara á þessari einu mynd.
Myndin gerist í Sviss. Þangað er
kominn ,,mislukkaður“ hljómsveitar-
stjóri, Tad Spencer (Adolphe Men-
jfiu) ásamt Billie konu sinni og
hljómsveit, sem liann ætlar að l'á
atvinnu handa. Það gengur illa, þvi
að þegar hljómsveitin kemur á
gistihúsið, sem hún hefir fengið
ráðningu við, svöng og krókloppin,
er gistihúsið brunnið. Honum teksl
að koma fólkinu fyrir í litlu gisti-
húsi í bænum, hjá gestgjafanum
Möller, en dóttir hans lieitir Greta.
Það er Sonja Henie. Tad sjer hana
af tilviljun hlaupa á skautum og
sjer, að hún er listamanneskja i
þeirri grein og afræður nú að fá
Iiana til þess að hafa sýningar i Sl.
Moritz og láta liljómsveit sína leika
undir. En nú kemur annar maður
við sögu, blaðamaðurinn Bob Harr-
Framh. á bls. 1J>.