Fálkinn - 25.09.1937, Qupperneq 15
F Á L K I N N
15
20stk.
PAKKINN
KOSTAR
KR.HO
VIRGINIA CIGARETTUR
LAMBERT & BUTLER ENGLAND.
JUNE-MUNKTELL „DMV10“ Dieselmétorinn.
er sjerstakleg-a smíðaður fyrir smá fiskibáta (trillubáta). Hann mun
vera sparneytnasti mótorinn sem hjer þekkist. Öll olíueyðsla yfir
heila vertíð, hefir reynst að fara ekki fram úr 50—60 krónum. Þessi
mótor er mjög einfaldur i meðferð, og sjerlega gangviss. Hann er sett-
ur í gang KALDUR, notar hvorki rafkveikju eða þrýstiloft, patrónu
eða prímuslampa. Olíudælur hinar nafnkunnu BOSCH dælur. Vjelin
gengur í hinum heimskunnu S K F legum, og hefir þrýstismurningu,
og brennir HRÁOLÍU. Þessi vandaði og í hvívetna fullkomni frá-
gangur miðar allur að því að tryggja sem best öruggan gang vjel-
arinnar.
Tveggja ára reynsla er fengin hjer á landi fyrir gæðum þessarar vjel-
ar. Það er ekki einungis einstaklingshagur, að nota þessa vjel, það er
líka þjóðarhagur. Verðið hið alþekta JUNE-MUNKTELL, Leitið allra
upplýsinga sem fyrst, til
GÍSLI J. JOHNSEN
REYKJAVÍK
NÝJA BIO.
Framh. af bls. 2.
is. Þegar hann kemst á snoðir i!m,
hvað i býgerð sje, vill hann fyrir
alla muni afstýra þessu, þvi að
Greta sje of listfeng til að sýna
sig fyrir peninga. Hann vill urn-
fram all láta hana taka þátt í
Olympsleikjunum, sem fara i hönd.
Og honum tekst þetta. Það eru þau
Bob og Greta, sem vitanlega leika
ástaræfintýrið í myndinni.
Það er blátt áfram töfrandi að
horfa á listir Sonju í þessari mynd.
Ef Skautafjelag Reykjavíkur væri til,
mundi það koma i einum hóp á
frumsýninguna. En þó það sje ekki
lil, þá er skautafólk hjer til fyrir
því, og enn fleira, sem hefir gaman
af að sjá heimsfrægustu skautadömu
veraldar leika listir sínar. Þó
ekkert væri annað upp á að hjóða.
þá borgar sig inargfaldlega að sjá
myndina. En liún hefir auk jiess
alt það að bjóða, sem einkennir úr-
valsmyndir Fox-fjelagsins.
Fyrsti tlugmaðnr taeintsins
Simon Magnus og postularnir.
í gamalli „konkordantíu1' segir
svo frá Simoni Magus, sem i Poslul-
anna Gjörningum er talinn liinn
fyrsti villutrúarmaður, er naut mik-
illar heilli hjá Neró keisara. Eftir
sisgn þessari liefir aftaka postulanna
Pjeturs og Páls hlotist út af flugtil-
raunum jiessa manns:
„Sankti Pjetur og Sankti Páll,
þeir tveir miklu postular, voru i
fjarveru keisarans Neró til dauða
dænxdir og á einum sama degi af
lífi teknir, anno Chr. 67 og á þrett-
ánda ríkisstjórnarári keisarans Ner-
onis. Sankti Páll var sem rómversk-
ur borgari hálshöggvinn, en Sankti
Pjetur, sem einn óæðri mann, það
er Gyðingur, var krossfestur. Skyldi
hann á krossinn hengdur með venju-
legum hætti, hvílikt hann sjálfur þó
ekki taldi sjer verðugt, að upp-
liengjast á sama hátt og hans meisl-
ari, en krafðist að höfuðið skyldi
niður snúa.
Astæðan til ]>essarar dýru manna,
svo og margra annara aftöku, er
þessi: Simon Magus, sem með sín-
um svörtu listum hafði komist i
mikið álit, var um þessar mundir
staddur út i Róin, og hafði komið
sjer í mjúkinn hjá keisaranum Neró,
sem hafði mildar mætur á þesshátt-
ar vísindum. Símon Magus hjet keis-
aianum því, að fljúga um loftið og
aírekaði jiað, að sveifla sjer og sínu
flugáhaldi góðan spöl upp í loftið,
en þá báðu Pjetur og Páll ])ess inni-
lega til guðs, liggjandi á sínum
hnjárn, að ofstopa Símonar mælti
Jægja og hrapaði Símon þá til jarð-
ar og braut fætur sína og orsakaði
kvöl sú, sem hann þar við leið,
ilem spott það, sem liann yfirgekk
svo mikla desperation að liann sál-
aðist. Þetta stygði keisarann sao
hróplega að hann ljet postulunum í
myrkvastofu varpa og voru þeir
síðan afteknir“.
Þegar þau voru með öðrum, voru
nýgiftu hjónin altaf að rífast um
hvort þau ætlu heldur að kaupa
sjer mótorlijól með hliðarvagni eða
bíl. Þegar einn kunningi þeirra, sem
ekki hafði sjeð þau lengi, hitti þau,
spurði hann: — Rífist þið ennþá um
hílinn?
— Nei, nú erum við orðin sam-
mála.
— Og hvort varð ofan á?
— Hvorugt. Við urðum sammála
um að kaupa barnavagn í staðinn.
Skák nr. 30.
Alþjóðaskákmótið í Stokkhólmi 193/.
2. umferð. I. borð.
Spænskt.
Hvitt: P. Keres (Eistland).
Svart: tlr. Euwe (Holland).
1. e2—e4, e7—e5; 2. Rgl—f3-
Rb8—c6; Bfl—b5, a7—a6; 4. Bb5—
a4, Rg8—f6; (Sumir álíta d7—d6
betra); 5. 0—0, Rf6xe4; (Venjulegra
og e. t. v. betra er Bf8—e7); 6. d2--
d4, b7—b5; 7. Ba4—b3, d7—d5; 8.
d4xe5, Bc8—e6; 9. c2—c3, Bf8—e7;
10. Bcl—e3; (Venjulegra er Rbl—
d2, Re4—c5; 11. Bb3—c2, o. s. frv);
10.....Rc6—a4; 11. Rf3—d4, 0—0;
(Ef 11.....Ra4xb3, þá 12. Rd4xb3
og hvítt ógnar að vinna mann við
f2—f3. Ef 11...... c7—c5, þá 12.
Rd4xe6, f7xe6; 13. Ddl—h5t og
liindrar hrókun); 12. f2—f3, Re4--
cö; 13. f3—f4; (Betra var að leika
Bb3—c2 og hefja siðan sókn kongs-
megin. Biskupinn er of mikils virði
til þess að rjett sje að gefa færi á
að skifta á honum fyrir riddara,
auk þess sem riddarinn á c5 er ekki
vel settur); 13...... Rc5xb3; 14.
Rd4xc3, Ra5—c4!; 15. Be3—dt,
(Eins og venjulegt er í þessu af-
brigði af spænskaleiknum, stendur
baráttan um reitinn cö. Dr. Euwe
hefir áður komist alvarlega í kynni
við þessa baráttu, sbr. skákina dr.
Botvinnik dr. Euwe Leningrad
1934); 15...... Be6—f5! (Ef 15
.... Rc4xa2 þá 16. Ddl—e2, og
næst f4—f5 sem er eyðileggjandi
fyrir svart); 16. Hfl—f2, a6—a5; 17.
Rb3—c5, a5—a4; 18 Ddl—cl, DdS
—e8; (Reiturinn c5 verður að vinn-
ast, ef þess er nokkur kostur. Peða-
staða svarts drotningar megin er
mjög slæm); 19. Rbl—d2, De8—c6;
20. b2—b4, a4xb3; (í framhjáhlaupi
e. p.); 21. Rd2xb3, Ha8—a3; 22. g2
—g4, Bf5—e4; 23. f4—f5, Be7—h4;
24. Rc5xe4, d5xe4; 25. Hf2—g2, Hf8
—a8!; 26. Rb3—c5; (Staða hvíts
var enganveginn eins þægileg og
ætla mætti við fyrstu sýn. Sumir
álíta að staðan sje unnin á hvítt, en
það verður þó að teljast mjög vafa-
samt. Peð svart á e4 er sterkt og
ógnandi og auk þess verður hvitt
að hafa auga með riddaranum á
b3); 26...... Rc4xe5; 27. Bd4xe5,
Dctixcöt; 28. Be5—d4, Dc5—d5; 29.
Dcl—f4, c7—c5; 30. Bd4xg7, Kg8x
g7; 31. g4—g5, Ha3xc3; 32. Df4x
h4,? (Betra var f5—f6t og síðan
DxB. Eftir þetta er skákin töpuð á
hvítt); 32.....Dd5xf5; 33. Dh4—
h6t, Kg7—g8; 34. Dh6—c6, Ha8—
d8; 35. Dc6xh5, Hc3—d3; 36. Hal—
fl, Hd3—dl; 37. Hg2—f2, Df5—g4t;
38. Kgl—hl, e4—e3; 39. Hf3xf7,
f3—f2; 40. Db5—b3, Hdlxflf, 41.
Hf7xflt, c5—c4;
Það verður eitthvað skritið við
þessa veislu. Við verðum þreltán við
borðið.
— Það gerir ekkert til. Hann
Friðrik kemur og hann jetur fyrii'
tvo.
Það eru aumu vandræðin hvaö
hann Friðrik er orðinn feitur. Nú
er svo komið fyrir honum, að hann
getur ekki fengið neinn tilbúinn
fatnað á sig nema vasaklútana.
Hún: — Jeg má til að kaupa mjer
nýja vasaklúta.
Hanii: —- Veistu ekki að við eig-
um að spara. Geturðu ckki vent
þeim gömlu?
Haldið þjer að hundurinn þagni
ef jeg sparka i hánn?
Líklega. Hann geltir aldrei
|jegar hann er með bein i kjaftinum.
— Ef þjer hypjið yður ekki á
burt, þá kalla jeg á mannilin minn.
Hann er lögregluþjónn og tekur
hvern sem er.
— Já, það má nú segja, þegar
ínaður sjer yður.