Fálkinn - 31.10.1947, Page 5
F Á L K I N N
5
PYNTINGAR^-
Þetta er engin sólgeislasaga. En
því miður er hún of sönn og var
alltof algeng. Hún birtist í Göte-
borgs Handels- og Sjöfartstidning
og segir frá því, sem Norðmaðurinn
Olav Skogen varð að þola i þýska
vitinu á Victoria Terrasse i Osló.
Það sem lá á bak við var m. u.
spellin á þungvatnsverksmiðjunni í
Vemork við Rjúkan — einn liður-
inn i baráttuni um atómsprengjuna.
Eg var handtekinn um jólin 1942.
Það gerðist fljótt og óvœnt. Eg kom
inn um dyr, skammbyssuhlaiip var
rekið i magann á mér og þrír menn
réðust á mig. Eg skildi strax sam-
hengið. Félagi minn, sem hafði ver-
ið handtekinn áður, mundi hafa
verið píndur og meðgengið.
Við rannsóknina á dóti mín fannst
ekkert grunsamlegt. Fyrsta yfir-
heyrslan bar heldur ekki neinn á-
rangur. Eg neitaði og staðhæfði að
fangelsun mín mundi byggjast á mis-
skilningi. Ekki trúðu þeir því. Eg
var læstur inni í klefa, sóttur dag-
inn eftir og fluttur til Osló. Þar var
ég settur í Möllergaten 19 (lögreglu-
stöðina).
Á nýársdag var ég yfirheyrður
í fangelsinu. Eg neitaði og bað um
að láta mig lausan. Gestapomaður-
inn glotti illyrmislega og sagði:
— Við höfum nægar sannanir gegn
yður. Þér gerið bara illt verra með
því að þræta. Eins og þér kannske
vitið ganga ljótar sögur um okkur
Þjóðverja. Við Iiöfum bein í liendi
til þess að konia sannleikanum fram,
og erum kunnir að því að vera ná-
kvæmir. Nú getið þér hugsað um
þetta þangað til næst, þá verðið
þér vonandi hyggnari.
Kvöldið 12. janúar var klefadyr-
unum lokið upp, hendurnar á mér
settur i járn fyrir aftan bak og
ekið með mig á Victoria Terrasse
til næturyfirheyrslu. Eg vissi hvað
etta þýddi.
Fyrst var ég látinn í ískaldan
klefa í kjallaranum. Ljósið var
slökkt og þarna sat ég með bak-
bundnar hendur og' skalf í meira
en klukkutíma. Að svo búnu munu
þeir hafa ha'ldið að ég væri í réttu
hugarástandi undir prófin, og nú
var farið með mig upp. Þeir voru
fjórir saman. Þegar við komum inn
i salinn spurði sá sem slýrði próf-
unum einhvern hinna hvernig J.
liði. Það var félagi minn. Hinn
svaraði: — Hann er alveg búinn.
Það var vist ætlast til að ég heyrði
það.
Eg var scttur á stól á miðju gólfi.
Prófdómarinn tekur fram uppdrátt
og sests við skrifborðið fyrir framan
mig'. Hinir sitja hjá i liægindastól-
um. Prófandinn spyr hvort ég vilji
svara sannleikanum samkvæmt öll-
um spurningum, sem máli skipti.
Fyrst svara ég spurningum viðvíkj-
andi ýmsum dagsetningum. Eg liefi
beðið um túlk og fæ á þann hátt
betri tíma til að hugsa mig um.
Þegar hann spyr hvaða ólöglegum
telagsskap ég sé í, svara ég að ég'
]>ekki ekki neinn slíkan féagsskap.
— Það var l'yrsta lygin! lirópar
liann og ber í borðið. Svo les hann
upp hrafl af framburði félaga míns.
Eg neita og reyni að gefa aðrar
skýringar. Meðan ég er að tala öskra
tveir menn í sífellu inn í eyrun á
mér: — Þér Ijúgið, þér ljúgið!
Þeir skipa mér að setjast á gólfið
og taka af mér sokka og skó, og svo
koma þeir með tréklemmu. Þar eru
lamir á ö'ðrum endanum en skrúf-
þvinga á hinum. Þeir setja hana á
vinstra fótinn rétt fyrir neðan hné
og skrúfa að. Kvalirnar fara eins og
hnífur um merg og bein. Þeir prófa
hvort ég vilji meðganga og skrúfa
svo enn fastar. Eg æpi af sársauka.
Þá segir einn: — Ef þú meðgengur
ekki þá skrúfum við þangað til
löppin dettur af þér. Það skiptir
engu máli fyrir Þýskaland hvort þú
drepst í kvöld! Eg veit það, en svo
eru aðrir á annarri skoðun, og mér
þykir vænt um a'ð þeir sjá mig
ekki núna. Eg svipast um kringum
mig í salnum og er að hugleiða
hvort ævin eigi að enda svona —
það yrði þá ekki i fyrsta skipti,
sem norskur maður væri myrtur í
þessari byggingu. Ákærunum rignir
yfir mig -— meðlimur í vopnaðri
sveit, undirbúningur speljvirkja,
vopnabirgðir, útvarpstæki o. s. frv.
Þeir herða á skrúfunni. Fóturinn er
nú orðinn eins og' klumpur, sem
engin fótslögun er á. Þeir skipa mér
að standa á heilbrigða fætinum, slá
mig svo niður og skipa mér að
standa á fætur aftur. Draga mig
nokkrum sinum eftir gólfinu á liár-
inu. Svo taka þeir fram kylfur og
byrja að berja. Verst er þegar þeir
slá á endann á klemmunni, sem er
um fótinn. Eg er alveg hissa á að
fóturinn skuli ekki hrökkva sundur.
I3riðji maðurinn stendur og slær mig
á fæturna með kylfu, svo að ég
verð tilfinningalaus. Þeir reyna nú
aftur að fá mig til að gera játningu
og síðan byrjar barsmíðin aftur.
Þeir vilja vita nöfnin á öllum hin-
um í félagsskap mínum — en ég
„þekki ekki neinn félagsskap“. Eg
er nú að heita má orðinn nieðvit-
undarlaus af kvölum. Þeir taka klennn
una af mér og segja a'ð þeir muni
setja klemmur á báða fætur seinna,
ef ég meðgangi ekki. Prófandinn tek
ur saman og fer út, ergilegur á
svipinn. Eg er læstur niðri i kjall-
ara og eftir nokkra stund er ég
fluttur aftur i Möllersgötu 19.
Mig sáryerkjar í fótinn og ég'
get ekki stigið í hann fyrstu dag-
ana. Eftir þessa yfirheyrslu er farið
ver með mig i fangelsinu, ég fæ
ekki að vera úti í garðinum með
hinum föngunum og fæ ekki bað.
En mér þótti vænt um að hafa
staðist fyrstu raunina og hafði feng-
ið trú á að Gestapo-aðferðirnar
væru ekki óvinnandi.
Það var hart taugastríð að eiga
von á nýrri yfirheyrslu á hverju
kvöldi, þegar sparkað heyrðist með
reiðstígvélum á múrgólfinu fyrir ut-
an klefadyrnar, meðfangarnir vorti
kvaldir og óp þeirra heyrðust í
næturkyrrðinni, eða þegar nábúinn
barði á klefaveg’ginn og leitaði hugg-
unar þar sem hann beið eftir af-
tökunni.
Seint um kvöldið þann 1. mars
var kveikt í klefanum hjá mér,
hurðin opnuð og inn koniu nokkrir
Gestapoistar og ráku mig upp úr
rúminu. Eg varð að flýta mér í ein-
hverjar spjarir. Eg vissi hvað á
spýtunni hékk. Ef til vill átti að
pynta mig til bana í nótt.
Eg varð að bíða nokkra stund á
Victoria Terrasse meðan þeir voru
að fá sér vatn að drekka. Maður
situr fyrir framan mig og lieldur
vörð, leikur sér að foringjasverði,
sem hann liefir stolið og á er letr-
að „Pro Patria“. Við og við horfir
hann á mynd af Hitler, sem hangir
á veggnum. Það á víst að heita sv:>
sem hann sé alúðlegur í viðmóti.
Stundum lítur liann fautalega til mín
Hinir tveir koma inn, segja að þeir
hafi sannanir fyrir því að ég hafi
logið við fyrri yfirheyrsluna og
hvetja mig til að meðganga allt. Eg
svara að ég hafi ekkert að segja
umfram það sem ég hefi þegar sagt.
— Þú lýgur, svínið þitt, og þú lýg-
ur djarft! Þýskaland vill fá að vita
sannleikann! — Sannleikann fyrir
Þýskaland! hrópar annar í ofsa og
rekur mér hnefahögg í anditið svo
að ég velt útaf niður á gófið. Síðan
taka þeir til óspilltra málanna allir
þrír. Einn tekur fyrir kverkar mér
og þrýstir hnjánum á bringuna á
mér, annar fer að skrúfa klemmur
á báðar fætur, og' sá þriðji fer
úr jakkanum og fer að berja mig
af alefli. Kvalirnar undan höggun-
um og klemmunum eru voðalegar,
og jafnframt get ég varla náð and-
anum. Við og við losa þeir ofur’-
lítið á takinu á hálsinum á mér til
að lieyra hvort ég vilji meðganga •—
síðan er hert enn meira á skrúf-
unum og nýjum höggum rignir ýfir
mig. Loks er „réttarstjórinn“ orð-
inn svo þreyttur af barsmíðinni að
svitinn bogar af honum. Annar mað-
ur tekur við af honum og' lemur
með ýmsum bareflum á víxl, kylf-
um, stöfum og keyrum. Eg reyni
eins og ég get að hugsa ekki um
kvalirnar — reyni í staðinn að
kenna sigurfagnaðar fyrir hvert
högg' sem ég ])o!i. Það svíar, og
þeir berja ál'ram þangað til ég
missi meðvitundina.
-----— Eg er búinn að fá rænu
aftur. Þeir taka klemmurnar af fót-
unum og setja þær á framhand-
leggina. Þeir reyna að ógna mér
til að meðganga, og til að gefa upp
nöfn, og' berja roig svo þangað til
að ég verð meðvitundalaus aftur.
Þannig heldur áfram góða stund. Þeir
verða þyrstir af áreynslunni og taka
sér livíld og drekka vatn. Eg er sár-
þréyttur eftir yfirliðið og bið um
vatn. Mér er réttur bolli, og um
leið og ég rétti fram skjálfandi hönd-
ina eftir honum er barið á hand-
legginn á mér. — Segðu sannleik-
ann, þá skaltu fá öl! Þeir sitja og
tala saman um spellvirki, sem ég
síðan heyri að er sprenging þunga-
vatnsframleiðslunnar á Vemork, sem
hafði gerst nóttina áður. Þeir eru
æfir út af sprengingunni og bölva
mér fyrir að vilja ekki segja neitt.
Réttarstjórinn: — Eg skil þetta ekki.
Hann er alveg búinn og samt vill
hann ekkert segja. Þetta hefir aldrei
komið fyrir mig áður. Hvernig eig-
um við að drepa hann? spyr einn.
— Við ættum að hengja hann upp
á vegg og láta hann lianga þar í
nokkra daga, þangað til hann sálast.
— Nei, við höggvum af honum haus-
inn, segir annar. Við höfum öxi
hérna.
Svo leggja þeir höfuðið á mér
á stól, taka fram stóra öxi og leggja
hana að linakkanum á mér, taká
fram úr og gefa mér fimm mínútna
umhugsunartíma. En ég hefi séð
eggina á öxinni og að hún er ekki
nógu beitt til þess að höggva höfuð
af manni með. Hvernig þessar fimrn
mínútur liðu man ég ekki, því að
það leið yfir mig aftur. Það er
rétt svo að mig rámar i að mér
væri lyft upp af gólfinu, borinn
niður stigann og ekið með mig í
Möllergaten.
Svo komu nokkrir slæmir dagar.
Eg var svo máttfarinn að ég' gat
ekki haldið á vasaklút. Missti oft
meðvitundina og kvaldist ákaflega
af þorsta. Fyrst í stað gat ég að-
eins skriðið á maganum í klefanum,
síðar staulaðist ég á hnjánum, en
það leið hálfur mánuður þangað til
ég gat staðið i fæturna. Eg gat ekki
komið neinum mat niður í hálfan
mánuð. Eg liafði miklar kvalir inn-
vortis og kastaði upp blöði, en út-
vortis var ég svartur af mari og
storknu blóði eftir barsmíðina. Mér
var ákaflega kalt — nötraði oft all-
ur af kulda. Eg bað um að fá lækn-
ir til að koma til mín, en liann kom
ekki fyrr en viku síðar. Hann tal-
aði eitthvað um heilahristing.
Tíu dögum eftir yfirheyrsluna
komu Gestapoistarnir aftur seint
um kvöld til þess að sækja mig í
3. stigs yfirheyrslu, sögðu þcir. Þeir
ætluðu að mölva í mér hvert bein-
ið eftir annað, þangað til ég með-
gengi. Það var mikill brennivíns-
þefur af þeim þegar þeir komu inn
i klefann. Þegar þeir sáu hve veik-
ur ég var, sögðust þeir ætla að sækja
mig seinna, þegar ég væri orðinn
dálitið hressari og ekki liði eins
fljótt yfir mig. Og þá ætluðu þeir
að fá upplýsingar um allar Jeyni-
vopnasveitirnar í Rjúkan.
— — — Þeir komu aldrei aftur.
Eg var sendur til Grini, síðar sem
N.N.-fangi til Þýskalands, fyrst 11
mánuði í Natzweiler, síðar sjö mán-
uði í Dachau. Við vorum 80 sem
fórum saman til Natzweiler —
fimmtíu þeirra sáu Noreg aldrei
aftur. Síðan ég komst aftur til Nor-
egs fyrir aðstoð sænska Rauða
Krossins hefi ég staðið augliti til
auglitis við hina fyrrverandi böðla
mína, sem ákærar.di þeirra. Þessir
menn hafa ekkert lært af því dæmi,
fyrrverandi fangar þeirra gáfu
þeim. Það er enginn sem skrúfar
klemmur á þá eða lemur þá, en
framkoma þeirra er lævísleg og
smeðjuleg og þeir eru fúsir á að
segja frá syndum félaga sinna.