Fálkinn - 18.03.1949, Page 7
FÁLKINN
7
Stjórnarmiðstöö nasistanna spr engd í loft upp. 1 Bevlín era Rússar önnum kafnir við að
afmá öll merki um nasistastjórnina. Hér er röðin komin að ríkiskansellíinu“ uið Wilhelm
Platz, en þaðan sendu nasistaforkólfarnir fyrirskipanir sínar í allar áttir. Af svölunum sem
sjást á myndinni, hélt Hitler margar hinar mergjuðustu ræður sínar, og þar var hann hyllt-
ur af fjöldanum.
Til hægri:
Lindbergli í Þýskalandi. Charlés
Til vinstri: Lindberg, ftugkappinn heims-
Málverk af Eisenhower var ný- frægi, er nú farinn til Þýska-
lega gefið breska herskólanum í lands til þess að vera viðstadd-
Aldershot. Hernaðarráðunautur ur flugæfingar ameríska hers-
Bandaríkjanna.í London, John ins. Hér sést hann (t. h.) á
IV. Leonard afhenti málverkið flugvellinum í Nebiberg við
og sést hér afhjúpa það. Miinchen.
Auga til sölu. Það er ótrúlegt,
en satt, að hver, sem vill, getur
fengið annað auga þessa manns
keypt fyrir 8.000 dollara. Mað-
urinn er 37 ára gamall bifreið-
arstjóri í New York, sem kom-
ist hefir í miklar fjárkröggur
vegna langvarandi veikinda
konu sinnar.
Rússnesk herganga á breska hernámssvæðinu. — / Triegarten, á hernámssvæði Breta i Berlín,
er hið mikla styrjaldarminnismerki, sem Rússar létu gera á sínum tíma. Þegar Rússar
minntust 31 árs afmælis Rauða hersins, var að sjálfsögðu lagður blómsveigur við minnis-
merkið. Myndin er af göngu 2000 rússneskra hermanna á hernámssvæði Breta á leið til
minnismerkisins.
Innflytjendur. Fjöldi Eng-
lendinga streymir nú til Ástral-
íu. Nýlega fóru 2000 manns, þar
af k50 börn frá Liverpool til
þess að setjast að í Ástralín.
Hér sést ein fjölskyldan.