Fálkinn - 16.03.1951, Síða 11
FÁLKINIS
11
¥ITI» ÞÉR . . ?
að rottan, „óvinur mannkynsins nr.
1“ æxlast hraðar þegar verið cr a,ð
reyna að útrýma henni.
Amerískar rannsóknir í borgar-
liverfum, sem verið var að útrýma
rottum í, sýndu, að viðkoman hjá
rottum þeim, af lifðu af „striðið“
varð miklu meiri en í meðallagi,
svo að rotturnar urðu bráðlega eins
margar og fyrir „útrýminguna“. Á-
stæðan til þessa er talin sú, að rott-
urnar sem eftir lifa fái svo miklu
meira æti en þær höfðu áður að
allir rottuungarnir komist upp, en
venjulega fellur mikið af þeim af
matarskorti.
Af þessu má ráða að útrýming
rottunnar er árangurslaus nema
samtímis sé séð fyrir því, að rott-
urnar ná ekki i æti.
að Amerikumenn hafa gert eins kon-
ar ,,björgunar-loftlœki", sem á að
sýna, björgimarmönnum leið til skipa
sem farast.
Loftbelgurinn er festur við borð-
stokkinn eða þóftuna á bátnum,
málaður með rauðgulum lit, sem sést
vel í dagsbirtu, en inni i belgnum
er lampi, svo að belgurinn sést líka
í myrkri. — Þegar belgurinn er ekki
notaður fer litið fyrir lionum, en
undir eins og liann vöknar fyllist
hann sjálfkrafa af lofti, frá brint-
gcymi, sem er áfastur við hann.
Á myndinn, sem er tekin úr „Life“
sést hve vel belgurinn lýsir í myrkri.
EFTIRSÓKNARVERÐASTIR.
Kaupsýslumenn 180 cm. á hæð,
með 50 þúsund króna árstekjur, eru
eftirsóknarverðustu eiginmennirnir.
Þetta urðu úrslit atkvæðagreiðslu á
kvennaskólanum i Green Mountain í
U.S.A. Læknar hrepptu annað sætið
og málaflutningsmenn það þriðja.
MILLI VINA.
Ungfrú Sidonie Gerver, sem er 56
ára, fékk nýlega 8 daga fangelsi fyr-
ir að hafa barið Archille Gerard,
sem er 61 árs og hefir búið með
henni í mörg ár. Hún sakaði hana
um að hafa stolið tönnunum sinum
og barði hana svo með straujárni.
Á eftir fann hún tennurnar i vatns-
glasi.
HÆTTULEGAR SÖGUR.
Tólf ára drengur i Garmisch Part-
enkirchen, Bernhard Marliemke að
nafni, liafði gaman af að lesa reyf-
ara í rúminu á kvöldin. Eina nótt-
ina sofnaði hann eftir að hafa lesið
afar spennandi sögu. Allt i einu rauk
hann upp úr rúminu og liljóp út
um gluggann. Það var tíu metra fall.
Hann vaknaði á götunni handleggs—
brotinn báðum megin með sprungna
hauskúpu og fleiri limlestingar. „Mig
dreymdi að bófar væru að elta mig,“
sagði hann við læknana á sjúkra-
liúsinu.
SHERRY ER EKKI MJÓLK.
Firmað John Iiarvey & Son i
London hefir i þrjú hundruð ár selt
.Æristol Milk“ og „Bristol Cream“
og eru báðar vörurnar taldar með
bestu sherrytegúndum í lieimi. Nú
liefir matvælaráðuneytið brcska kraf
ist þess af firmanu að það sé ó-
svikin mjólk eða rjómi, sem það
selur undir þessum nöfnum. Ef það
tekst ekki verður firmað að breyta
um nafn á vörunum.
KÝRIN SEM NJÓSNARI.
Bóndi frá Montallegro á Sikiley
missti fyrir nokrru kúna sína og
kálfinn. Þeim hafði verið stolið.
Lögreglan var látin vita, og þremur
dögum síðar fannst kýrin á beit ná-
lægt þorpi einu eigi langt frá. Hún
var teymd heim, en eirði illa og
reyndi að komast á burt. Lögreglu-
þjóninum hugkvæmdist nú að láta
kúna fara leiðar sinnar og sjá hvað
hún gerði. Ef til vill fynndi hún
stolna lcálfinn. Kúnni var sleppt og
nú rásaði hún viðstöðulaust í næsta
þorp, stansaði þar við fjósdyr og
baulaði og stangaði hugðina. Þegar
lögreglan opnaði dyrnar fannst kálf-
urinn þar. Að vísu var búið að skera
hann og gera hann til, en eigandinn
hafði það þó upp úr krafsinu að
þjófurinn fékk makleg málagjöld.
BURT MEÐ FLIBBANN!
Verkamenn með flibba og hatt
„afneita randa stéttar sinnar11, segir
verkamannafélagsstjórnin i Falke-
nesi, skammt frá Berlín. — Hún
fordæmir hattinn, sem „eitt af tild-
urcinkennum borgaranna“ og skor-
ar á verkamenn, að „scgja félögum
sínum frá þessu.“ Virkilegir verka-
menn hafa ekki framar efni á þess
háttar borgaralegu glingri. Þeir hafa
hvorki tima né peninga til að ganga
með lireinan flibba upp á hvern
dag, segir cnnfremur. Skyldu þeir
ekki nota skyrtur mcð áföstum flibba
i Rússladi — eða eru allar skyrtur
þar saumaðar flibbalausar?
- 1ÍSKII1 V\DIK -
Skjólgóð og falleg. — Hér er
nýtt snið á hettunni. Hún er
framlengd í klút eða trefil sem
lagður er fram á barminn og
festur með belti eða slegið aft-
ur um hálsinn. í hettuna er not-
að gervi lambskinn í falleg-
um gulum lit og fóðrað með
jersey.
Þetta grennir. — I Ameríku
kjósa þær helst að skíðafötin
séu svört, en til þess að lífga
svolítið upp eru herðastykkið
og kraginn hvítt. Rennilás er
framan á jakkanum og á smá-
vösunum á börmunum.
Nýtt frakkasnið. — Jacques
Griffe hefir hér framleitt ó-
vanalegan fínan frakka með
þríhyrndum hlébarða uppslög-
um. Takið eftir litla kraganum
og mj,óa beltinu.
Fín dragt. — Þessi fallega
dragt úr silfurbrokaði með ein-
földu en fallegu sniði sem ekki
fer fljótt úr tísku, er vel fallin
til að nota hana í alls konar
samkvæmi með og án blússu.
Finn maður kom inn í matarbúð
og spurði eftir niðursoðnum bjúg-
um.
— Já, þau eru til.
— Hafið þér niðursoðin bjúgu
frá Karel?
Já, við höfum einmitt Karelsbjúgu
núna.
— Eru þau sæmileg?
— Meira en sæmileg, þau eru
sérstaklega Ijúffeng.
•—■ Gaman að licyra það. Eg er
ncfnilega Iíarel, og nú þætli mér
vænt um að þér hættuð að senda
mér kvörtunarbréf út af bjúgunum
mínum.
\