Fálkinn - 06.06.1952, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
Sýning Halldérs
Péturssonar
Halldór Pétursson list-
málari og teiknari, hefir
um þessar mundir sýn-
ingar á ýmsum verkum
sánum í Listamannaskál-
anum. — Eru myndirnar
flokkaðar niður í olíu-
málverk, vatnslitamynd-
ir, myndir úr islenskum
þjóðsögum, steinprentan
ir og skopmyndir.
Halldór er fyrir löngu
landskunnur teiknari og
afkastamikili listamaður.
Hin mikla fjölbreytni í
myndagerð og tjáningar-
snillin, sem lýsir sér sér-
staklega í teikningunum,
gerir það að verkum að
marga mun fýsa að
skoða sýningu Halldórs
Péturssonar.
Elsta kona landsins
/
105 ára
Iíelga Brynjólfsdóttir,
Kirkjuvegi 20 í Hafnar-
firði varð 105 ára á
hvítasunnudag. Hún er
því vafalaust elst núlif-
andi íslendinga. Helga
er fædd í Kirkjubæ á
Bangárvöllum árið 1847.
Árið 1880 giftist hún
Stefáni Guðmundssyni,
sem hún missti á öðru
hjúskaparári. Hefir hún
því verið ekkja í 70 ár.
Helga 'hefir átt heima á
ýmsum stöðum, en síð-
ustu 44 árin í Hafnar-
firði. Hún er ennþá
hress i bragði, klæðist á
hverjum degi og gengur
um húsið, en ekki hefir
hún farið út í vetur.
KROSSQATA HR. 864
Lárétt skýring:
1. lóga, 7. evrópsk höfuðborg, 11.
blauðar, 13. stillta, 15. þyngdarmál
(skst.), 17. hyski, 18. bilun, 19. skst.,
20. kveikur, 22. tveir samhlj. eins,
24. upphafsstafir, 25. fæddu, 26. kven-
mannsnafn, 28. glópar, 31. skógardýr,
32. tæp, 34. forfeður, 35. skyndidauði,
36. verkur, 37. tólf mánuðir, 39. ell-
efu, 40. rúmfat, 41. bera á borð, 42.
fæða, 45. forsetning, 46. sérliljóðar,
47. flýtir, 49. trúir illa, 51. pappírs-
blað, 53. sorg, 55. ellihrumt gamal-
menni, 56. brask, 58. sáðland, 60.
peningar, 61. tveir sérhljóðar, 62. sam-
tenging, 64. skel, 65. mynteining (sk-
st.), 66. þvaður, 68. elur upp. 70. glima,
71. slarka, 72. töluorð, 74. seppi. 75.
karlmannsnafn.
Lóðrétt skýring:
1. prýða, 2. sbr. 22. lárétt, 3. op, 4.
sbr. 68. lárétt, 5. þramm, 6. fótabúnað,
7. liöfuðborg i rússnesku leppríki, 8.
þvarg, 9. æðsti guð Forn-Egypta, 10.
matvörutegund, 12. smjörlíkistegund,
14. hlýjar, 16. bölva, 19. kæra, 21. fjölg-
unarstöð, 23. orðagjálfrarar, 25. vin-
sæl sælgætistegund, 27. tvíhljóði, 29.
öfugur 'tvíhljóði, 30. örsmæð, 31.
handverkfæri (þf.), 33. afríkanskur
jjjóðflokkur, 35. venja, 38. iðnaðarefni,
39. tólf, 43. heldur hvorki vatni né
vindi, 44. forfeður, 47. bæta við, 48.
gabba, 50. rykögn, 51. skeyti, 52. tíma-
eining (skst.), 54. tveir samhijóðar
eins, 55. ávirðingar, 56. dansleikur,
57. kyrrð, 59. bjálfar, 61. rati, 63. æða,
66. hryggur, 67. tónfall, 68. brir eins,
69. fiskmat, 71. uppliafsstafir, 73. tveir
samhljóðar.
SOGSVIRKJUNIN.
Framhald af bls. 3.
í júní 1945 samþykkti bæjarstjórn
Iteykjavikur að koma upp varastöð í
Reykjavík og beita sér jafnframt fyrir
viðbótaraukningu í Sogi. Árið 1946 og
næstu árin tóku Rafmagnsveitur ríkis-
ins að tengja raftaugar sinar við Sogs-
virkjunina. — Fyrst var lögð Reykja-
neslína frá Hafnarfirði til Keflavíkur,
Garðs og Sandgerðis, en síðar til
Grindavíkur, Voga og Vatnsleysu-
strandar. Þá var iögð Selfosslina frá
Ljósafossi að Selfossi og þaðan til
Eyrarbakka, Stokkseyrar og víðs veg-
ar um Flóann, vestur til Hvergagerð-
is og niður um Ölfus og austur um
til Þykkvabæjar, Hellu, Hvoihrepps
og í Fljótshlið.
Þegar lögin um virkjun Sogsins
höfðu verið endurskoðuð, tilkynnti
ríkisstjórnin að hún myndi nota á-
kvæði laganna um að gerast meðeig-
andi í virkjuninni. Samningar um það
voru undirritaðir 30. júlí 1949 og
fyrsta stjórn Sogsvirkjunarinnar skip-
uð fulltrúum beggja eigendanna frá
1. degi ágústmánaðar 1949. Skyldu
eignarhlutföll eigendanna vera þau,
að Reykjavikurbær ætti 85%, en rík-
issjóður 15% 1 Sogsvirkjuninni eins
qg hún var þá, en þegar írafossstöð-
in væri komin upp, skyldi Reykja-
víkurbær eiga 65% en rikissjóður
35%.
Þegar lögin um virkjun Sogsins
höfðu verið endurskoðuð, var haldið
áfram undirbúningi að virkjun neðri
Sogsfossa, Kistufoss og írafoss, í
einni stöð.
Skyldi stöðin standa austanundir
írafossi, og skyhli setja upp tvennar
vélasamstæður, á fyrsta virkjunar-
stigi, 31000 kw. samtals, en stöðin
skyldi gerð fyrir þrennar vélasam-
stæður fullvirkjuð. í
Fjáröflun tókst fyrir milligöngu
ríkisstjórnarinnar, þannig, að efna-
hagssamvinnustofnunin (Economic
Cooperation Administration) sam-
þykkti fjárveitingu að upphæð 3.995
000 Bandaríkjadali, en Alþjóða-
bankinn (International Bank for
Reconstruction and Development)
veitti lán að uppliæð 723.000 sterlings-
pund til kaupa á vélum og efni er
greiða þarf'i Norðurálfugjaldeyri.
Ennfremur liefir verið veitt lán úr
mótvirðissjóði ríkisins, að upphæð kr.
54.000.000 —, til þess að standa
straum af innanlandskostnaði við
virkjunina fram til þessa, umfram
það, sem innlent skuldabréfalán og
beint framlag Reykjavíkurbæjar
nemur. Áætlaður heildarkostnaður
virkjunarinnar er 165 milljónir króna,
þar af er stífla, stöð og mannvirki
við írafoss 125 milljónir, háspennu-
línan til Reykjavíkur 19 milljónir og
aðalspennistöðin við Reykjavik 21
milljón.
Aðalsamningur um framkvæmdir
voru undirritaðir i Reykjavík í júlí
1950. 2. ágúst var virkjunarstaðurinn
skoðaður af hinni nýju stjórn Sogs-
virkjunarinnar ásamt fulltrúum efna-
hagssamvinnustofnunarinnar og und-
ir eins á cftir byrjuðu jarðýtur fyrstu
vinnuna að virkjuninni, en þegar
áður hafði vegagerð ríkisips unnið
að vega- og brúagerð fyrir virkjunina.
í Reykjavik búa nú 58.000 manns,
á orkuveitusvæði Sogovirkjunarinnar
82.000 og af þeim hafa 75.000 fengið
rafmagn frá Sogsvirkjuninni. Á öllu
íslandi búa 147.000 manns.“
LAUSN Á KR0SS6. NR, 863
Lárétt ráðning:
1. togarasjóménn, 12. Kári, 13. esp-
að, 14. lauf, 16. Jim, 18. kór, 20. grá,
21. an, 22. orf, 24. sem, 26. Ir, 27.
skaut, 29. eiðar, 30. te, 32. inngang-
ur, 34. SS, 35. afa, 37. dd. 38. hr, 39.
ala, 40. kaka, 41. au, 42. XV, 43. fróm,
44. eða, 45. sr, 47. ab, 49. iðn, 50. RI,
51. akbrautir, 55. II, 56. strok, 57. aul-
ar, 58. IV, 60. tað, 62. rak, 63. ég, 64.
mær, 66. mál, 68. uuu, 69. glóð, 71.
nafar, 73. spár, 74. atvinnukreppa.
Lóðrétt ráðning:
1. táin, 2. orm, 3. GI, 4. R.E., 5. ask,
6. spói, 7. jag, 8. óð, 9. el, 10. nag,
11. nurl, 12. kjaftakerlingar, 15.
farmsamningur, 17. grand, 19. feður,
22. oki, 23. fundarboð, 24. Sighvatur,
25. mar, 28. T.G., 29. en, 31. efaði, 33.
at, 34. slóði, 36. aka, 39. Ari, 45. skraf,
46. NA, 48. bilar, 51. att, 52. rk, 53. ua,'
54. rak, 59. væla, 61. gáfu, 63. éuáa,
65. rót, 66. pian, 67. lak, 68. upp, 70.
ðv, 71. NN, 72. rr, 73. S.P.
ooooo