Fálkinn - 26.03.1954, Side 10
10
FÁLKINN
Vitið þér...?
hvers vegna' rákir eru hafðar á
hjólbörðunum?
Maður skyldi ætla að þetta væri
fyrst og fremst gert til þess að hjólin
nái betri festu og viðnámi á vegunum.
, En á þurrum vegi grípa slétt hjól eins
vel og Iirufótt. í röku vcðri getur
myndast örþunn en afar liál saman-
hangandi vatnshimna á veginum.
Sléttur hjólbarði mundi aka ofan á
þessari himnu og geta skrikað. En
hrufóttur barði slítur himnuna sund-
ur, því að vatnið þrýstist inn i rifurn-
ar. Og gúmmíið snertir sjálfan veginn,
sem eklci er háll.
að ýms dýr nota „snorkel“?
„Snorkel" er pípa sem kafbátarnir
nota til þess að ná til sín lofti þegar
þeir eru i' kafi. Fílarnir nota ranann
á sér sem snorkel og liggja oft i kafi
i tjörnum með endann á rananum upp
úr vatnsborðinu til þess að geta náð i
sig lofti. Fleiri dýr í Afríku nota
sömu aðferðina: að hafast við í kafi
með nasirnar einar upp úr.
að það var strax árið 1910, sem
menn reyndu að hcfja sig til flugs
í flugvél af herskipi?
Fyrstur allra til þess að hætta sér
út í þennan erfiða leik var Ameríku-
maðurinn Eugene Ely. Um borð í
beitiskipinu „Birmingham“ var gerð
30 m. löng og 8 m. breið flugbraut í
stafni, var hún 10 m. fyrir ofan sjáv-
armái. Skipið var látið fara með 10
hnúta hraða á klst. upp í vindinn og
með herkjum tókst Ely að ná sér upp
er hann rann fram af brautarendanum.
I>að er cngin furða ]x> að sumt fólk
sé síkjaftandi, því að læknar segja að
vöðvatægjurnar í tungunni séu svo
sterkar að þær mundu geta lyft 150
kílóum. En fíngerðar eru ])essar tægj-
ur, því að ef þær væru skeyttar sam-
an nnindi verða úr þeim þrettán kíló-
metra langur þráður. Tungan er eini
vöðvinn í mannslí'kamanum, sem ekki
hefir festu nema í annan endann, og
]>ess vegna er hún hreyfanlegust af
öllum vöðvum.
#
Þegar Edmund Burke, enskur
stjórnmálamaður á 18. öld, hélt eina
af sínum allra merkilegustu ræðum —
um England og nýlendurnar í Ame-
riku — þótti hún svo leiðinleg að
flestir týndust út úr þingsalnum með-
an á henni stóð. Burke þótti yfirleitt
svo leiðinlegur ræðumaður að enginn
vildi hlusta á hann ótilneyddur. En
undir eins og ræðurnar koniu á prent
vildu allir lesa l>ær, þó að liann væri
langorður. Burke var níu daga að
flytja eina ræðu sína.
*
Menntamenn stama miklu meira en
ómenntað fólk, og það er hrein und-
antekning ef fávitar stama. Það er
kunnugt, að stam kom fyrir meðal
Rómverja til forna, en hjá frumþjóð-
um veraldarinnar þekkist það varla.
#
Ymsir heimsfrægir menn hafa
stamað. Eitt af siðustu dæmunum er
Georg VI. Bretakonungur, faðir nú-
varandi Englandsdrottningar. Dæmi-
söguhöfundurinn Espó stamaði, enn-
fremur Virgilius, Charles I.amb,
Demosþenes (þangað til hann vandi
sig af því) og Charles Kingsley. Það
er einnig fullyrt að Móses gamli hafi
stamað, lionum var „erfitt um tungu-
tr.k“. Maðurinn sem vandi George
Englandskonung af að stama hét Lio-
nel Logue og var nýkominn frá Ástra-
líu þegar hann var fenginn til að
lækna stam Georgs konungs, sem þá
var hertogi af York. Ilöfðu níu stam-
læknar gefist upp við að venja her-
togann af staminu þegar Logue kom
til sögunnar. En Logue tókst það.
Ilertoginn var fyrsti maðurinn sem
hann stundaði, svo að ekki er að
spyrja um að Logue hafði nóg að gera
eftir það.
#
Einvígi hafa farið fram milli
kvenna. Árið lf>f>5 háðu t. d. tvær
franskar stúlkur skammbyssueinvígi
— ríðandi. Þær hittu aldrei, en ein-
vígisvottarnir skemmtu sér vel.
#
Sænskur fiskimaður missti gler-
augun sín í sjóinn. Tveimur mánuð-
um síðar fann hann gleraugun i maga
á þorski, sem haiyi veiddi.
PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI
1. mynd: „Hvað er þetta?“ ségir Pína. „Það er eins og svartir handleggir
komi þarna út um gat.“ — 2. mynd.: „Pína og Pusi,“ heyrist kallað frá gatinu.
„Þetta er Siggi svarti!" hrópa þau bæði. „Hann kemst ekki út.“ — 3. mynd:
„Ég kem undir eins og 0)>na dyrnar," segir Pusi. — 4. mynd: En Pusi er svo
lítill, að hann getur ekki opnað dyrnar. Hann nær ekki upp í lykilinn. „Bara
að ég hefði stiga.“ — 5. mynd: Inni í garðinum er stigi, sem hann getur notað.
— 6. mynd: „Pína, komdu og hjálpaðu mér,“ kallar Pusi. — 7. mynd: Þau
bera stigann að skúrnum. — 8. mynd: Pusi getur samt ekki opnað.
Hann hefir ekki afl til að snúa lyklinum. Hvernig eiga þau þá að opna?
— .... Það er ekkert óvenjulegt
við þetta tilfelli yðar, en ég hefi aldrei
rekist á það hjá lifandi manni áður.
Uppþvottasnillingurinn.
Fær í allan sjó.
— Já, ég er farin að venda flibb-
unum á slitnustu skyrtunum þínum.