Fálkinn - 27.08.1954, Síða 5
FÁLKINN
5
Ári eftir atburðinn i Mayerling
fórst Jóhann erkihertogi, sem var
þremenningur keisarans og mikill
vinur Rudolfs. Hann liafði afsalað
sér öllum erfðaréttindum og tekið sér
nafnið Johann Orttt og gifst dans-
meynni Milly Stubet. Yorið 1890
lögðu þau i sjóferð suður fyrir Ame-
ríku og ætlðu til Valparaiso. En skipið
kom aldrei fram og enginn veit hvar
það fórst.
í mai 1897 liafði hertogafrúin af
Alencpn, Sopliie systir Elísabetar
drottningar, gengist fyrir góðgerða-
basar i skála í Paris, ásamt ýmsum
hefðarfrúm öðrum. Þar átti að sýna
skuggamyndir, en þegar minnst varði
sprakk olíulampi i vélinni og áður en
varði stóð skálinn í björtu báii. Þar
fórst hertogafrúin og yfir hundrað
manns. Hún hafði verið uppáhalds-
systir Elísabetar og sú af mágkonum
Franz Josephs, sem liann mat mest.
Var það því mikið áfall þeim báðum
er hún brann inni.
En beiskjubikar keisarans var enn
ekki drukkinn í. botn. Þann 1. sept-
ember 1898 var Elisabet drottning
stödd í Geneve. Hún var, ásamt hirð-
frú sinni, á leið frá gistihúsinu Beau
Rivage, sem hún liafði dvalið í, niður
að bryggju, er ítalskur ævintýramað-
ur, Luigi Lucclieni, kom hlaupandi að
vagni liennar og rak langa, mjóa þjöl
i brjóstið á henni. Drottningin missti
meðvitundina þegar í stað og tveimur
tímum síðar var hún skilin við. Þetta
dýrslega morð vakti viðbjóð um allati
heim. Luccheni gerði þá grein eina
fyrir verknaði sinum, að hann hefði
langað til að drepa „einhvern höfð-
ingja sem væri ofaukið í veröldinni“.
Þessi frétt var færð keisaranum á
þann varfærnasta hátt sem unnt var.
Hann var að eðlisfari hinn mesti skap-
stillingarmaður, en nú gat hann ekki
tára bundist. — Á ekki að hlífa mér
við neinu í þessari veröld! hrópaði
liann. Þrátt fyrir allt hafði honum
alltaf þótt mjög vænt um drottning-
una. Aldrei hafbi orðið opinber sund-
urþykkja með þeim, og þegar lhtn
dvaldi fjarvistum eftir eigin ósk, heim-
sótti hann hana þegar hann komst
liöndunum undir.
Gisla og María dætur keisarans
voru báðar giftar og áttu börn. Rudolf
krónprins lét eftir sig eina dóttur,
Elisabetu, sem Franz Joseph var mik-
ið amstur að. Hún giftist í trássi við
hann, og það fór eins og hann liafði
spáð, að hjónabandið varð vausælt.
Síðásti harmaatburðurinn i lífi hins
hrjáða keisara gerðist 28. júni 1914
suður í Serajevo í Bosniu, er ríkis-
erfingi Austurrikis, Franz Ferdinand
erkihertogi og Sophie frú hans voru
myrt á götunni þar, er þau komu i
opinbera heimsókn. Franz Ferdinand
var bróðursonur keisarans og stóð
næstur til ríkiserfða eftir að Rudolf
krónprins féll frá. Hann var ungur
að árum er hann var myrtur og lét
eftir sig mörg börn. Eins og flestum
mun kunnugt varð þetta morð yfir-
borðsástæðan til þess að fyrri heims-
styrjöldin hófst. Eftir morð Franz
Ferdinands var sonarsonur eins af
bræðrum keisarans, Garl að nafni
kjörinn ríkisarfi. Hann tók við völdum
i Austurríki eftir fráfall Franz Jos-
ephs 1916, en varð skammgóður í
embættinu, þvi að 1918 var hann sett-
ur af og hvarf í útlegð, en lýðveldi var
iýst yfir í Austurríki, en Ungverja-
land varð sjálfstætt ríki og megin-
hluti liins gamla Austurríkis, Tékko-
slóvakía, varð sjálfstætt lýðveldi.
Það liggur nærri að segja, að eina
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungl 28. ágúst 1954.
Alþjóðayfirlit.
Megnið af plánetum í jarðar- og
aðaimerkjum. Bendir á dugnað og
hyggindi i aðgerðum heimsmálanna.
Venus og Júpiter i 1. og 10. húsi ís-
lenska lýðveldisins og ættu þvi að
hafa veruleg áhrif á fjárliagsmálin
enda þó þau séu i slæmri afstöðu inn-
byrðis. Jnnlend fyrirtæki gætu orðið
fyrir hnekki vegna utanríkisviðskipta
og ákvarðana hins opinbera. — Jarð-
skjálfti gæti gert vart við sig í Panama
eða á þeirri lengdarlínu. — Tölur
þessa dags, 28. ágúst 1954 eru í ýmsum
greinum örðugar, því 8-talan, Satúrn-
usartalan, er tvöföld í áhrifum og hef-
ir takmarkandi áhrif, en þó henda 5-
talan og 4-talan á skilgreiningu góða
og liyggindi. Þversumman af þessum
lölum er talan 9, Marstalan, sem bend-
ir á þrautseigju og seiglu i baráttunni.
Lundúnir. — Nýja tunglið er í 10.
húsi. Afstöðurnar eru frekar góðar, en
þá er afstaðan til Venusar og Júpíters
og þeirra í milli slæmar, sem bendir
á fjárhagslega örðugleika og vand-
kvæði í utanríkisviðskiptum, en Mars-
áhrifin bæta þetta upp að nokkru.
Álirif Plútó athugaverð. — Satúrn við
austursjóndeildarhring bendir á tafir
og takmarkandi afstöðu almennings.
Heilsufar athugavert. — Mars í 3.
húsi. Örðugleikar nokkrir koma i ijós
i flutningamálum, og eldur gæti komið
upp í flutningatæki eða byggingu í
þeirri grein. — Júpiter i 9. húsi. Lík-
iegt er að fjárhagsþröng geri vart við
sig i siglingum utaniands og í við-
skiptum við nýlendurnar. — Merkúr
í 11. húsi. Umræður miklar í þinginu
um afstöðu verkamanna. — Venus og
Ne])tún í 12. húsi. Góðgerðastarfsemi
ætti að vera undir heillaríkum álirif-
um, einnig betrunarhús, vinnuhæli og
spitalar.
Berlín. — Nýja tunglið og Merkúr
í 10. húsi, ásamt Plútó. Athugaverð
áhrif á afstöðu stjórnarinnar. Er lík-
legt að lnin lendi í örðugleikum nokkr-
um út af fjárhagnum. — Satúrn í 1.
húsi. Óheppileg áhrif á almenning og
kvillar gætu komið til greina. — Mars
í 2. húsi. Ekki heppileg afstaða fyrir
rekstur banka og peningaverslun yfir
liöfuð. — Júpíter og Úran i 9. húsi.
Örðugleikar í siglingum og vandkvæði
vegna fjárhagsvandræða og verkfalla,
sprenging gæti átt sér stað i skipi. —
Venus og Neptún í 12. húsi. Ætti að
vera góð áhrif fyrir sjúkrahús, vinnu-
hæli, betrunarhús og góðgerðastarf-
semi.
Moskóva. — Nýja tunglið í 9. liúsi
ásamt Merkúr og Plútó. Sigiingar og
utanríkisviðskipti munu mjög á dag-
skrá. Munu umræður nokkrar um þessi
mál og þeim veitt mikil athygli. Örð-
ugleikar í fjármálarekstri fyrirtækj-
anna koma tii greina. Skemmdar-
starfsemi gæti og komið í ijós. —
Venus og Neptún í 11. liúsi. Afstaða
æðsta ráðsins eru athugaverð, því
Venus liefir allar afstöður slæmar.
Fjármálin munu meðal annars vera
mótlætið sem örlögin hafi hlíft Franz
Josepli við, sé það að liann lifði ekki
að sjá ríki sitt liðast í sundur og falla
i rústir. Hann dó árið 1916, — og
hefir vissulega dáið „saddur lífdaga"
enda varð hann 86 ára.
örðugt viðfangsefni. Undirferli og
sviksemi munu koma í Ijós.
Tokýó. — Nýja tunglið í 6. liúsi,
ásamt Merkúr. Verkamenn og aðstaða
þeirra mun mjög á dagskrá. Umræður
nokkrar munu koma til greina og
blaðaskrif um málefni þeirra, út af
fjármálunum og meðhöndlun þeirra.
— Mars í 10. liúsi. Hefir góðar afstöð-
ur, sem gæti styrkt aðstöðu stjórnar-
innar. — Júpíter og Neptún i 5. luisi.
Örðugleikar í rekstri skennntistaða,
leikhúsa. Útgjöid hækka og tekjur
rýrna. — Venus og Neptún í 7. húsi.
Hafa allar afstöður slæmar. Utanrík-
isviðskiptin og samningar við aðrar
þjóðir eiga örðugt uppdráttar og
hindranir koma til greina.
Washington. — Nýja tunglið er í 1.
húsi; ásamt Merkúr. Afstaða almenn-
ings mun athugaverð, því að afstöð-
urnar eru slæmar. Munu fjárhagsmálin
koma þar mjög til greina og afskiptin
út á við. Inflúensa og taugakviilar á-
berandi. — Venus, Neptún og Satúrn
í 3. liúsi.^Flutningar, samgöngur, frétt-
ir og útvarp mjög á dagskrá og koma
ýms vandkvæði i ijós sem liindrar.
rekstur þessarar starfsgreina, og munu
fjárhagsmálin kom þar til greina í
ýmsu tiiliti. — Júpíter og Úran í 11.
húsi. Þingmálin eru undir athugaverð-
um áhrifum, urgur og uppivaðsla gæti
komið til greina. Sprenging i opin-
berri byggingu. — Mars í 5. húsi.
Leikhús og leiklist undir athugaverð-
um afstöðum, en þó gætu ýmsar end-
urbætur komið í ljós.
í s 1 a n d .
11. hús. — Nýja tunglið er í húsi
þessu. — Þingmál og framkvæmdamál
munu mjög á dagskrá og veilt athygli
og munu fjárhagsmálin þar ofarlega
á baugi. En íhaldið styður stjórnina
í framkvæmdunum. Umræður miklar
um þessi mál og ágreiningur áberandi.
1. hús. — Venus og Neptún i húsi
þessu. — Hafa slæmar afstöður. Óró-
leiki ætti að koma í ljós vegna við-
skiptamálanna og stjórnin og verka-
menn koma þar ákveðið við sögu, því
að slæm afstaða er milli Júpíters í 10.
húsi og ræður hann 6. liúsi, stjórnin
og verkamenn, og verður barátta
nokkur í þessum efnum á milli þess-
ara aðiija. Kommúniskur undangröft-
ur gæti og átt sér stað.
2. hús. — Satúrn er i húsi þessu. —
Fjárhagsörðugleikar sýniiegir og
bankastarfsemin undir fargi.
3. hús. — Mars i liúsi þessu. Urgur
meðal flutningamanna, og kröfur
munu koma í ljós frá þeirra hendi.
Fréttaflutningur, póstur og sími undir
baráttuóhrifum, einnig biöð og bækur.
4. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Ýmsir örðugleikar verða á vegum
stjórnarinnar, einkum vegna fjármál-
anna og reksturs þeirra. Gæti kólnað
í veðri.
5. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— liefir hann áhrif á leikara og leik-
húsarekstur. Tafir í þessum greinum
gætu átt sér stað.
6. hús. — Júpíter ræður húsi þessu.
— Ætti að hafa styrkjandi áhrif á
viðnám gegn sjúkdómum. Verkamenn
hafa sæmilega aðstöðu.
7. hús. — Mars ræður húsi þessu. —
Slæm afstaða til utanríkismálanna,
einkum Englands, sem er undir áhrif-
um frá Mars. Barátta nokkur gæti
komið til greina.
8. hús. — Venus ræður liúsi þessu.
— Hefir slæmar afstöður. Því er lik-
legt að dánartala kvenna liækki nokk-
uð, einkum þeirra er teljast í flokki
listamanna og kvenna í háum stöðum.
9. hús. — Merkúr ræður liúsi þessu.
— Bendir á umræður miklar og urg
í blöðum, viðskipti, dánarmál og með-
ferð þeirra. Hagnaður kemur i ijós í
þessum greinum.
10. hús. — Júpíter og Úran í húsi
þessu. — Hafa slæmar afstöður.
Stjórnin á í margvíslegum örðuglqik-
um og koma þeir úr ýmsum áttum,
scm afleiðing af aðgerðum hennar
sjálfrar, í fjárinálum o. fl„ frá al-
menningi og afstöðu hans, frá aðgerð-
um þingsins og gerðum þess.
12. hús. — Engin pláneta í liúsi
þessu og þvi verða álirif þess litt
áberandi.
Skrifað 22. ágúst 1954.
HOTT! HOTT! — Tvær hugaðar döm-
ur hafa gerst svo djarfar að fara á
bak nashyrningnum „Mohan“ í Whips-
nade-dýragarðinum fyrir utan Lon-
don, rneðan hann var að háma í sig
heyið. — Nashyrningar eru taldir
með illskeyttustu dýrum í heimi, svo
að leikur stúlknanna var alls ekki
hættujaus.
„ÞREYTTI THEODOR“. — Prófessor
Theodor Heuss var endurkosinn for-
seti Vestur-Þýskalands um miðjan
júlí, með öllum atkvæðum nema
kommúnista. Forsetinn er talinn glað-
lyndur inaður, en eigi að síður hafa
Þjóðverjar kallað hann „Þreytta
Theodor“ eftir nafnkenndri persónu
úr gamanleik, sem var sýndur víða
hér á árunum. En líka er hann kall-
aður „Theo frændi". Svo mikið er
víst að Theodor var þreyttur eftir
kosningarnar, því að þá varð hann að
taka í höndina á hundruðum manna,
sem vildu óska honum til hamingju.
Myndin cr tekin eftir að forsetinn
hafði tekið á móti hamingjuóskunum
og er að þurrka svitann framan úr
sér.