Fálkinn - 14.03.1958, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
*
DÓTTIR SÓLARINNAR mætti hún
vel heita, litla stúlkan með stóra
hattinn, sem brosir móti sólinni hér
á myndinni.
SPEKINGURINN. — Það er alls ekki
undarlegt þó að þjóðtrú ýmissa landa
hafi búið til sögur um gáfnafar mara-
bústorksins. Hann á að hafa manns-
vit og sjá jafnlangt nefi sínu, sem þó
er lengra en nef gérast1. Og óneitan-
lega lítur hann spekingslega út þegar
hann stendur á öðrum fæti og hugsar
um gátur tilverunnar. •
LITLI KOFINN. Frh. af bls. 3.
Leikrit þetta hefir átt geysimikl-
um vinsældum að fagna víða erlendis,
m. a. í Frakklandi, en hætt er við,
að svo verði ekki hér, þótt erfitt sé
að gera sér grein fyrir því, hver meg-
inorsökin sé. Sennilegt er þó að hin
hárfínu blæbrigði franskrar gaman-
semi njóti sín ekki á íslenskunni í
þessum leik, en fleira kemur þó vafa-
laust til.
Þóra Friðriksdóttir leikur eiginkon-
una, Róbert Arnfinnsson eiginmann-
inn, Rúrik Haraldsson vininn og
Jóhann Pálsson „villiinanninn".
UNICEF — Framhald af bls. 5.
sælir hvar sem þeir koma. Allir
vilja leggja þeim lið, og í Bang-
kok tóku níu æruverðir búdda-
prestar sig saman um að særa
frá þeim illa anda, svo að ekk-
ert skyldi granda þeim. UNICEF
hafði reist hæli fyrir berklaveikt
fó'lk og börn þeirra, og þetta hús
„hreinsuðu" búddaprestarnir áð-
ur en það var tekið í notkun. I
Belgíu-Congo heldur fólkið þakk-
arhátíðir til heiðurs UNICEF, og
UNICEF-læknarnir hafa fengið
orð á sig, ekki síður en særinga-
læknarnir, og þykja jafnvel taka
þeim fram!
Sex hundruð milljón svöng
börn eru í veröldinni. Sumum
finnst það unnið fyrir gýg að
reyna að hjálpa öllum þessum
fjölda. En það er furðulegt hve
mikið er hægt að gera fyrir litla
peninga. Fyrir eina krónu er
hægt að bólusetja 2—3 börn fyr-
ir taugaveiki. Fyrir tíu krónur
er hægt að gefa 20 börnum mjólk
í heila viku. UNICEF-kortin, sem
seld eru fyrir jólin í öllum lönd-
um, eru ein tekjulindin, sem
reynist drjúg í hjálparstarfsem-
inni. *
Lárétt skýring:
1. fjallvegur, 12. for, 13. stóreignir,
14. mynni, 16. plóg, 18. hlykk, 20.
verkur, 21. ending, 22. barnabókar-
persóna, 24. veisla, 26. skólastjóri og
skáld, 27. skynfærin, 29. tól, 30. silf-
ur, 32. kveðskapur, 34. varma, 35.
sjávarbakkar, 37. verslunarfyrirtæki,
38. tveir eins, 39. loga, 40. dugnaður,
41. nafnháttarmerki, 42. ?, 43. sam-
tök, 44. amboð (þ.f.), 45. drykkur,
47. tónn, 49. herramaður, 50. var flat-
ur, 51. skritið, 55. söngtextahöfundur
og skáld, 56. vinnudýr, 57. versnar,
58. tveir eins, 60. for, 62. hjálp, 63.
r.umið staðar, 64. drykkjar, 66. setti
fótinn fyrir, 68. liafast við, 69. þjóð-
félag, 71. örvað, 73. bönd, 74. minka-
bani.
Lóðrétt skýring:
1. þolinmæðisverk, 2. fyrirhöfn, 3.
tveir eins, 4. frumefni, 5. með sínum
lii, 6. starfsöm, 7. hljóð, 8. ending,
9. hafa mætur á, 10. planta, 11. friðar,
12. illræðisverk, 15. kvæði, 17. kon-
ungur (fyrrv.), 19. lokaniðurstaða, 22.
málfræðiatriði, 23. hreysi (flt.), 24.
skip, 25. skip, 28. málmur, 29. óvirð-
ingarmerki, 31. bæjarnafn, 33. still-
ing, 34. hlý, 36. segja, 35. reiðskjóti,
45. raðtala, 46. mælir, 48. korn, 51.
riki, 52. smælki, 53. isl. vísindamað-
ur, 54. áburður, 59. óviðeigandi tal,
61. geymslur, 63. hreyfitæki, 65. fara
fram, 66. málmur,*67. sildarmatur, 68.
biblíunafn, 70. tveir eins, 71. ljóð-
skáld, 72. drykkur, 73. varð votur.
LAUSN Á SÍÐUSTU KROSSGÁTU.
Lárétt ráðning:
1. afvopnunarmál, 12. efar, 13. Sim-
on, 14. Álar, 16. ill, 18. alt, 20. aka,
21. mi, 22. múl, 24. tau, 26. ku, 27.
vitja, 29. augna, 30. ká, 32. stállunga,
34. A.K., 35. Ike, 37. óa, 38. gó, 39.
ské, 40. pota, 41. rá, 42. au, 43. perm,
44. ama, 45. t.h., 47. hó, 49. fob, 50.
fa, 51. brottfall, 55. Ni, 56. klúrt, 57.
afmán, 58. L. G., 60. áin, 62. tin, 63.
mg, 64. ala, 66. áar, 68. dóu, 69. gaus,
71. útför, 73. korr, 74. Skeljungsbani.
Lóðrétt ráðning:
1. afli, 2. fal, 3. Y.R., 4. p.s., 5. nia,
6. umla, 7. not, 8. an, 9. má, 10. ála,
11. lakk, 12. eimskipafélag, 15. rauð-
kembingur, 17. Gúttó, 19. Gaggó, 22.
mis, 23. ljáarhorn, 24. tunguhaft, 25.
Una, 28. Al, 29. Au, 31. ákoma, 33. lá,
34. Akron, 36. eta, 39. sef, 45. trúin,
46. át, 48. ólmir, 51. blá, 52. tt, 53.
fa, 54. lán, 59. glas, 61. safn, 63. móri,
65. auk, 66. átu, 67. rög, 68. Don, 70.
Se, 71. új, 72. ns, 73. K. A.
AUMINGJA TÍ-GIFTI AUÐMAÐUR-
INN. Framhald af bls. 9.
sex ár, en flugust oft á. Árið 1951
lofaði Tommy henni 1000 dollurum
á mánuði til að „flækjast ekki fyrir
sér“. Samt hittust þau öðru hverju,
og Georgina var á leið til lians eina
nóttina í febrúar 1952, er hún varð
undir bíl og beið bana. Lauk þar
næstlengsta hjónabandi Tommys.
Fyrsta hjóanband lians stóð í niu ár.
Tommy syrgði nr. 8 ekki lengi, þvi
að í júlí 1952 giftist hann ljóshærðri
dansmær, sem hét Anita Francis
Roddy Eden. í brúðkaupsveislunni
'fékk Tommy sér svo rækilega neðan
í þvi, að hann hafði hausavíxl á brúð-
urinni og systur hennar Juanitu (þær
voru tviburar og nauðalíkar) og ætl-
aði að teyma liana með sér í hjóna-
rúmið. í brúðkaupsferðinni liagaði
hann sér ekki vel; var sífullur, hengdi
upp myndir af átta fyrirrennurum
Anitu i svefnherberginu, skaut til
marks á lampana í gistihúsniu og loks
skaut hann brúðina í fótinn.
„Hann var á svalli með öðru kven-
fólki frá þvi fyrsta,“ sagði Anita. „Og
hann var blátt áfram vitskertur. Hann
uppástóð að hann gæti opnað glugga
með því að depla augunum og stóð á
þvi fastar en fótunum, að hundurinn
hans væri endurholdgun 8. konunnar
sinnar.
En þegar Tommy fór að biðja
mágkonu sína að verða 10. konan
sín, flóði útaf. Anita fór frá bonum
eftir tíu daga, en lagaskilnaðurinn
komst ekki endanlega í kring fyrr
en 1955. Sagt er að Anita hafi fengið
250.000 dollara bætur, sem að visu
er góð borgun fyrir tólf daga. En það
voru lika erfiðir dagar, segir Anita.
Svo liðu tvö ár. En í lok síðasta
árs giftist Tommy laglegri stúlku frá
Texas, sem heitir Pat Gaston og hefir
verið „show-girl“ í Ziegfield Follies.“
Pat tók ekki Tommy vegna pening-
anna,“ segir móðir hennar. Og það er
kannske rétt, því að varla er eftir
miklu að slægjast lijá Tommy nú orð-
ið. Því að hann hefir eytt 4 milljón
dollurum í giftingarnar sínar. Að vísu
á hann 2 milljónir eftir, en þær eru
bundnar og hann getur ekki eytt þeim,
en nýtur vaxtanna af þeim. — Hann
er vel ánægður með tíundu konuna,
eða „júbíleumskonuna" ennþá; hún
er bráðlagleg og sex fet á hæð. Þegar
hann var spurður livort hann hyggð-
ist giftist oftar, svaraði hann: „Já,
því ekki það ef ég get náð í konu,
sem getur alið önn fyrir mér!“ Því
að nú þykist hann ekki hafa efni á
meiri útlátum. *
Alveg hissa.
Það er hörgull á prinsum í Evrópu,
handa fjölda af gjafvaxta prinsessum,
þar af tveim meykóngaefnum, Mar-
grethe Danaprinsessu og Beatrix Hol-
landsprinsessu. Þær eru 18 og 20 ára
og bráðmyndarlegar stúlkur. Ástriður
Nogregsprinsessa er komin yfir hálf-
þrítugt og ólofuð enn, Irene Hol-
landsprinsessa er 18, svo koma ýmsar
af afdönkuðum konungaættum, svo
sem frönsku prinsessurnar Isabella
Maria og 'Anna Marguerite, ítalska
prinsessan Maria Gabriela, gríska
prinsessan Sophia og loks Maria del
Pilar frá Spáni. — Ingiriður Dana-
drottning og Júliana Hollandsdrottn-
ing eru sagðar áhyggjufullar út af
giftingu dætra sinna. Er sagt að Ingi-
ríður vilji helst fá enskan tengdason,
og væri þá helst um að ræða hertog-
ann af Kent, en hann er sagður tals-
verður gallagripur.
—O—
Sjónvarpið í Sidney í Ástralíu aug-
lýsti fyrir nokkru, að stúlka, sem
væri fús til að láta snoðklippa og
krúnraka sig i sjónvarpinu skyldi fá
að launum sjónvarpstæki fyrsta
flokks, demants-armbandsúr, þvotta-
vél, kæliskáp og svo parruk við henn-
ar hæfi í kaupbæti. Það voru ’hvorki
meira né minna en 500, sem gáfu sig
fram, flestar ungar giftar konur. „Það
tæki mig mörg ár að eignast alia þessa
ágætu gripi,“ sagði ein þeirra, „en
hárið á mér er sprottið aftur eftir
sex mánuði.“ Og á líkan hátt munu
hinar 499 hafa liugsað.
—O—