Fálkinn - 04.03.1960, Side 15
FALKINN
15
ekki viðskila er okkur færi að reka.
Þessir gúmmíbátar voru ekki
stórir. Utanmálið var 4X7 fet og
innanmálið 2.5X5.5 fet. Sá litli var
talsvert minni. Það var helzt að
s.já að þeir sem bjuggu þá til hefðu
ætlazt til að það væru pygmear,
sem áttu að nota þá, því að þeir
stærri voru of litlir handa tveim
mönnum, en við urðum að vera
þrír í þeim, en tveir í minnsta bátn-
um.
De Angelis og Kaczmarczyk höfðu
blásiS upp litla bátinn, og annar
þeirra var kominn í hann. En þegar
sá síðari reyndi að komast um borð
fóru þeir báðir í sjóinn.
.Rickenbacker og Bartek áttu líka
erfitt. Adamson átti að vera með
þeim, en hann gat ekkert hjálpað
þeim. En hinum tókst að koma hon-
um um borð.
De Angelis og Kaczmarczyk voru
enn í sjónum þegar Cherry, Reyn-
olds og ég fóru í þriðja bátinn og
reyndum að bjarga þeim. Alex
Kaczmarczyk var ósjálfbjarga og
hélt í bátinn. Ég var sá eini sem
■ekki kunni að synda, svo að ég var
heppinn að detta ekki í sjóinn. Til
vonar og vara hafði ég tekið af
mér skóna, því að ég hafði heyrt
að það vær betra, ef maður væri
ósyndur, en mig iðraði þess oft
síðar.
☆
Liliane de Réthy—
Framh. af 7. síðu.
og skorinorður, eins og konungar
ættu að vera. Aðdáun Baudoins á
stjúpu sinni hefur á síðari árum
verið túlkuð þannig, að hann væri
ástfanginn af henni ....
En það ey meira mél í pokanum
en þetta. í átján ár hafa Belgar
skrásett alla galla Liliane með mik-
illi nákvæmni. Og sú skrá er sam
felld röð af ákærum og aðfinnslum.
Ef hægt væri- að rannsaka þessar
kærur að fullu, mundi afstaða Lili-
ane líklega verða skýrari. Ef þjóð-
in gæti kynnst Liliane eins vel af
blöðunum og enska þjóðin þekkir
Margaret prinsessu, mundi kannske
margur fá aðra skoðun á Liliane.
En höllin í Laeken er órjúfandi
múr, sem greinir þjóðina frá æðsta
manni hennar. Leopold var fáskipt-
inn og hlédrægur, og það er Bau-
doin líka. Þeir hafa aldrei svarað
ákærum í blöðunum og því síður
munnlegum fréttaburði, hversu ó-
sannur sem hann hefur verið. Það
er vitanlega aðferð, sem hefur sín-
ar sterku hliðar. Konungar eiga að
vera hafnir yfir slúðursögur. En
það eru líka gallar á því. Þegar orð-
rómi er ekki andmælt hugsar fólk-
ið sem svo: Þetta er þá líklega satt?
ER ÞETTA AÐ BREYTAST?
Það er talið líklegt, að eftir að
Albert hefur gifst muni allt þetta
breytast til batnaðar. Liliane er
horfin í skugga Paolu prinsessu og
því ekki eins gott skotmark og hún
var. Og auk þess hefur Leopold
konungur flutt burt frá Laeken og
lýst yfr því, að Baudoin hafi fullt
athafnafrelsi, samkvæmt vilja þings
°g þjóðar.
Siðan líta Belgar Liliane réttara
auga en áður. „Ósigurinn“, sem hún
beið við að Albert giftist, hefur
h'aft mikil áhrif út á við. Nú eru
margir farnir að vorkenna Liliane,
sem hötuðu hana mest áður.
Liliane fór alls ekki dult með að
hún hefði orðið fyrir þungu áfalli,
en jafnframt tók hún á móti Paolu
með mestu alúð. Hún kyssti hana
og faðmaði, dekraði við hana og gaf
henni gjafir, og sýndi með því, að
hún sætti sig við orðinn hlut.
Og sumir vilja halda því fram
að Liliane hafi eignast samherja í
hinni ljóshærðu ítölsku prinsessu,
sem kvað vera einkennilega lík
Astríði drottningu í sjón. Þær þekkj-
ast varla svo vel ennþá, að þær trúi
hvor annarri fyrir leyndarmálum
sínum. En það er mikils virði ef
þeim er hlýtt hvorri til annarar.
Aðstaða Liliane hjá belgisku
þjóðinni veltur mikið á því hvort
Paola verður verulega vinsæl í
Belgíu. Ef Paola nær vinsældum
eitthvað í áttina við það sem Ástríð-
ur drottning hafði, er líklegt að
Liliane hverfi í fullkominn skugga.
í næsta blaði segir
frá Paolu Ruffo.
☆
(jetrauHaráÍHitigar
RÁÐNING. Það er fátt óvitlaust
á myndinni. í tjaldið vantar stöng
og stag. Eini tjaldhællinn sem sést
er settur þannig að hann hlýtur að
losna. Luktin er sett þannig að hún
hlýtur að kveikja í tjaldinu. Dreng-
irnir hafa fest þvottasnúruna í trén
með krókum og það má ekki. Teikn-
arinn hefur gleymt .annari klemm -
unni í skyrtuna og svo vantar part
í þvottasnúruna. Drengurinn við
eldinn er með sex fingur á annari
hendi og stútinn vantar á kaffi-
könnuna. Drengirnir hafa gert upp
eld við tréð, en það má ekki. Olíu-
brúsinn stendur hjá eldinum. Raf-
magnsstraujárn á varla heima i
útilegu. Mjólkurflaskan stendur úti
í sólskininu, og það er ekki gott.
Brauðið er á jörðinni og það er
sóðaskapur, og tómum blikkdósum
hefur verið fleygt. í horninu' til
vinstri liggur hnifurinn og slíðrin
hjá. Drengirnir virðast yfirleitt vera
heldur hirðulitlir. Skuggarnir,
stefna í allar áttir, alveg eins og
birtan kæmi ekki úr sömu átt. Undir
bekknum sem drengurinn með
harmónikuna situr á, eru aðeins
þrjár lappir, sokkarnir eru ekki af
sama tagi og harmonikan snýr öf-
ugt. — Hér eru komin 19 atriði,
sem eru öðru vísi en þau eiga að
vera.
Sterki maðurinn lyfti r!28 kílógr.
Paul Ely, herráðsforingi de
Gaulles, er sá sem átti drýgstan
þátt í að bæla niður uppreisnina í
Alsír.
AUSTRÆN FEGURÐ. — Þessi
kínverska leikkona heitir Tsai Chin.
í vetur liefur hún Ieikið í sjónleik,
sem heitir „The World of Susie
Wong“ og vakið dæmafáa atliygli í
London.
Yul Brynner, leikarinn heims-
frægi, liefur nú fullan hug á að
hverfa i'rá kvikmyndunum og lielga
sig starfsemi í þágu flóttafólks á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
----x-----
Aðeins börn, fábjánar og gamal-
menni geta leyft sér þann lúxus að
segja sannleikann.
Sir Winston Churchill.
Þau hafa fulla ástæðu til að vera hýr á svipinn, þessi, því þau voru að vinna milljónir króna í
knattspyrn ugctraun.