Fálkinn - 03.08.1965, Blaðsíða 13
tJRSUTIN í VERÐLAUNAGETRAUNINNI
Það ríkti talsverð eftirvænting á ritstjórnarskrifstof-
um Fálkans þegar komið var að því að draga út verð-
launnahafa. Við báðum Steinunni S. Briem að draga
úr lausnunum sem voru fjölmargar. Þegar búið var
að draga, kom í ljós, að fyrsti vinningurinn, ferð fyrir
tvo með Flugfélagi íslands til Kaupmannahafnar og
áfram til Spánar á vegum ferðaskrifstofunnar Sögu,
féll í hlut Hnífsdælings. Annar vinningurinn, ferð
með Gullfossi til Khafnar og heim aftur, féll í hlut
Reykvíkings og þriðja vinninginn, flugfar til London
og heim aftur, hreppti Akureyringur.
Við náðum þegar sambandi við hina heppnu, en
þar sem við höfðum nauman tíma til stefnu, tókst
ekki að útvega mynd af öðrum en Reykvíkingnum, en
við birtuin myndir af hinum síðar. Við þökkum öll-
um aðilum, lesendum, Flugfélagi íslands og Ferða-
skrifstofunni Sögu, þátttöku og fyrirgreiðslu. Við
munum síðar meir segja frá ferðum verðlaunaliafanna
og vonum að þeirra bíði mikil ævintýri.
KÚM GETUR BOÐID IVIAIMIVII SIMIMUM MEÐ
FYRSTU VERÐLAUN í hinni glæsilegu verðlaunaget-
raun Fálkans vann Kristjana Kristjánsdóttir, ísafjarðar-
veg 4, Hnífsdal. En verðlaunin eru 15 daga ferð fyrir tvo
til Costa Brava á Spáni á vegum Flugfélags íslands og
Ferðaskrifstofunnar Sögu í september. Og getur hún því
boðið manni sínum með sér í glæsilega sumarleyfisferð.
Þegar Fálkinn átti tal við Kristjönu og tilkynnti henni
úrslitin lýsti hún mikilli ánægju sinni með vinninginn, en
kvaðst samt svo óviðbúin að hún gæti ekkert sérstakt sagt.
Hún kvaðst aldrei hafa farið til útlanda, aldrei yfirleitt
farið lengra en til Reykjavíkur, og maður hennar hefði
heldur aldrei farið út fyrir pollinn.
Maður Kristjönu er Jens Hjörleifsson fiskimatsmaður
(bróðir Steindórs Hjörleifssonar leikara) og eiga þau fjög-
ur börn, þrjár dætur, 15 ára, 12 ára og átta mánaða, og
einn son 9 ára. Kristjana er frá Kirkjubæ í Skutulsfirði,
en Jens er Hnífsdælingur.
Ekki vannst tími til að útvega myndir af þeim hjónum
fyrir þetta blað, en þær munu verða birtar seinna.
LEIKHÚSMADUR HREPPTI FERÐ
MEÐ GULLFOSSI
ÖNNUR VERÐLAUN í verðlaunagetrauninni hlaut Grét-
ar Hannesson, Granaskjóli 24, Reykjavík. Verðlaunin eru
ferð með Gullfossi til Kaupmannahafnar með viðkomu í
Leith og heim aftur.
Grétar er 28 ára og starfar sem verzlunarmaður í Straum-
nesi að Nesvegi 33. Hann er kvæntur Sigrúnu Steingríms-
dóttur og eiga þau þrjú börn á aldrinum 7, 5 og 2ja ára.
Grétar er mikill áhugamaður um leiklist og hefur leik-
ið á vegum Grímu og Leikhúsi æskunnar. Hann hefur að
undanförnu dvalið er-
lendis vegna veikinda,
en hann bað konu sina
að halda saman blöðun-
um, sem getraunin var í,
og þegar hann kom heim
leysti hann úr spurning-
unum og sendi svörin.
Grétar sagði að hann
hefði ekki fyrr tekið
þátt í verðlaunagetraun,
svo segja má að hann
fari vel af stað.
Grétar.
SÍLDARSJÓMAÐUR HLAUT FLUGFERÐ
TIL LOMDOM
ÞRIÐU VERÐLAUN í verðlaunagetrauninni hlaut Stefán
Aðalsteinsson, Eiðsvallagötu 20, Akureyri. Stefán er sjó-
maður, 31 árs, og er á síld í sumar á Björgvin frá Dalvík.
Það náðist ekki í Stefán sjálfan, en Fálkinn átti tal við
konu hans, Maríu Sigurbjörnsdóttur, og ætlaði hún að
koma fregninni áfram til Stefáns.
Þriðju verðlaun eru flugferð fyrir einn til London með
Flugfélagi íslands á tímabilinu október—nóvember í haust.
RÉTTU SVÖRIIM:
1. mynd: HAMLET
2. mynd: FJALLA-EYVINDUR
3. mynd: GULLNA HLIÐIÐ
4. mynd: ÍSLANDSKLUKKAN
5. mynd: TÓPAS
6. mynd: TÍMINN OG VIÐ
7. mynd: HART í BAK
8. mynd: RÓMEÓ OG JÚLÍA
F'ÁLKINN 13