Fálkinn - 03.08.1965, Qupperneq 26
SVIÐSLJOSINIJ ««««*«:
BINÍUEKI VIGGÓSSON SKRIFAR FYRIR UNGA FÓLKIÐ
HJALP.......................
Um þessar mundir er verið að leggja síðustu
hönd á kvikmynd, þar sem Beatles eru í aðal-
hlutverkum. Myndin verður frumsýnd 29. júlí
í Bretlandi og m. a. verða Margrét prinsessa og
Snowdon lávarður viðstödd sýninguna. Hljóm-
plata með lögum úr myndinni verður gefin út
23. júlí. Kvikmyndin ber hið frumlega heiti
HJÁLP og eftir nafninu að dæma, þá fara Bitl-
arnir með hlutverk einhverra dæmigerðra hrak-
fallabálka. Töluvert hefur farið leynt um töku
þessarar myndar og lítt hefur kvisast út um
efnið. Hér að neðan eru tvær myndir úr HJÁLP;
önnur er af Ringo í allþægilegri aðstöðu. Hin
myndin sýnir John Lennon ásamt Inverja nokkr-
um í mjög svo nýstárlegri samræðustellingu, og
nú bíður íslenzk æska í ofvæni eftir því, að
Tónabíó sýni HJÁLP.
VINSÆLUSTU LÖGIN í ÝMSUM LÖNDUM
Lagið „Crying in the
chapel“ hefur beint sviðs-
ljósinu að Elvis Presley,
svo um munar. Það er í
efsta sæti í Bretlandi en
komst hæst nr. 3 í U.S.A.
Ástralíubúar virðast ekki
síður hrifnir af þessu
fallega lagi, því þar er
það nr. 1. í Hong Kong
og Noregi er lagið nr. 4.
í Canada stefnir Presley
á toppinn með umrætt
lag, en þar er það í 4.
sæti og írlendingar eru
engir eftirbátar. Þar virð-
ist Presley eiga marga
aðdáendur, því „Crying
in the chapel“ er nr. 3
á vinsældalistanum þar.
Þekktur hljómsveitar-
stjóri minntist á það eitt
sinn í útvarpi, að íslenzk-
ir táningar héldu of lengi
í þau lög, sem mestum
vinsæídum næðu. Mér
varð hugsað til þessara
orða, þegar ég kom auga
á það, að „Oh pretty
THE YARDBIRDS
woman“, sem er löngu hætt að heyrast í
óskalagaþáttum hér er nr. 2 á argentíska
vinsældalistanum og nr. 5 á Filippseyjum.
Úr því að ég er farinn að minnast á lag-'
ið hans Roy Orbison’s, þá má það fylgja
með, að hann hefur nýlega gert 20 ára
samning við M.G.M og fyrir hann fókki
Roy eina milljón dollara.
„Ticket to ride“ er um þessar mundir
nr. 2 í Finnlandi, Noregi, Singapore og
Hong Kong. Hins vegar er það nr. 5 í Svi-
þjóð og Frakkar kunna líka vel við
„Ticket", en þar er það nr. 11 og einnig í
Ástralíu. „Hello DoIly“ er í fjórða sæti í
Filippseyjum, en að þessu sinni sungið af.
Bobby Darin. „For your love“ með Yard-
birds er nr. 6 í U.S.A., en lagið er sérstak-
lega skemmtilega útsett og vel leikið. Það
hefur náð miklum vinsældum hér heima.
í fyrsta sæti á norska vinsældalistanum er
„King og the Road“, sem flestir kannast
við hér heima nú orðið undir nafninu
„Svona er á síld“. Hið sérstæða lag „Gold-
finger“ með Shirley Bassey er nr. 15 á
Ítalíu og nr. 5 í Ho1,"ndi.
26
FALKINN