Fálkinn - 03.08.1965, Side 27
☆ ☆ ☆ ☆
k
»
SVAVAR GESTS
HEÍÐRAÐUR
Það hefur að vonum vakið
mikla athygli, að Bretadrottn-
ing skuli hafa sæmt Beatles
orðunni M.B.E. og nú hefur það
kvisast út hér heima á Fróni
að sæma eigi hinn kunna hljóm-
sveitarstjóra, Svavar Gests, orð-
unni E.V.S., sem útleggst Efl-
ing á vinsældum Sjálfstæðis-
flokksins. Þetta er í fyrsta sinn,
sem þessi orða er veitt og er
hér um að ræða mikinn heiður
fyrir Svavar. En það skal tekið
fram, að hér er um óstaðfesta
frétt að ræða. Annars hefur
Svavar farið vel af stað með
hljómplötuútgáfuna. Allar plöt-
urnar, sem hann hefur gefið út,
hafa náð vinsældum og varla
kemur það óskalag í útvarpinu,
að það sé ekki útgefið af S.G.-
hljómplötum. Dæmigerður er
þáttur, sem ég heyrði nú ný-
lega (A frívaktinni), en í hon-
um voru leikin 11 lög, flutt af
íslenzkum aðilum og 10 af þeim
voru útgefin af S.G.-hljómplöt-
um.
SVAVAR IUEÐ
ORÐUNA
: *
EIGULEG L. P. PLATA í H.S.H.
: Allir kannast við kvikmyndirnar Mondo Cane, Dr. No.,
Aldrei á sunnudögum og Exodus, því alíar hafa þær verið
sýndar hér við mjög góða aðsókn. Eitt eiga þessar myndir
sameiginlegt og það er það, að lög, sem hafa verið flutt í
þeim, hafa náð töluverðum vinsældum, eins og t. d. „More“
úr Mondo Cane og „Exodus“ úr samnefndri mynd. Þegar lag
úr kvikmynd nær vinsældum, þá er yfirleitt gefin út L.P.
hljómplata og á henni er flutt öll tónlist úr viðkomandi kvik-
mynd. En sumum kann að þykja það nokkuð kostnaðarsamt
að kaupa plötu á allt að 340 kr., bara til að geta hlustað á
eitt einasta lag, og hér kem ég að kjarna málsins, því nú
er komin á markaðinn L.P. plata með 15 lögum úr jafnmörg-
um kvikmyndum og meðal þeirra eru þær, sem ég minnt-
ist á í upphafi, ásamt lögum úr Taras Bulba, Irma la douce
og Flóttinn mikli, en tvær síðast nefndu verða sýndar í Tóna-
bíói í sumar. Öll hafa þessi lög verið gefin út áður, hvert
fyrir sig á L.P. plötu og eru hér því um að ræða kjarakaup
fyrir þá, sem hafa ánægju af lögum úr kvikmyndum.
Þessi einstæða hljómplata fæst alltaf öðru hvoru í H.S.H.
Vesturveri, en yfirleitt selst hún fljótlega upp, þegar hún
kemur í verzlunina og undrar mig það ekki, því hér er um
að ræða úrvals hljómplötu.
„WÍ5 ER ÉG í VAFA”
„Herra ritstjóri!
Það er ekki oft sem ég tek
mér penna í hönd til þess að
skrifa og kvarta, en nú get ég
ekki orða bundizt. Það er út
af stjörnuspánni sem mig lang-
ar til þess að skamma ykkur.
Það stóð í henni um daginn að
ég skyldi vera heima um helg-
ina, og ég þorði ekki út úr
bænum fyrir einhvern asna-
skap í mér. Ég var heima hjá
karlinum og kerlingunni en
krakkarnir lentu á sveitaballi
og skemmtu sér djöfull vel, og
svo þegar þau komu heim sögð-
ust þau aldrei hafa skemmt sér
betur. En ég þorði auðvitað
ekki að segja, af hverju ég var
heima. Og ég missti af öliu
saman. Það liggur við, að ég
fari að hætta að trúa á þessa
stjörnuspá.
Einn reiöur."
Svar: Ef þú hefðir farið í
þessa ferð hefði eitthvað voða-
legt komið fyrir þig, og það
vissu stjörnurnar. Þú mátt
þakka þeim fyrir, að þú liggur
ekki í móral þessa dagana. Ertu
annars viss um að þú hafir at-
hugað undir rétt merki?.
HVAÐ EIGUIU VIÐ
AÐ GERA?
„Elsku Fálki!
Okkur langar til að leita til
þín í vandræðum okkar. Svo er
mál með vexti, að ^ið erum
alltaf að mæta sama stráknum
í bænum. Okkur finnst harm
báðum alveg agalega sætur, en
hann talar aldrei við okkur,
þótt við brosum alltaf til hans,
þegar við mætum honum. Við
erum alveg í rusli yfir þessu,
því við vitum hvorki hvað hann
heitir né hvar hann á heima.
Okkur datt í hug að hringja
niður á Manntalsskrifstofu, en
mamma hélt að það þýddi ekk-
ert að hringja þangað, en er
það ekki bara della í kerling-
unni. Við vonum að þú getir
bjargað þessu fyrir okkur.
Hvernig er skriftin?
I. & L.“
P.s. En hvað eigum við að
gera, ef við fáum upplýsingar?
Við erum jú tvær."
Svar: Elskurnar mínar, látið
vesalings maninnn alveg í friði,
hann hefur áreiðanlega ekkert
gert ykkur. Ef þið brosið ekki
næst Þegar þið mætið honum,
þá er vandamálið leyst. Skrift-
in var hroðaleg og stafsetn-
ingin fyrir neðan allar hellur,
og lýsingin á manninum, sem
var ekki birtingarhæf, lýsir
sjúklegri aðdáun sem þið ættuð
að bæla niður sem fyrst. áð-
ur en það verður of seint.
ENN UM
SJÓNVARPBÐ
„Fálki sæll!
Við Islendingar erum u_, _i-
gjarnir menn, og þeir eiu
furðulegir margir hverjir, hlut-
irnir, sem okkur dettur i hug
að deila um. En þó korna öðru
hverju upp alvörumál, þar sem
þeir, ei' í deilum eiga, meina
hvert sagt orð, það eru sem
sagt tilfinningamál.
Eitt af þessum tilfinninga-
málum er sjónvarpsmálið
fræga, það, að erlend stórveldi
rekur hér sjónvarpsstöð fyrir
hermenn sína, en landinn not-
ar hana í eigin þarfir og hef-
ur gaman af. Um skaðsemi
þessarar stöðvar má vissulega
lengi deila, enda hefur það
óspart verið gert, og ætla ég
engu þar við að bæta.
En það sem ég ætlaði að
finna að er það, að mér finnst
það eigi að takmarka, hverjir
geti leyft sér að hafa sjón-
varp á heimili sínu. Þeir, sem
eiga þá hugsjón eina að græða
peninga, geta ef til vill leyft
sér að hafa slík tæki, en ef
menn hafa æðri hugsjónir,
kannski um velfarnað lands
síns, þá ætti slíkt varla að eiga
sér stað.
En enginn veit sína ævi fyrr
en öll er, og ekki heldur is-
lenzk menning. Og ekki meira
um það ...
J. K. Jósefsson."
Svar: Það ér hægara sagt en
gjört að svara þessum skrifum
þínum „Jósef“ góður, og varla
hægt án hlutdrægni, þ. e. a. s.
án þess að hafa skoðun á mál-
inu. En þar eð sú skoðun tæki
án efa afstöðu með eða móti,
og yrði þar af leiðandi dæmd
pólitísk, en Fálkinn er ópólitiskt
blað, ætlum við að sleppa því
og vonum að þú virðir okkur
það til betri vegar.
Þess má annars geta að auki,
að i stríðslokln höfðu andfasist-
ar Skemxnt myndina nokkuð
þeir brotu- m. a. hið sex metrá
langa neí af einræðisherranvím.
Alþýðublaðið. Send.: B V,
og glaðir með góð fyrírheit. Enn
er þessi maður ungur i anda, þótt
hann sé að fylla sextugasja tug-
imx, og á fulla samíeið rneð æsk-
unni og er oft i fararbroddi á
samkomum og annars staðar þar
scm fólk kemur sanian til mann-
fagnaðar. Ég og raargir írændur
Tíniinn. Send.: Óskar .!
urðsson, Stórhöfða.
FALK.I NN
27