Dvöl - 01.08.1912, Blaðsíða 3

Dvöl - 01.08.1912, Blaðsíða 3
D V 0 L. 31 þá grösin og fuglarnir fengu sér blund i friðsælu heimkjrnna sinna. Og hrífandi fanst mér sú hátignarró, sein hánóttin veitti þér öllum; eg settist við læk, sem um lynggróinn mó liðaðist niður af hjöllum. En vorgyðjan hvislaði eyra mér i, að alt sem að sjmir mér húmið, sé tengt við þess hjarta sem tilreiðir þvi, timann og ljósið og rúmið. — Nú lóurnar syngjandi vöknuðu við, að vorblærinn andaði þýður. Og eyru min nutu, við kvakandi klið. Kominn var morguninn blíður. Ársólin ljómaði hæðir og hnúk, heilsaði nesjum og gjögrum, hliðin min líktist þá ljósgrænum dúk, leiftraði gullið í kögrum. Döggvotu blómin sín breiddu mót sól, bláeygðu íjólurnar ungu. Vorið í hjarta mér ástina ól, unað og lofgjörð á tungu. Drö/n. Maurice og Genevieve eöur Munaðarlausu tvíburarnir. (Frönsk saga, færð í letur 1857). (Framh.). »Ójá, já!« svaraði hún þá; »Guð mun aumkv- ast yfir okkur, og lofa mér að gera þig heilbrygð- an með umhyggju minni og aðhjúkrumc. En ef að, hún um leið og hún sagði þetla, kyssti of- urlílið fastara hið sjúka höfuð, er hallaðist að brjósti hennar, þá kveinaði hann upp, og fekk nokkurskonar ílog, er sýndu, að sjúkdómur hans var enn óbreyttur. Læknirinn var nú aftur sóttur til hans, og' kvaðst liann vera næstum vonlaus um, að hann fengi nokkurntíma styrk aftur i fætur sína, og þannig leið veturinn í mestu sorg og armæðu fyrir tviburunum. Genevieve vakti allar nætur við rúm bróður síns, og hverri stund, sem hún gat tekið írá vinnu sinni, varði hún til að ann- ast um hann. Þó að hann kvartaði ekki mjög um ástand silt, gat hann þó ekki að sér gert að óska þess, að dauðinn vildi leysa sig undan að vera þannig öllum til þyngsla, og einkum systur sinni, þvi hann sá, hversu hún eyddi kröftum sínum, og hann fann hversu ógæía sín hafði svitt hana allri gleði. »Óskar þú mér þá dauða, þegar þú talar svona«, var hún vön að segja grátandi, þegar hann var þannig að telja harma- tölur sinar. »Heldurðu að eg geti lifað lengi, ef að þú fer og skilur við mig. Mér finst eg lika stundum vera að dauða komin, því mér er stundum ilt í höfðinu, og fæturnir geta varla borið mig, svo eg er næstum þvi eins og þú«. »Eg' trúi því vel«, sagði sjúklingurinn, »en það kemur alt af þreytu; þú hetur enga hvild nótt eða dag«. »Vertu óhræddur um það; Guð hefir gefið mér krafta til að vinna, og sú von, að eg fái aftur að sjá þig hressan við hina gömlu iðju þina, heldur mér við heilsu. Láttu ekki hug- fallast góði bróðir. Hefurðu ekki séð storminn og regnið leggja kornöxin flöt til jarðar, og þó hafa þau risið upp fagrari en áður eftir liæga golu á sólskinsdegi«. Þessi huggunarorð hinnar viðkvæmu elsk- andi systur hölðu nú þann árangur að létta þunglyndi hans, og gefa honum von um, að hann mundi aftur ná kröftum sinum. En til þess að gleyma ekki íþrótt sinni, og týna ekki niður hagleik sínum, skemti hann sér með að búa til ýmislega snillilega smíðisgripi á stóli sínum, þar sem hann var settur, þar á meðal gerði hann lítinn fjögra hjóla vagn á fjöðrum, og var hann olt glaður að hugsa til þesss, að einhver af félögum sinum gæti dregið sig i hon- um annaðhvort til kirkjunnar eða út á leikvöll bæjarmanna á helgidagskvöldum, til þess að hann gæti horft á leiki þeirra, þó að hann gæti ekki sjálfur tekið þátl i leiknum. Systir hans, sem var í vitorði með um leyndarmál þetta, og hafði útvegað honum alt sem til vagnsmíðisins þurfti, hafði annað í hyggju, og það var, að enginn skj'ldi draga þenna vagn, þegar hann væri sest- ur i hanú, nema hún sjálf. Og þegar hún var búin að búa sig út og reyna vagninn nokkrum sinnum, fann hún, að hún mundi vera fær um að fullnægja ósk bróður síns, er hann girtnist mest af öllu, að hann skyldi geta verið við guðs- þjónustugerð fyrsta Hvítasunnudag í kirkjunni hjá Artena)’, sem lá nærri þvi mílu frá bænum. Það sem hin glaða systir var einkum í vandræðum með var það, hvernig hún ætti að koma bróður sinum, sem ekki þoldi neinn hristning í vagnin- um yfir hina ósléttu steinlögðu götu í gegnum bæinn sem var á kirkjuleiðinni, en svo hafði hitt vinnufólkið komizt við af þessum systurlega kærleika hennar, að allur vegurinn var í dögun á helgidagsmorguninn, þegar til kirkjunnar átti að íara, lagður með hálmi, svo þykl, að hinn sjúki kendi sér einkis meins. Frá níundu stund um morguninn stóð allur þorri bæjarbúa beggja megin við kirkjuveginn til að sjá systurina, sem ekki vildi láta neinn taka þátt í þvi að aka bróður sínum til kirkjunnar, sem hún og gerði svo laglega og liægt, að enginn hefði getað gert það eins vel. En hún var feimin og eins og utan við sig, þegar hinir góðu nágrannar litu til hennar Jilíðlega, og báðu systkinunum allra virta. En það sem einkum fékk á hjarta henn- ar var hve hinn æruverði prestur tók henni vel i augsýn allra. Hann talaði um hana fyrir sókn- arfólki sínu eins og fyrirmyd í kristilegum kær- leika og systurelsku, og bætti við með heitum orðum bæn ylir systkinunum, og sagði að end- ingu við hana blíðlega: »Vertu hughraust, dótt-

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.