Dvöl - 01.09.1914, Side 2

Dvöl - 01.09.1914, Side 2
34 D V 0 L. talaði við Hyde um kvöldið voru sögð í þeim tilgangi, að egna hann til reiði, og hann vissi, að sér var ætlað að kaupa þau út með reglu- legri hólingöngu. Og þegar hann fór betnr að hugsa um það, virtist honum það vera knýj- andi nauðsyn; og að rannsókn þessari endaðri lauk hann upp skrifborði sínu með mikilli á- nægju og hikaði sér ekkert, tók blek og penna og skrifaði þessi ákvörðunarorð: »Til yfirherforingja Rickhard Hyde i þjón- ustu hans konunglegu hátignar. Herra! Maður með minum lyndiseinkun- um getur ekki látið það vélræði og skammar- legu athöfn, sem þér hafið gert yður sekan í, sleppa við hegningu. Sannfærið mig nú um, að það sé meira af tign í yður en eg hefi ástæðu til að halda, með því að mæta mér annað kvöld um það leyti að sólin gengur til viðar í skógin- um við Kolchhook-hæðina. Einvígisvottar okkar geta ákveðið staðinn. Og svo að þér hafið enga á- stæðu til að tefja, þá sendi eg yður tvö sverð, sem eg leyfi yður að velja um. í millibilinu er eg yður til þénuslu. Níels Semple«. Fyrir einvígisvott sinn hafði hann valið Ad- rian Beekmann. Það var ungur, rikur og vel ætt- aður maður, mjög gefinn fyrir að láta mikið á sér bera, og meira að segja svo vandfýsnislega elskur að heiðri, að Níels var harðánægður í því tilliti. Eins og hann hafði vænt, tók Beekmann upp á sig þennan starfa með ánægju, og hann uppfylti svo nákvæmlega fyrirskipanir hans, að hann hitti yfirherforingja Hyde í fasla svefni og hann beið eftir honum. En Hyde var hvorki hlessa né leiður yfir þessu, heldur hló dátt að bráðlæti herra Semples í því að hefna sín, og hann sendi herra Beekmann til kafteins Erle og bað hann um að vera sinn einvígisvott, og fól honum bæði að velja um sverðin og útvelja ein- vígisstaðinn. Kurteisari, þægilegri og fallegri herra er ómögulegt að finna en þennan einvig- isvott, hugsaði Hyde. »Mér finst samt, að heita oflætisfulla skapinu í Níelsi sé alt þetta að lcenna«. Beekmann var með lífi og sál á Níelsar máli, og lét með kurteisi í Jjósi vanþóknun sína yfir athæfi Hyde. Jafnvel þó Hyde hefði tekið áskoruninni léttlyndislega var hann þó í raun og veru ófúsari til hólmgöngunnar en Níels. Hann fann í hjarta sínu, að Semple hafði rétt fyrir sér og hafði ástæðu til að vera reiður, en svo lagði hann það svona niður fyrir sér: »Ní- els er dramblátur og fordildarsamur, sem eg hefi aldrei getað gert að vini mínum; en mér fellur samt illa að móðga föður hans fyrir alla hans gestrisni, en hverjum skyldi lika hafa dottið í liug, að Níels elskaði Katrinu, þessa aðdáunar- verðu stúlku? í sannleika datt mér ekki i hug, að hann væri svo glöggskygn, og nú er orðið of- seint að laga það. Eg vil lika miklu heldur missa lífið en stúlkuna, af því eg finn á mér, að ef liún verður annars manns kona, þá verður mér lílt bærilegt lífið«. Það sem eftir var af næsta degi notaði Ní- els til að skrifa arfleiðsluskrár og ráðstafa störf- um sínum; hann þekti sjálfan sig nógu vel til þess að vera viss um, að ef hann ætti fyrsta höggið, þá mundi liann ekki verða lengi að veita Hyde banasárið, og engin önnur endalykt en sú mundi fullnægja sér. Hyde fann sömuleiðis til dauðlegs haturs til mótstöðumanns síns, og sá jafnframt, að sér var nauðsynlegt að ráðstafa starfi sínu og horga skuldir sínar, en til allrar ógæfu var efnahagur lians í mesla ólagi, því hann skuldaði talsvert, sem hann liafði gefið æruorð sitt upp á að borga; sömuleiðis var skuldin til Cohens enn þá óborguð. Hann herti sig upp, drakk kaffi, skrif- aði ýms áríðandi bréf og fór eftir það á mat- söluhús og fékk sér steik og drakk vinflösku. Á meðan hann mataðist var hann að hugsa um Katrínu og Cohen gyðing; að máltíðinni endaðri gekk hann beina leið að búðinni hans. Það vildi þannig til, að það var laugardagur, sabbatsdag- ur gyðinga, og hlerarnir voru fyrir gluggunum, þó sjálf búðin stæði i hálfa gátt, og Cohen sat hjá dótturdóttur sinni inni í kælunni, sem var í búðinni. Hyde gerði sig heimakominn og hugsaði ekkert um, að dagurinn var gyðinga sabbatsdagur. Hann setti hurðina í víða gátt og gekk með skjótum skrefum til þeirra; gyðingur- inn stóð upp á móti honum og sýndi á sér þóttasvip. Um sama leyti gaf hann Miriam dótt- urdóttur sinni höstugt augnatillit, með hverju hann gaf henni til kynna, að hún skyldi fjar- lægja sig, sem hún og gerði, en fór samt ekki lengra en undir tjald eitt úr márisku rósaleðri, er stóð i einu horni búðarinnar, af því hún liélt, að þessi óboðni gestur mundi ekki standa lengi við. Hún varð því hlessa, þegar afi hennar sett- ist niður og þeir töluðust lengi við; hún fór því að verða forvitin, því þó að Hj^de hefði oft kom- ið i búðina, hafði hún aldrei fyrri séð hann svona stiltan og alvörugefinn. Henni fanst líka undarlegt, að afi hennar tók við skjölum og hring, sem Hyde dró af fingrinum á sér á sah- batsdegi; þar að auki var einhver hálíðleg al- vara, sem fylgdi þessu, sem kom henni til að álykta, að eitthvert sorgarspil væri fyrir hönd- um. Þegar þeir um síðir stóðu upp, rétti Hyde honum aðra höndina og sagði: »Cohen! fáir mundu hafa verið svona göfuglyndir og, á þess- um tíma, eins nærgætnir og þér eruð. Eg hefi dæmt yður eftir annara sögusögnum, og dæmt yður rangt. Hvort sem við sjáustum aftur eða ekki, þá skiljum við vinir«. »Þér hafið borgað mér alt eins og heiðarlegum herra sænnr, herra yfirherfoiingi, og eg vildi óska, að hvítu hær- urnar mínar gætu gengið yður til hjarta«. Hyde hneigði sig og Cohen hélt áfram í auðmjúkum málróm: »Orð þeirra réttlátu eiga að festast í minni, en ekki annara manna orð. Menn nefna það lieiður, sem hinn réttláti kallar morð. Eða hvaða afsökun getið þér fært fyrir því, að æða í nótt á guðs fund?« Hyde reyndi ekki að af- saka sig og svaraði því ekki spurningunni. Hann

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.