Dvöl - 01.03.1915, Blaðsíða 1

Dvöl - 01.03.1915, Blaðsíða 1
Uppsöfjn sknfles og bundin við i. okt. en ó- gild nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. Af- greiðslan er (lngólfsstr. 18. Blaðið kostar hérá landi I kr. 25 au., erlendis 2 kr. Helmingur borgist fyr- ir 1. júlí, en hitt við ára mót. D V O L 15. ÁR. REYKJAVÍK, MARZ 1915. HeimiJið (TJie Home), Aframhald. af greininni „Kraftur viljans“. Lauslega þýtt úr ensku (Framh.). Himininn! Það friðsæla land! Að hverju þeir sem niðurbrotnir og þreyttir eru af erfiði jarð irinnar, stýra sinum veika barkarbál yfir bin ólgandi og nppæstu höf lifsins, og eftir langa og hættulega ferð finna þeir bann — og komast óbultir í höfn hinnar eilífu blessunar. Himin- inn er það beimili sem bíður okkar binum meg- in grafarinnar. t*ar mun vinskapur sá sem mvndaðist hérna á jörðunni, og sem hinn barð- lyndi dauði sundurskildi, aldrei framar verða sundurslitin; og aðskildir vinir.skulu mætast aft- ur og aldrei framar skilja. Það er hressandi og uppbfgandi von, þegar vér skiljum hérna á jörð- inni við komu dauðans-engils, að þegar fáein ár hafa liðið yfir höfuð þeirra sem efttr eru, ef þeir eru trúir til dauðans, að þeir eiga að mætast aftur i himninum, okker eilifa helmili, og dvelja þar í nærveru okkar himneska föðurs, og aldrei fara þaðan aftur. Við erum vinir minir hérna megin pílagrímar og framandí. Himininn á að verða okkar eilífa heimkynni. Dauðinn mun aldrei berja á dyrnar á því heimili, og á öllu þvi landi mun ekki finnast ein einasta gröf. Kristnir foreldrar gleðjast mikillega þegar þati á jólum eða hinum almenna bænadegi hafa börn- in sín heima hjá sér; en þar er nærri þvi æfin- lega sonur eða dóttir tjarverandi — fjarverandi landinu, og ef til vill farin úr veröldinni. En ó, hversu mun okkar himneski faðir gleðjast á binum langa þakkhetisdegi í himninum, þegar hann hefir öll börnin sín hjá sér i dýrðinnil Hversu glöð munu bræður og systur verða að sjást aflur eftir svo langan aðskilnað! Máske þau hafi skilið fyrir einum tuttugu árum eða meir við dyr grafarinnar. Nú finnast þau aftur við dyr ódauðleikans. Einu sinni sáu þau gegn- um skygt gler, en nú augliti til auglitis, rotnan- legleika, órotnanlegleika — dauðlegleika, ódauð- legleika. Hvar er nú öll þeirra sorg, freistni og raunir? Þeim hefir verið drekt i dauðahafinu rauða, á meðan þeir gengu þurrum fótum inn í dýrðina. Iasperhlið, hyrningarsteinn úr amehyst og veldishasæti hafa ekki jafnginnandi áhrif á sálu mina og hugsunin um heimilið. Þegar vér erum þangað komnir, þá iátum jarðnesku sorg- irnar hvína eins og ofviðri og æða eins og upp- .æst haf. Heimílið! Látum hásætin fúna og kon- unga og keisararíkin blikna. Heimilið! Látum jörðina farast í jarðskjáll'tum, botnveltast og graf- ast á meðal hópa plánetanna og himinhnettina syngja liksálmana yfir henni. Heim! Engin NR. 3. sorg, engin grátur, engin tár, engin dauði; en heimilið! Sæta yndislega heimilið! Dýrlega ei- lifðarinnar heimilið! Heimili hver með öðrum! Heimili meðenglum! Heimilið með guði! Heim- ili, heimili! Fyrir hina dýrðlegu endurlausn Jesú Krists. Ó, að við öll verðum þess að- njótandi! Urvals samræður. Eftir Platon. Pýtt úr grísku af prófessor C. J. Heise. (Framh.) Æltum við nú hélt liann áfram, ef við er- um annars færir um það. að ákveða af hvaða tegund þessi eru? — Gjarnan. — Skyldi það ekki vera þú, Kebes sem nýtur þess sem þú færð vald yfir, til þess ekki einungis að halda þinni eigin hugmvnd fastri, en sömuleiðis þeirri sem er gagnstæð? — Hvernig skilur þú það? sem við sögðum nýlega. Því þú veist vel, að alt það sem þrenningar hugmyndin tileinkar sér, hlýtur ekki einungis að vera þrent, en líka ó- líkt? — Já, — en um eitthvað þesskonar, segj- um vér, getur það hugtak, sem er þeirri lögun mótstæð, sem leiðir þetta fram, engan vegin komið. — Enganvegin. — En lögun hins ólíka hefir framleitt þetta. — Já, og lögun hins líka er þessu gagnstaéð? — Já, — alt svo getur lög- un liins lika aldrei komið til þrenningarinnar? — Enganveginn. — Þrent á enga hlutdeild i þvi líka? — Nei, — þrír eru alt svo ólikir? —Já, — eg krafðist þvi að mega ákveða hvaða hlutir það eru, sem án þess að vera nokkuð ákveðið gagnstælt, taka það samt aldrei, sein nú þrenn- inguna, sem, þó hún sé ekki þvi beint mótstæð, tekur þetta þó ekki, af þvi það færir æfinlega með sér það sem þeim er gagnstælt, og sömu- leiðis tvenningin hvað hið ólika áhrærir og eld- in er maður tekur tillit til kuldans, og þannig margt annað; skoðaðu nú, hvert þú skoðar þetta þannig, að ekki einungis það eina mótstæða tek- ur aldrei i sig hið annað, en lika, þegar eitt- hvað fer með eina mótstæðuna með sér til þess, og sameinar sig þvi, getur þetta aðfiutta tekið í sig mótsetningu hins annars aðflutta? Endur- kallaðu þelta aftur í huga þinum, þvi það skað- ar ekki að heyra það oft. Fimmtalan mun al- drei taka á sig hina liku lögun, tíu, sem það tvöfalda, ekki lögun þess ólika. Sömuleiðis það tvöfalda, ekki mynd þess ólíka, þvi þetta tvö- falda er annað mótstæði, en tekur þó ekki við mynd hins lika, og ekki heldur því sem er hálft annað, og Ileira þvilikt, sem hálft, lögun hins

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.