Dvöl - 01.04.1915, Síða 1

Dvöl - 01.04.1915, Síða 1
Blaðið kostar hérá landi i kr. 25 au., erlendis 2 kr. Helmingur borgist fyr- ir 1. júlí, en hitt við ára- mót. D V Ö L Uppsögn skrifleg og bundin við 1. okt. en 6- gild nema kaupandi sé skuldlaus við blaðið. Af- greiðslan er í Ingólfsstr. 18. 15. ÁR. REYKJAVÍK, APRÍL 1915. NR. 4. Heimilisáhrif (Home Influence). Aframhald af greininni „Kraftur viljans*. Lauslega þýtt úr ensku. (Framh.). Eðli vort krefst heimilis. Það er hið fyrsta niikilvæga frumefnið í vorri horgaralegu veru. Þetta getur ekki verið fullkomið án heimilis- fræðslu; það mundi ekkert hentugt jafnvægi fást í lifið og innrætið án heimilisáhrifa. Þegar hjart- að er einmana og hrj^ggt, snýr það sér eðlilega iil heimilisins til að fá sér griðastað og hluttekn- ingu. Enginn hlettur er jafn aðlaðandi fyrir hinn þreytta; það er frjófgunarblettur í eyðimörkinni. þar er hin umhyggjusama móðurelska og föð- ursins þolgóði stuðningur og áhrif; þar er hús- bóndans vernd og húsfreyjunnar viðkvæma hluttekning; þar er hópur af elskuríkum bræðr- um og systrum — hamingjusöm í hvers annars félagsskap. Ó, hvað er lífið án þess! Einstæðings- skapur, þjáningasöm og skuggaleg pílagrímsferð gegnum fjarlægar beitilingssléttur og sandauðnir. Heimilisáhrifm ættu að haldast i heiðri fyrir sinn víðtæka áhrifakraft. Það eru einkaréttindi heimilisins að veita náttúru vorri hina fyrstu leiðbeiningu áfram og upp á við. Þau opna sið- gæðislindina, velja útrás hennar og gefa straumnum sín fyrstu áhrif. Þau búa til fyrsta mótið og setja fyrsta innsiglið á hið skapandi eðli barnsins. Þau gefa eftirlöngunum fyrstu myndunina, og veita efnispartana sem annað- hvort munu sykra eða beiskja alt lífið. Þessi áhrif eru óafmáanleg og jafn varanleg og lífið sjálft. í samanburði við þau eru önnur áhrif eins og þau séu rituð á sand eða vax, en þessi þar á móti eru lík djúpum holum, sem eru boraðar í tinnuharðan klett. Til þess að afnema heimilisáhrifin verður að afnema sérhvert jarð- lag af tilveru vorri. Jafnvel lifnar sjálf trúartil- hneigingin undir áhrifum guðhræddrar móður. John Randolph gat aldrei hrist af sér áhrifin af stuttri bæn, sem móðir hans kendi honum er hann var barn. Hún verndaði hann frá að við- urkenna sig trúleysingja. Heimilisáhrifin eru annaðhvort blessun eða bölvun, þau eru annaðhvorl til ills eða góðs, þau geta ekki verið aðgerðarlaus — og í livoru tilfellinu sem er, eru þau voldug; og þau byrja með fæðingu vorri, og ferðast svo með oss gegn- um lífið, og halda dauðahaldi í oss i sjálfum dauðanum, og komast alla leið með oss inn í eilífðina. Þaú eru það almáttuga vald sem þró- ast með oss, af margvíslegum samböndum og samþýði í heimilislífi voru; sérstaklega eru það áhrif manns og konu, foreldra og harna, bræðra og systra, kennara og lærlinga, sem samlaga sig, og samræmnislega blandað, slofnar heimilis- áhrifin. r Urvarls samæður. Eftir Platon. Pýtt úr grísku at prótessor C. J. Heise. (Framh.) Segðu mér það nú aftur frá hyrjun, og svaraðu mér ekki roeð þeim orðum, sem eru fólgin í spurningu minni, en með einhverju öðru, með því þú stælir mig. Eg segi þetla, af þvi að eg, fyrir utan hitt fyr gefna svar, sé sam- kvæmt því sem nú hefir verið rakið sundur, nokkuð annað, sem er jafn áreiðanlegt. Því þegar þú spurðir mig, hvað getur verið i lík- amanum, þegar hann á að vera heitur, vildi eg ekki gefa hið einfalda og áreiðanlega svar: Hiti. En samkvæmt því, sem nú hefir verið sagt, hið fínna: Eldur. Og þegar þú spurðir: hvað mun þá vera í likamanum, þegar hann er sjúkur? þá vildi eg ekki segja: Sjúkdómur, en hitasótt. Og sömuleiðis þegar þú spurðir mig: hvað yrði að bætast við töíu, þegar hún á að vera ólík? vildi eg ekki segja: Ólíking, en sameining o. s. frv. Sjáðu nú til, hvort þú skilur nægilega það sem eg á við. — Alveg nægilega, svaraði hann. — Segðu mér nú alt svo, hélt hann áfram, hvað hlýtur að vera í líkamanum, til þess hann geti lifað? — Sál, svaraði hann. — Og er þetta nú æfinlega tilfellið? — Sjálfsagt. — Sálin flytur þá æfmlega lif í líkamann sem hún býr í. — Æfin- lega, sagði hann. Gula slaufan. Saga frá Nýju Jórvík eftir Amalíu E. Barr. Lauslega pýtt úr ensku. (Framh.) En þó Ióris segði ekkert við dóttur sína áhrærandi heimsókn hennar til frú Gordon, talaði hann mikið um liana við konuna sína: »Hver skyldi endirinn verða á öllu þessu? Þú getur séð á andliti Katrínar og allri framkomu hennar«, sagði hann. »Skugginn og þýngdin eru horfin, og hún er orðin eins og hún var áður«. »Nú í eftirmiðdag kom Níels Semple«, sagði liún. »Hann trúði mér varla þegar eg sagði honum að Katrin væri úti. Hvernig ætlar þú, Ióris, að haga þér gagnvart þessum unga manni?«

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.