Dvöl - 01.04.1915, Síða 2

Dvöl - 01.04.1915, Síða 2
14 D V 0 L. »Það verður að gefa honum tækifæri til að tala við hana«, svaraði hann. »Elízabet min, því hefi eg tofað Elder«. »Nú eru samt ástæðurnar orðn- ar breyttar, íóris. Mér fellur Níels Semple illa i geð. Litið hefir hann hugsað um mannorð barns- ins okkar — já. sáralítið. Hann hefir sært hana mest með sverðinu sínu, eg hefi ekkert um- burðarlyndi við hann. Og þú hefðir átt að sjá hve tortrygnislega hann horfði á mig þegar eg sagði honum að Katrín væri ekki heima. Augu hans sögðu mér svo greinllega: »Þú lýgur!« »Látum þá svo vera, góða mín, en hvað hugsar þú fyrir Katrínu?« »Að eins þetta: Einn elskhugi verður að stjaka öðrum til hliðar. Ungi presturinn, sem er nú lijá séra Lambert de Rande, hann er hæði mikil hetja og fallegur. Hann hefir komið frá Surínam og hefir fyrir krossins skuld um- gengist vilta menn og villidýr og skæðar drep- sóttir. Um engan nema hann er nú talað svo mikið í kirkjunni, og eg ætla að bjóða honum að heimsækja okkur. Eg hefi oft séð menn í prestaskrúða, en þá líka jafnframt séð sverðin og tignarmerkin undir skrúðanum, eða með öðrum orðum, úlfa í sauðargæru«. »Gott og vel, Elizabet, honum skal verða boðið í brúð- kaupsveizlu Batavíusar, og komi hentugt tæki- færi fyrri, þá skal eg segja, komdu heim til min og borðaðu og drektu með okkur«. Þannig lögðu hinir elskuriku foreldrar nið- ur ráðin í fávizku sinni. Jafnvel þá, er þau voru orðin vön á allar lundir að haga sér varúðar- lega, sáu þau enga kúgandi ástæðu til að blanda sér inn í hinn eðlilega gang hlutanna. Nokkr- um vikum síðar, þegar þau Batavíus og Jóhanna giftust, ef í því millibilsástandi ekkert gott tæki- færi byðist, þá var hægt að bjóða prestinum, og hafa hann þá sem læknislyf í undir enska her- mannsins; en í millibilinu var Níelsi Semple veilt öll þau tækifæri, sem hans uppæstu skaps- munir veittu honum, til að tala máli sínu við Katrínu. Seinni part dagsins, daginn eftir, kom hann að tala við hana. Annar handleggur hans var ennþá máttvana, og hann var svo fölur og veiklulegur, að hann vann jafnvel meðaumkvun Elízabetar, af því kvenmennirnir eru jafnan rikari af henni en karlmenn. Hún færði honum vín að drekka og lét hann hvíla sig á legu- bekknum og hennar hluttekning verkaði sams- konar tilfinningar í dóttur hennar. Katrín sat við litla rokkinn sinn og spann hör, og Níelsi fanst hún vera einhver sú fegursta stúlka sem hann hefði séð. Hann spurði, hálf gramur, sjálf- an sig um, hví hann hdfði ekki tekið eftir þess- um sjaldgæfa unaði fyrri, og hvi hann hefði ekki fest sér hana áður en meðbiðlar fóru að gera vart við sig. Hann skildi ekki að það var elska sem hafði kallað fram þessa blíðari og fullkomnari fegurðartilfinningar í brjósti hans. Astríka glampann í augunum, roðann i kinnun- um, fögru varirnar, svo eiginlegar til að mæla fögur orð og til að miðla sætum kossum, hjarta sem framleiddi hreinar og elskurikar hugsanir — í stuttu máli, unað sálarinnar, sem kvíslaðist um allan líkamann, þetta hafði Níels lagt merki til og undrast yfir; en hann átti ekki til þá teg- und af ástarreynslu sem giskar sér til aíleiðing- anna af orsökinni. Þar á móti ef Hyde hefði athugað Katrínu mundi hann hafa uppgötvaA að þessi unaður stafaði frá heitari ást til ein- hvers elskhuga. Hann mundi hafa skilið hina heillandi ástarþrá sem fólst í hinni dreymandi þögn, hinu viðkvæma látbragði og litarhættinum,. sem var hið líkamlega einkenni þeirrar sálaiv sem i anda og sannleika umgekst elskhuga sinn; sálar, sem umgekst nærverandi hluti að eins með hyggjuviti, en teygði sig út i hið fjarlæga með sérhverri tilfinningu. Um stund var sam- ræðan blátt áfram almenn; um fundarhöld sendinefndarinnar og gestrisnina sem henni var sýnd; um hin ósvífnu tolllög; um samband hinna nýju frelsishetja, sem nefnd var, eða sem þeir sjálfir kölluðu sig »Synir frelsisins«, og svo um það, að ungfrú María Blankaart hefði mist peninga — um þetta og þvílíkt ræddu þau spaklega, en enginn skemti sér við umræðuna. Svo stóð frú van Hemskirk upp og fór út. Maður hennar hafði sagt að Níels ætti að fá tækifæri til að tala við Katrinu, og það sem hann vildi hlaut að fá framgang. Niels var heldur ekki lengi að nota sér þetta og sagði: »Ivatrín, mig langar til að tala við yður. Eg er veikur og aumur, viljið þér koma til mín?« Hún stóð seint upp nam staðar fyrir framan hann; en erhannreyndi að taka yfir um liend- urnar á henni, þá spenti hún þeim aftur fyrir bak,. hann sótroðnaði, og sagði með áreynslu: »Hví ekki?« »Hendur yðar eru blóðstorknar«, svar- aði hún. »Eg vil ekki snerta þær«. Þetta svar líkaði honum ekki svo illa af því hann tileink- aði það hreinni lilfinningu i brjósti hennar; og hann hugsaði, að fyr eða síðar mundi hún fyrir- gefa sér hólmgönguna, eða sjá hana i sama ljósi og umheimurinn gerði, sem hann lifði og hrærðist í. »Mér fellur þetta sárt, Katrín«, sagði hann, mér fellur þetta sárt, en eg vai-ð að vernda heið- ur minn með sverðinu; og eg varð sömuleiðis að berjast fyrir ást yðar«. »Þér hugsuðuð sáralítið um minn heiður, og með sverðinu gátuð þér ekki verndað hann. Allir hafa talað illa um mig, eg skammaðist mín fyrir að láta sjá mig á götunni, presturinn okkar áleit það jafnvel skyldu sína að heimsækja mig og veita mér áminningm Batavíus hefir aldrei siðan viljað við mig eiga og ekkert traust borið til mín, og hann segir að eg hafi skemt hið góða mannorð Jóhönnu. Og mín elska — er hún þesskonar gersemi að það sé vert að berjast um hana?« »Yðar heiður er minn heiður, Katrin; þeir sem ámæla yður á- mæla mér, elskulega Katrín mín. Yðar líf er mitt líf. Ó, þér átrúnaðargoðið mitt, konan mín!« »Eg vil ekki hlusla á svona löguð orð. Eg segi yður núna skírt og skorinort að eg veað aldrei konan yðar — aldrei, aldrei, aldrei!« »En

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.