Dvöl - 01.04.1915, Síða 3

Dvöl - 01.04.1915, Síða 3
D V 0 L . 15 eg elska yður, Katrín, meira og heitara en yður dreymir um. Eg vil heldur deyja en að sjá yð- ur sem annars manns konu. Sjáið hvað eg hefi liðið einungis fyrir gulu slaufuua vðar«. »En hvað hafið þér látið annan manniíða?« »ó, hve sárt eg óska að eg hefði drepið hann!« »Það var ekki }rðar skuld að þér drápuð hann ekki. — Myrtuð hann ekki«. »Það er óheiðarleg at- höfn, Katrin, að myrða«. »Heiður! nefnið þér ekki það orð. Óvin yðar blæddi meira en tólf undir; að halda áfram að berjast við deyjandi mann er morð, en ekki heiður. Sumir menn kalla yður hraustmenni, en eg segi í hjarta mínu: Niels Semple, hagaði sér sem villimað- ur og bleyða!« »Katrín, eg vil ekki reiðast við yður«. »Eg vildi óska að þér gerðuð það«. »Eg vil það ekki, af því eg er sannfærður nm að sá dagur kemur, að þér iðrist eftir þessi orð, hjart- ans ástin min«. »Eg er ekki hjartans ástin yð- ar og verð það aldrei«. »Hjartans ástin mín, gefið þér mér vin að drekka, eg er svo mátt- vana«. Lági málrómurinn hans og dauðbleika andlitið hrærði hana svo til meðaumkvunar að hún stóð upp eftir víninu og kallaði um leið til móður sinnar til að tala við hann; en Níels hafði samt að minnsta kosti þá ánægju, að hún aumkvaði hann og har vínið upp að vörunum á honum. Frá þessu augnabliki heimsókti hann liana oft, og hirti ekkert um ónot hennar og var sem tilfmningarlaus fyrir öllum hennar svigur- yrðum og fyrirlitningarmerkjum. Og eins og margir karlmenn meta sérhvern hlut þvi meira sem þeir hafa haft meira fyrir að ná honum, þannig varð Katrín honum daglega dýrmætari og eítirsóknarverðari í augum hans. Um þessar mundir fanst Katrínu að hún vera lalsvert ó- frjáls, án þess þó að vera beinlinis vöktuð. Ef hún stakk upp á að ganga inn í borgina þá var það segin saga að annaðhvorl Jóhanna eða móð- ir hennar þurftu að fara út með henni. Henni var ekki bannað að heimsækja frú Gordon, en atburðirnir höguðu sér þannig að henni var það nærri þvi ómögulegt; að eins einu sinni í gift- ingarmánuðinum gat hún talað við manninn sinn nokkur orð. Af þvi jafnvel óþolinmæði Hydes hafði komið til leiðar ákvörðuðum var- úðarreglum. Tortryggni húseigandans liafði vaknað, og rénaði ekki svo skjótt aftur. »Það má enginn grunsamur lifnaður eiga sér stað í húsinu mínu, herra yfirhershöfðingk, sagði hann. »Eg býst við alt öðru af yður«. Og' eftir þessari innblöndun var mjög sennilegt að félagar frú Gordons yrðu nákvæmlega aðgætlir. Það var satt. Konunglegu hermannastöðvarnar voru sam- komustaður hermannanna og stjórnargæðinganna, og yfirmaðurinn sjálfur var í hæsta máta kon- unglega sinnaður. Svo var og Ióris van Heem- skírk ekki sá maður sem nokkur góður borgari vildi kljást við. Persónulega var hann alment elskaður og í félagslífinu var hann formaður heils mannfélags sem hélt í höndum sínum verzlunarlegum og stjórnlegum kröftum, sem enginn vildi eiga ilt við. Giftingarleyfið var fengið hjá landstjóran- um, og það að eins fyrir kröftuga milligöngu mikils metinna manna. Katrín var of ung og stóð enn þá undir valdi föðurs sins; þrátt fyrir prestsvígsluna og giftingarhringinn gat hann hald- ið henni heima hjá sér að minsta kosti í þrjú ár, og þrjú ár kallaði Hyða — er hann talaði við frændkonu sína — heila eilífð af efa og örvilnun. Þetta hafði Hyde bréilega og með stillingu skírt nákvæmlega fyrir Katrínu, svo að hún skildi fyllilega, hve nauðsjrnlegt henni var að haga sér þessu samkvæmt i heimilislífinu, til að geta hald- ið giftingunni leyndri, og hve mikið hún varð að leggja á sig í öllu framferði sínu, til að koma í veg fyrir að nokkur fengi grun um hvað skeð var. Til allrar hamingju var brúðkaup Jóhönnu rétt ókomið og það tók upp alla athygli almenn- ings og fjölskyldunnar Van Humskirks, af því að brúðkaupinu fylgdi stór veizla og danz, svo fólk gat ekki verið að veita athygli því sem minna var í varið. A St. Nikulásarhátiðinni átti veizl- an að standa með mikilli rausn. Snemma í nóv- ember byrjaði undirbúningurinn, slikt stórræði gat ekki skeð án mikils undirbúnings, sérstak- lega húsþvotturinn og því um líkt, sem var svo rækilega gert, að ekki hefði ein fmgurbjörg af ryki fundist i öllu liúsinu. í enda mánaðarins komu þær Ivornelia og Anna með heilan hóp af blómlegum drengjum og stúlkum og hina seinláta, starfsömu eiginmenn sína. Batavíus fann mikið til sin. En alt sem hann gerði, gerði hann með hátíðlegri stillingu. Hann var ekki einn af þessum léttlyndu bjánum, sem geta orð- ið eiginmenn og stjórnað húsi án þess að hugsa um hvaða ábyrgð þeir taka sér á hendur. Berjamórinn. (Framh.). Átta ár liðu samfunda á milli, já liðug átta ár voru síðan við skyldum fyrir ofan túngarðinn. Rannveig ílengdist vestra og Steini fór um þær mundir eitthvað í aðra sókn, en ég var heima fyrst um sinn. Fimm seinustn árin hafði eg þó verið stvrimaður á hákarlaskipi sunnanlands, var orðinn stór og sterkur og ólikur að öllu vaxtarlagi hnútnum honum Eyfa á Berjamónum. En þrátt fyrir það halði eg þó ekki gleymt berja- mónum á hálsinum, Hvammsbrekku eða fossin- um háa niður í gljúfrinu djúpa, og þá ekki heldur leiksystkinum mínum, og verð égaðjáta að þau koma jafnan saman í huga mínum. Steinn og Rannveig þó þau ólík væru, og ég mintist þeirra með ólíkum hng. Þetta alt lék oft og tíðum í huga minum, þó það ekki kæmi i bága við störf mín. Eg fékk orð á mig fyrir að vera hinn ötulasti sjómaður. og hinn hug- djarfasti ef i nauðir rak. Heim i föðurgarð hafði eg ekki komið þessi 5 ár, og er því ekki að furða þó að eg vitjaði hans með glöðum og eftirvæntingarfullum huga.

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.