Dvöl - 01.10.1916, Síða 4

Dvöl - 01.10.1916, Síða 4
40 D V 0 L. »Sittu kjur Dick. Þú sorglegi hirðuleysingi. Þú hefir enn þá einu sinni lent í einvígi! Get- urðu ekki hætt við slíkt er þú ert orðinn svona gamall? »Hvað ertu að segja, mér bar að gera það eins og þú veist. Elsku Yilhjálmur hvað það gleður mig að sjá þig!» »Þessi tuttugu ár sem eg hefi ekki séð þig, Rickharð, hefir þú verið i Amcríku; en eg hefi verið hér og hvar út um heiminn. Eg viður- kenni lika, að eg er undrunarfullur yfir giftingu þinni, og Hyde-herragarðurinn er aðdáanlegur. Eg bjóst við að finna hann moldugan og mosa- vaxinn, — heimkynni froska ogsjúkdóma. Þvert þar á móti, er hann nú þægilegur og fagur bú- staður«. »Þetta alt eru verk, hennar, Katrínar minnar«. »Eg hefi heyrt að hún sé Hollenzk, og án alls efa hefir sú þjóð frammúrskarandi hæfileika til að skreyta og fegra láglendi«. »Hún er engillinn minn. Eg er óverðugur fyr- ir gæði hennar og fegurð«. »Það er þá þess vegna, Dick, að eg hefi aldrei fyrri séð þig í svona góðu skapi; og eg get þá lika sagt þér, á meðan að þú ert í þessu skapi, að eg hefi líka fundið fjársjóð óumræðilega dju'mætan af sömu tegund og þú. I sannleika, Dick bróðir, er eg giftur og á tvo syni«. Augnabliks dauðaþögn kom á eftir þess- ari meðkenningu, og óskiljanlegur skuggi leið skyndilega yfir andlit H}rdes; en hann var skamm- vinnur, og þegar þögnin fór að verða of löng og sorgarleg, sneri Hyde sér að bróður sínum og sagði: »Eg er glaður, Vilhjálmur. Eg er hjartanlega glaður«. »Eg segi þér satt, Dick, þegar Emelía Capel dó, var eg einráðinn í því að gifía mig aldrei; og eg skoðaði þig æfinlega sem hinn verðandi jarl, þangað til eg breytti því einn eftirmiddag í Rómaborg. »Það get eg vel skilið, Vilhjálmur«. »Eg gifti mig obboð viðhafnarlítið, og hefi dvalið síðan á Ítalíu. Það eru ekki nema fjórir dagar síðan eg kom til Englands, og íyrst spurði eg um þig«. »Eg hið þig bróðir minn um að trúa ekki öllu því sem óvinir mínir segja um mig«. »A meðal annars, var mér sagt, að þú værir farinn úr hernum«. »Það er alveg satt. Því þegar eg heyrði að herdeild lávarðar Percys. ætti að sendast til Ameríku, og berjast á móti Ameríkönnm, þá gerði eg konunginum það ómögulegt að senda mig í þvílíka ferð«. »Mér finst sannarlega að illa hafi verið farið með Ameríkana, og eg varð var við að allur borgar-lýðurinn var á sama máli. Kvöldið sem eg kom, höfðu komið slæmar frjettir frá Nýju- Jórvik. Fólkið þar i borginni hafði tekið sér fyrir hendur að brenna mannlíki af lávarði North og landstjóra Hutchinson, og nýju her- deildirnar voru ekki fyrri lentar en 500 af þeim struku í einum hóp. Það var sagt hjá White, að konungurinn hefði grátið, þegar honum bár- ust þessar fréttir. Gulleplið. Eftir Marin Taksvig. Mjög fáfróð gömul stúlka sagði einu sinni við mig: »Eg var fermd upp á Faðirvorið mitt, af því eg kunni ekki annað«, »Það var lika nægi- legt, svaraði eg, og fór þá jafnframt að hugsa um, að öldungis öðruvísi mundi heimur þessi líta út, ef að allir menn væru ekki einungis: »Fermdir upp á Faðirvorið sitt«! en lifðu jafn- framt eflir því; þeir mundu þá hafa fundið þann veg til föður síns — hins allra hluta vold- uga skapara og viðhaldara — sem Jesús hefir lýst svo átakanlega í þessari bæn. Allir trúar- bragðaílokkar mega biðja »Faðir vor« trúar- bragðaflokkar, sem vanalega eru í deilum og ó- friði innbyrgðis. í þessari bæn safnast öll hin sundurlyndu börn við hið kærleiksríka föður- hjarta. Sérhver móðir getur því ekki gert betra en að kenna börnum sínum að biðja þessa bæn; og hún er svo hrein og blátt áfram, að börnin á mjög ungum aldri geta séð og orðið vör við hennar hrífandi fegurð — á sína vísu — og geta svo með hæfilegri leiðbeiningu, skilið henn- ar alt innilykjandi þýðingu. En hafi börnunum verið kent að biðja, svo á að innræta þeim, eða helzt að sýna þeim það með góðu eftirdæmi þeirra eldri að bænin, þetta heilaga samfélag við guð, tilheyrir svefnherberg- inu, en ekki götuhornunum — hún á ekki að notast sem meðal til að vekja vina og ættingja aðdáun fyrir guðrækni barnanna, því þá verður það að eins sjónhverfingaleikur, sem skaðar barnið, og gul.leplið, himneska vöggugjöfin, velt- ur úr lófum barnanna. Eg heimsótti einusinni kæra unga vinkonu mína; á meðan við vorum að tala saman, tók hún elsta barnið sitt, skemti- legan dreng 4—5 ára gamlan, á knje sér, ogbað hann að syngja fyrir mig þenna stutta kvöld- söng: »Eg er þreyttur og fer að hátta«. Dreng- urinn gerði það, og það lét honum svo vel að mér þótti mjög gaman að því. En þegar dreng- urinn hafði hlotið sitt verðuga hrós, lióf hann höfuðið upp og sagði: »Eg get líka beðið guð hvenær sem vera skal:« Og þegar enginn þáði tilboðið, bætti hann við: »Eg get líka sungið danzlög!« Þetta sýndi að honum var ekki eitt af þessu mætara en annað. Eg veit ekki hvort hann kunni íleira, því móðir hans og amma flýttu sér sýnilega vandræðaleg- ar, að breyta umtalsefninu, og til að hlífa þeim lést eg ekkert hafa heyrt. En eg hafði lieyrt nóg. Lát aldrei gulleplið velta úr heudi barnsins, eða pess fullorðna. (Ingemann.) Kv. og Hj. Útgefandi: Torfhildnr I’orsteinsdóttir Holm. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.