Iðnneminn - 01.06.1954, Qupperneq 4
4___l_e_N_N-E_M_l_N_N
Frá Akranesi
Framh. af 1. síðu.
ar einkum og nær eingöngu af því
að fólkið leitar þangað sem atvinnu
er að fá, og er það fyrst og fremst
vinna við sjávarafurðir og í öðru
lagi vinna við iðnaðinn. Það má
telja undravert hve miklum risa-
skrefum iðnaðurinn hefur tekið nú
á síðari árum, og hve tækninni hef-
ur fieygt gífurlega fram.
En samfara þessari miklu hreyf-
ingu myndast miklir erfiðleikar og
margar þrautir þarf að Ieysa. Eitt
af þessum vandamálum er húsnæð-
isleysið, sem víðast gerir vart við
sig, hvað snertir mannabúðir, vinnu-
hús, skóla o. fl. og er þetta eðlilegt.
En þetta er eitt af þeim vandamál-
um er við iðnnemar víðast hvar um
landið eigum nú við að glíma, og á
ég þá einkum og sérílagi við van-
búnað okkar í skólamálum.
Sem sérstakur skóli viljum við
hafa okkar eigin skóla. En eins og
nú er háttum komið verðum við að
hafast við í öðrum skólum, svo sem
gagnfræðaskólum og barnaskólum.
(Þetta er að vísu ekki alls staðar,
því á einstaka stað eru iðnskólar).
Og hefur þetta margs konar óþæg-
indi í för með sér eins og gefur að
skilja. Verzt við þetta er þó að ó-
gerningur virðist vera að koma á
dagskólum eins og málum er komiðl
Barna-
Unglinga-
Kven-
Karlmanna-,
■
með þessu fyrirkomulagi, en sú ný-BI — Kaupgjaldið er ekki upp á
ung er nú að skapast hér á iandi að marga fiska. Það má telja ógjörning
dagskólar eru að riðja sér rúm hjá
iðnnemum. Þetta er að vísu aðeins
á byrjunarstigi, en reynslan sýnir
að þeir þykja henta miklu betur en
kvöldskólar og kemur þar margt til
greina, t. d. væri það eðlilegra, að
eftir að iðnnemi er kominn heim að
loknu dagsverki, ætti hann þá að
eiga frí sem aðrir vinnandi menn,
en í þess stað þurfa þeir að sitja
nokkra tima í skóla, og er heim er
komið þurfa þeir að fara að læra.
Eins og flestum er kunnugt þá
eru dagskólar með því sniði að nem-
inn hættir vinnu í tvo mánuði og
situr þá í skólanum, en heldur samt
sem áður kaupi sínu, en í hinu til-
fellinu er því þannig varið að nemi
hættir vinnu ýmist kl. 3, 4 eða 5,
af því leiðir einnig að nemi fær oft
ekki greidda þá tíma er hann missir
vegna skólans, en á þó rétt á að fá
þá borgaða, og í sumum tilfellum
meira til, og á ég þá við þá iðn-
nema er hafa setið í öðrum fram-
haldsskólum, áður en þeir byrjuðu
nám sitt, og þurfa þess vegna ekki
að sitja eins lengi í iðnskóla, sem
|>eim bæri annars að gera.
Við sjálfa kennsluna í skólunum
er einnig margt sem bæta mætti úr,
enda þótt margt hafi breyzt til hins
betra nú upp á síðkastið. T. d. er
nýtekið upp á því að kenna hjálp
í viðlögum, sem hverjum manni ætti
að vera nauðsynlegt að kunna, hvort
sem hann er iðnnemi eða þá eitt-
hvað annað, en það sem enn virðist
vanta, er kennsla á þeirri hlið náms-
ins er snýr að sjálfri iðngreininni.
Iðnnemar þurfa að vita meira um
það sem viðkemur þeirra eigin iðn-
grein. T. d. er það sums staðar er-
lendis að er rakaranemar eru að
byrja á því að raka menn, að þá
eru þeir látnir fá útblásna blöðru,
og á því eiga þeir að byrja að æfa
sig, og svona mætti lengi telja.
Einnig virðist sem tilsögn meist-
ara til iðnnema á vinnustað víðast
hvar sé mjög bágborinn, og kemur
þetta sér oft mjög illa fyrir iðnnema.
Nú fyrir skömmu birtist hér í
Iðnnemanum grein eftir danskan
iðnnema er nefnist: „Við krefjumst
dagskóla, og heimtum hann nú“. —
Eins og nafnið bendir til þá má sjá
að víðar er pottur brotinn en hjá
okkur í þessum málum, og væntum
við þess að bráðlega megi leysast úr
þessu höfuðvandamáli okkar iðn-
að læra iðn á eigin spýtur. Það er
að segja, ef ekki er gerður samning-
ur á hærra kaupi en nú er almennt.
Kaupið er viss hundraðshluti af
kaupi sveina. Má segja, að það
hrökkvi ekki meira en fyrir fæði.
Vinnufataslit er t. d. mjög mikið
hjá okkur og því dýrt að klæða sig.
— Hvað getur þú sagt mér fleira
úr þínu námi, sem þér finnst um-
talsvert, eða aðkallandi?
— Það er fjölda margt. Þó er eitt,
sem ég sérstaklega vil minnast á,
en það er bóklega námið. Enn þá er
kvöldskóli hér á Akranesi, en það er
eitt af því, sem nauðsynlegt er að af-
nema. Það eru svo ótal mörg rök,
sem mæla með dagskóla, en á móti
kvöldskóla í sambandi við iðnnám-
ið. Óþarft er að rekja það hér.
Við þökkum vélvirkjanemanum
greinargóð svör við þeim fáu spurn-
ingum, sem fyrir hann voru lagðar.
Það hefði verið æskilegt að fara
nánar út í ýmis atriði og spyrja
frekar, en verður ekki gert nú.
Við tökum allir sem einn undir þær
athugasemdir, sem að framan komu,
varðandi iðnnámið og vonum og vit-
um, að það lagast áður en langt
líður. H. S. H.
Lausnir á þrautum í Létt og
þungt:
Vísan er eftir Tómas Guðmunds-
son, skáld.
Maðúrinn er Harry S. Truman,
fvrrv. Bandaríkjaforseti.
Til sumarsins
MARGAR GERÐIR AF:
Rabbað við iðnnema
Iðnnemar eiga sér hugsjónir. Þær
hugsjónir eru tengdar við þá þróun,
er skapazt hefur í iðnaði þessa lands.
Draumur ungs iðnaðarmanns er að
mega sjá iðnaðinum skipaður sá sess
í þjóðfélaginu, að á hann megi
treysta, er sævarins björg oss bregzt.
Ein af höfuðgreinum okkar er
járniðnaðurinn. Við tökum því einn
vélvirkjanema tali og spyrjum hann
nokkurra spurninga.
— Hvernig fellur þér starfið?
— Starfið fellur mér mjög vel.
Þessi iðngrein er ein sú fjölbreytt-
asta, sem um er að ræða. Alltaf
kemur fyrir eitthvað nýtt, svo að
segja má, að aldrei verði hún full-
numin. Stafar þetta mikið af vax-
andi tækni og breytingum á vélum
og öðru, er við er unnið.
— Er tilsögn góð á verkstæðun-
um?
— Tilsögn er alls ekki fullnægj-
andi. Það er allt of mikið af því
gert, að láta lærlinga fikra sig á-
fram og temja þeir sér þá ef til vill
of erfiðar vinnuaðferðir, í stað þess
að kenna þeim rétt handtök og létta
þar með starfið og auka um leið
afköst. .
— Hvernig er svo kaupgjald ykk-
ár?
strigaskófatnaði
HAGSTÆTT VERÐ!
Þórður Ásmundsson h.f.
Akranesi
idóLauerzíun ^4ndréi Yi'ieLion Lj.
Akranesi — Sími 85
HUSGAGNAVINNUSTOFA
Ástráðs J. Proppé
Akranesi
Allar gerðir húsgagna
og innréttinga
NAFNIÐ SANNAR GÆÐIN
Guðvi. A. Þórðarson.
Iðnaðarmenn, Akranesi
Vér bjóðum yður ýmsar efnivörur, er tilheyra sérgrein hvers og eins yðar. Verð og vöru-
gæði viðurkennt.
Höfum venjulega fyrirliggjandi eftirtaldar vörur við yðar sérgreinir: Cement, Kalk, Timbur,
Steypustyrktarjárn, Mótavír, Bindivír, Saum, galv. og venjul., Mani-plast þilplötur, Trétex, Kallit-
þilplötur, 8 teg. af Krossvið væntanlegar, Miðstöðvarofna, Hreinlætistæki, Rúðugler, Línóleum
gólfdúka, Borðlínóleum, Múrhúðunarnet, Þakpappa, Þakjárn, Plötujárn, galv., Þakskífu, Þak-
glugga, bæði fyrir helluþök og járnklædd þök, Rennubönd, Þakrennur og niðurföll, Gluggajárn,
Hurðaskrár, Hurðalamir, Stangalamir, Gluggastengur, Vatnsrör, galv. og ógalv., Gólfkork,
Gluggagyrði, Korkplötur undir línóleum, Einangrunarkork, margar þykktir, Korklím, Steypu-
þéttiefni, Léttblendi (í steypu, sparar efni og gerir betri steypu, þar eð loft myndast í steyp-
unni og eykur einangrunargildi), Málningarvörur, Handverkfæri ýmis konar, Þvottapotta kola-
kynta, Kæliskápa, Hoover þvottavélar o. fl. teg., Hoover ryksugur, Rafmagnshitara, Rafmagns-
straujárn, Rafmagnskatla, Rafmagns brauðristar og ótalmargt fleira. — Leitið upplýsinga, símið
— komið — skoðið — kaupið. Síminn er: 393 — byggingavörudeild — Bárugötu 21, Akranesi.
Virðingarfyllst,
Haraldur Böðvarsson & Co.
Sími 393.
í sjónvarpssímann:
í líunda og síðasta skipti,
hafiiS- fcnRÍð skakkt númer