Ljósberinn - 01.03.1936, Blaðsíða 14

Ljósberinn - 01.03.1936, Blaðsíða 14
60 LJÖSBERINN Föst handtök. »Góðan daginn, gamli skrjódur/« »Gódan daginn, kisi minn«. Æ, œ, sleptu, elska góður.« »Er ég skrjódur, kisi minn?« Ekki svo heimskur. Skóladrengur, sem var álitinn frem- ur einfafdur, kom einhverju sinni inn í garð garðyrkjumanns nokkurs til þess að kaupa af honum tröllepli (melónur). Garðyrkjumaður benti honum á tröll- eplabeðinn og sagði honuro, hvað tröll eplin kostuðu, en verðið var roismunandi eftir stærð þeii'ra, frá 50 aurum upp í 5 krónur fyrir hin stærstu. Drengurinn valdj hið allra minsta af þeim, og sagði um leið: »Það er ágætt, þá kaupi ég þetta. En þú mátt ekki skera það af núna. Láttu það' bara vera þarna þangað til ég kem aftur að sækja það að hálfum mánuði liðnum.« Litli porparinn. Við skóla einn í Osló sagði einn af drengjunum frá því að systir hans hafði fengið mislinga. Kennarinn sagði hon- um þá að fara heim undir eins, og vera heima, þangað til systur hans væri batn- að. — Þegar drengurinn, sem var hinn kát- asti, va.r farinn, rétti einn af skóla- bræðrum hans upp hendina. »Nú, hvað vilt þú?« spurði kennarinn. »Eg vildi bara segja frá því, að syst- ir hans, sem hefur fengið mislingana, á ekki heima hér í Osló, heldur á Ha,mri.« Skrítlur. Sljfgl litli: »Mamma! ég sá rottu hlaupu um garðinn áðan.« Móð'irin: »Hvaða vitleysa er ]>etta! IJ ð hefi; bara verið ímyndun.« Siggi (eftir litla stund): Mamma'. Hefui imyndunin langan hala?« Heir: »Hvað heitir hann sonur þinn, Anna? Annn: »Hann heitir Hans.« (Jeir: »Hans? Er það nafn einhvers ættir.gja þíns?« Anna: »Nei, hann heitir í höfuðið á kóng- inum.« Geir: »Kónginum? Ekki heitir ha'nn Hans. Auna: »Jú, hann heitir nú einmitt Hans Hátign!« Fcrðamaðiir (mætir tveim drengjum á götu; er annar þeirra 8 ára, en hinn 5 ára; seg;ir við þann eldri): »Er þetta bróðir þinn, sem með þér er?« Drengurinn: ,1’essi litli drengur? Nei, fg er brððir hans.« Kennari: »Hver álítur þú að hafi veriö mesta stórmennið, sem uppi hefur verið í heiminum?« Drengur: »Það er liklegast Golíat.« PRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAR

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.