Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Síða 6

Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Síða 6
142___ NÝTT KIEKJUBLAÐ Komum vér á hina sameiginlegu guðsþjónustu með barns- lundina við guð og með bróðurhugann til þeirra sem ásamt oss leita hans á þeirri stundu, þá leikur um oss heita trúar- loftið þar inni, straunmrinn b'er oss, allið samrunna hrífur oss. Og sjálfir léttum vér og löðum, hver um sig, um leið sálir bræðra vorra og systra inn í lífssarnbandið við guð. Vér berumst og berum i senn, eins og lækirnir smáu og mörgu runnir saman í elfuna einu og stóru. Þetta er safnaðar-sambendin, óumræðanlega og óbætan- lega. Það var hún sem var svo aflmikil í hinum fyrstu kristnu söfnuðum sem vér höfurn sögur af. Það var hrær- ing heilags anda, sem var þeim svo áþreifanlegur virkileiki, að þeir fundu eigi betur en að sjálfur staðurinn lirærðist, húsið bifaðist, þar sem þeir voru saman komnir upp á loftinu. Nokkuð má skýra það, og nauðsynlegt er að hugsa um það ogtalaum að, hvað það er margt og margsháttar. stórt og smátt sem spilt getur safnaðar-samkendinni og Iíka eflt liana. Aldrei verður það rælt og rakið lii hlítar. Það verður fyrst og fremst að lærast við að lifast. Og einmitt þess vegna á steypumótið Iivergi síður við en þar, þar sem um lifandi líf er að ræða, sem altaf prjónar sér sjálft haminn, af eilífri ríkdómsgnótt. Og annað orð verður þú að festa þér í minni, kristni vin: Fyrsta og stærsta sporið til safnaðar-samkendar er að þú komir sjálfur inn í kirkjuna með safnaðarhuginn: Að þig langi þangað inn. Að sál þín lifi og hrærist í ])ví sem þar fer fram. — — Heimtaðu ekki ofmikið af prestinum, en bið þú með honum og bið þú fyrir honum! Vertu ekki hótfyndinn við sönginn, en syng þú með sjálfur! Láltu ekki endurtekningarnar þreyta þig. Orðin þau hafa haldið, og halda, um liðnar og ókomnar aldir, miljónum — miljónum sálna í hfsstrauminum frá guði og tii guðs. Og í orðunum þeim lifir hann og laiar til þín frelsari þinn og herra safnaðarins, sem einn megnar að leiða oss til hinma- föðursins. Einmitt í söfnuðinum, í samvistinni, eru orð hans og sakramenti áhrifamest, ok kærleiksvald hans nær þá beztum tökum á hverjum einstökum. Hjá biðjandi söfnuði

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.