Nýtt kirkjublað - 15.03.1910, Blaðsíða 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KHISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1910.
Reykjavik, 15. marz.
6. blað
elsteðs
9§ dra.
Guð margar fagrar segir sögur,
og saga þín er ein af þeim.
Hún öllum þykir furðu-fögur;
hver fósturlandsins sannur mögur
við henni tekur höndum tveim.
Hér upp tókst guði sögu’ að segja, —
ef svo að orði kveða má.
Oss þráðinn langar til að teygja,
þótt taki nú að enda’ að sveigja.
Svo vel hann segir sögu þá.
Guð lét þá sögu lengi treinast,
hun lengur gæti treinzt oss enn.
Þar eitthvað gott mun enn þá reynast.
Við endann ljúki guð sem seinast.
Það gleður alla góða metín.
Og þegar loksins Iyktar saga,
eg lokið góðri skemtun tel.
Hún gaf oss marga glaða daga;
til góðs mun alt að Iyktum draga,
og fagra sagan fara vel.
V. B.