Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1933, Qupperneq 35
Tímarit Iðnaðarmanna.
XIX
Dívanvinnustofa
Jakobs Einarssonar&Co.
Brekkugötu i — AKUREYRl Simi 2iL2.
Býr til allskonar Fjaörahúsgögn, Leikfimisdýn-
ur, Boldangs- og strigadýnur. Sjúkradýnur
með krullull mun ódýrari en hinar venju-
legu krullhárssjúkradýnur. — Höfum búið jiær
til fyrir Siglufjarðarspítala, Heilsuhæli Norð-
urlands og sjúkrahúsið hjer á Akureyri. Reyn-
ast |)ær ágœtlega.
Lóardýnur - stoppaðar með ló frá Gefjun
ættu að komast inn á hvert heimili. Höfum
búið þær til fyrir ýmsa slcóla, svo sem: Lauga-
skóla, Eiðaskóla, Hallormsstaðaskóla og Regk-
holtsskóla.
Bilasæti úr „Epeda“ fjaðraviðjum, eru þau
bestu sem hægt er að fá.
Leggjuin alla áherslu á að hafa sem bestar
vörur.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
»IÐJA«, Akureyri
Sími 190. Fósthólf 111. Símnefni: „Iðja“.
Býr til: Einangrunarsteininn VIKRILL, sem er
jafngóður korki og ekki dýrari.
Fægiduftið DYNGJA og JURTAPOTTA sem
hvorttveggja er eins gott og ódýrt eins og
lilsvarandi útlendar vörur.
G, Bjarnason & Fjeldsteð
Aðalstræti 6. Sími 3369.
Mejt úrval af fata- og- frakkaefnum.
1. flokks saumastofa.
Einnig ágætir rykfrakkar og reiðbuxur.
Sanngjarnt verð.
H.f. Pípuverksmiðjan, Reykjavík
Sími 2551—2751. Framleiðir allskonar steinsteypuvörur.
Leggjum ASFALT á flöt þök, veggsvalir, fi
verksmiðju- og geymsluhúsagólf, húsa- |
garða o. s. frv.
Asfalt er sjálfkjörið efni á flöt þök og
aðra lárétta fleti, þar sem forðast þarf
innrás vatns og raka. Það er afar vel
vatnshelt, áferðagott og framúrskarandi
slitsterkt.
Búum til
LEGSTEINA
Stóra og smáa.
Fjölbreytni í gerð og litum.
Sendum legsteina á allar hafnir gegn
eftirkröfu.
Fyrirspurnum svarað greiðlega.
Búum til einangrunarplötur úr íslenzk-
um vikri.
Innlend reynsla og erlendar prófanir
hafa þegar staðfest, að vikurplötur eru
ágætt einangrunarefni, og hefir ýmsa
kosti umfram erlend efni, er hingað til
hafa verið notuð hér.
Framleiðum ELIT, hið nýja efni, sem
kalla mætti steintrje, bæði einlitt og með
ýmiskonar marmaralíkingu.
ELIT er notuð í yfirhúð á eldhúsagólf,
vinnustofur og víðar, bæði í timbur- og
steinhús; það er steypt í einu lagi yfir
flötinn, svo engin samskeyti koma til
greina.
Það er ekki mjög hart að ganga á því.
Það er sterkt, eldtraust og vatnshelt.