Vikan - 04.01.1951, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 1, 1951
3
Sjötíu og fimm ára afmæli
Thorvaldsensfélagsins
(Sjá forsí^u).
Margt hefur breytzt síðan Thorvaldsens-
félagið var stofnað fyrir rúmum sjötíu og
fimm árum, þegar póstskipið Díana kom
með líkneski Alberts Thorvaldsens, sem
borgarstjórn Kaupmannahafnar hafði
gefið íslendingum í tilefni þúsund ára
byggðar landsins. Myndin var sett upp á
Austurvelli í Reykjavík og mikið um að
vera. Þá var höfuðborg okkar ekki stór og
öðruvísi um að litast en nú: Kirkja 2000
höfuðstaðabúa, opinn lækur frá tjörninni
til sjávar, 200 torfbæir og um 100 timbur-
og steinhús, engin hafnarmannvirki,
„úthafskvika svarraði þar við sand.“
Skreyting Austurvallar, lyngfléttur og
marglit ljósker, var handarverk ungrar og
glæsilegrar sjálfboðaliðssveitar tuttugu og
fjögra kvenna, sem höfðu tekið að sér að
annast þessa hlið undirbúnings hátíðar-
haldanna. Margar þeirra urðu landskunn-
ar fyrir híbýlaprýði og hannyrðalist. Ein
þeirra sagði: „Gaman væri, ef við gætum
nú haldið hópinn og reynt i félagi að láta
eitthvað gott af okkur leiða hér í bænum
í framtíðinni“, og þá varð Thorvaldsens-
félagið til. Þetta er samkvæmt minningar-
riti, er Knútur Arngrímsson samdi, en
ísafoldarprentsmiðja gaf út á sjötíu ára
afmæli félagsins.
Konurnar í þessu mannúðarfélagi voru
ekki í vandræðum með verkefni og svo
hefur alla tíð verið og er enn í dag; eitt
hið fyrsta var að sauma ýmiskonar fatn-
að og skipta honum milli fátækustu heimil-
anna í bænum. Síðan kom bazar og tóm-
bóla, allt í sama augnamiði, og er bazar-
inn löngu þjóðfræg stofnun.
I þessu litla rúmi okkar er fátt eitt hægt
að segja um þetta merka félag, enda eru
myndirnar aðalatriðið að þessu sinni. Nú
er félagið m. a. að vinna að því göfuga
verkefni að koma upp barnaheimili.
Stjóm Thorvaldsensfélagsins. Fremri röð, f. v.: Ásta Kristinsdóttir, meðstjórnandi, Svanfríður
Hjartardóttir, formaður, Sigurbjörg Guðmundsdottir, varaformaður. — Aftari röð: Guðrún Eiríks-
dóttir, ritari, Rósa Þórarinsdóttir, gjaldkeri.
Aðalhátíðahöld Thorvaldsensfélagsins á 75 ára afmælinu fóru fram 19. nóv. í Elliheimilinu Grund.
Formaður félagsins, Svanfríður Hjartardóttir, lengst t. h„ er að halda ræðu. Á fremsta bekk talið
frá vinstri: Borgarstjórafrúin, Vala Á. Thoroddsen;biskupinn; forsetafrúin, Georgía Bjömsson; Rósa
Einarsdóttir, gjaldkeri Thorvaldsensfélagsins i 12 ár; borgarstjórinn í Reykjavik, Gunnar Thorodd-
sen; biskupsfrúin, Guðrún Pétursdóttir; Sophia Hjaltested og Rósa Einarsdóttir.
Bréfasambönd
Framhald af bls. 2.
Rannveig Hjálmarsdóttir (við pilta
15—20 ára),
Ásgeir Hjálmarsson (við stúlkur 15
20 ára). Bæði til heimilis í Fagra-
hvammi, Djúpavogi, S.-Múlasýslu.
Svava Gisladóttir (við pilta 15—20
ára. Æskilegt að mynd fylgi bréfi),
Hvolsvelli, Rangárvallasýslu.
Indriði Sigurðsson (við pilta eða
stúlkur 14—17 ára), Nautabúi,
Lýtingsstaðahreppi, Skagafjarðar-
sýslu.
Helgi Sigurðsson (við pilt eða stúlk-
ur 13—16 ára), Merkigerði, Lýt-
ingsstaðahreppi, Skagafjarðars.
Kristján Pálsson (við pilt eða stúlku
14—17 ára), Hvíteyrum, Lýtings-
staðahreppi, Skagafjarðarsýslu.
Sigríður Eggertsdóttir (við pilta 18
—22 ára. Æskilegt að mynd fylgi
bréfi), 7005 Shepherd Street, Land-
over Hills, Maryland, Washington
D.C., U.S.A.
Erna Guðbjarnardóttir (við pilta 18
—22 ára. Æskilegt að mynd fylgi
bréfi), 51 Maple Dreve, Great Neck,
Long Islands, U.S.A.
Guðjón G. Ólafsson (við stúlkur 15—
16 ára),
Iíristján Guðleifsson (við stúlkur 15—
16 ára). Báðir Skógaskóla, Eyja-
fjöllum.
Ása Max (við pilta eða stúlkur 16—
19 ára),
Eyrún Sæmundsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—19 ára),
Nína Thorarensen (við pilta eða
stúlkur 16—19 ára). Allar á hér-
aðsskólanum Skógum, Austur-
Eyjafjöllum.
Helga Gunnarsdóttir (við stúlkur eða
pilta 15-—17 ára. Æskilegt að mynd
fylgi bréfi), Árgötu 8, Húsavík, S.-
Þingeyjasýslu.
Hildigunnur Halldórsdóttir (við stúlk-
ur eða pilta 15—17 ára. Æskilegt
að mynd fylgi bréfi), Hrannhólum,
Húsavík, S.-Þingeyjasýslu.
Bergljót Sigurbjörnsdóttir (við stúlk-
ur eða pilta 15—18 ára), Sólvöll-
um 6, Húsavík, S.-þingeyjasýslu.
17 ára enskur piitur skrifar okkur
og biður um að komast í bréfasam-
band við stúlku á sínu reki, og múnu
þau skrifa á ensku. Nafn hans og
heimilisfang er:
Richard Franklin, 1 Langland Road.
Llanelly barms, South Wales, Great
Britain.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir (við pilta
14—16 ára. Æskilegt að mynd
fylgi bréfi),
Ellý Vilhjálms (við pilta 14—16 ára.
Æskilegt að mynd fylgi bréfi),
Gerður Þórðar(við pilta 16—18 ára.
Guðrún Finnsdóttir (við pilta 16—18
ára. Æskilegt að mynd fylgi bréfi).
Æskilegt að mynd fylgi bréfi).
AUar á héraðsskólanum Laugar-
vatni, Árnessýslu.
Marinó Haraldsson, (við stúlkur 14
—16 ára allstaðar á landinu, æski-
legt að mynd fylgi bréfunum),
Vatnsfirði, Reykjafjarðarhreppi,
N.-Isafjarðarsýslu.
Lóló Geirsdóttir (við pilta 16—25
ára), Lundum, Stafholtstungum,
Mýrasýslu.