Vikan - 14.01.1954, Qupperneq 2
Viltu vera svo góð að gefa fá-
kunnandi sveitakonum upplýsingar
um félagsvist. Helzt dálítið ítarleg-
ar. Einnig langar okkur til að vita,
hvar félög úti á landi geta helzt
fengið leikrit lánuð til flutnings.
Ég œtla að gefa þér eitt gott ráð
um leið. Það yrði vinsœlt fyrir blað-
ið að fœkka svolítið sakamálasögum
og öðrum álíka uppbyggilegum, en
birta einhverjar af okkar gömlu góðu
sveitasögum eða þá öðrum slíkum.
Fáfróð sveitakona.
Svar: Félagsvist er spiluð alveg
eins og hver önnur vist, nema að
spilað er við mörg borð og þeir sem
vinna á hverju borði færa sig eftir
föstum reglum. Karlmaðurinn flytur
sig á borð með lægra númeri (borð-
in eru öll númeruð), en kvenmað-
urinn fer á borð með næsta númeri
fyrir ofan. Þeir, sem tapa sitja kyrr-
ir, þ. e. a. s. kvenmaðurinn situr
kyrr, en kalmaðurinn sest í annað
sæti við sama borð.
Bandalag íslenzkra leikfélaga, sem
hefur skrifstofu í Þjóðleikhúsinu, að-
stoðar félög úti á landi við allt varð-
andi leiksýningar. Þið ættuð þvi að
snúa ykkur þangað.
Svo þér líka ekki alltaf sögurnar
hjá okkur? En svo er margt sinnið
sem skinnið og glæpasögur eiga
miklum vinsældum að fagna nú á
tímum. Við hér á Vikunni erum held-
ur ekki alltaf ánægð með söguvalið,
en satt að segja, þá er fjárans mik-
ill hörgull á jafn örstuttum sögum,
og við verðum að hafa í svona litlu
blaði, svo það verði ekki alltof fá-
breytt. Munið að við þurfum um
150 smásögur á ári.
Svar: Lagið er eftir Svavax Bene-
diktsson, en erindið eftir Kristján frá
Djúpalæk.
1 Hallormstaðaskógi
er angan engu lík.
Og dögg á grasi glóir
sem gull í Atlavík.
Og fljótsins svanir sveipast
í sólarlagsins eld.
Og hlægjandi, syngjandi, frelsinu
fagnandi,
fylgjumst við burtu það kveld.
Úr Hallormstaðaskógi
ber angan enn í dag.
Og síðan hefur sungið
í sál mér þetta lag.
Því okkar liðna ótta
var engri nóttu lík.
Og ennþá hún lifir í minningu
minni
sú mynd úr Atlavík.
Svar til Sigrúnar, „Kvikmynda-
unnanda" o. fl.:
Utanáskrift Dorisar Day verður í
náinni framtið Warner Brothers,
Burbank, California, U.S.A., þvi hún
er nýbúin að framilengja samning
sinn við það félag. Við eigum þvi
von á að sjá hana í mörgum mynd-
um enn. Áður var Doris búin að
leika í 15 kvikmyndum. Aftur á móti
birtast sjaldan myndir af henni í aug-
lýsingum, því hún lætur aldrei freist-
ast til að mæla með vörum, sem hún
notar ekki, hversu há upphæð sem í
boði er.
1. Hvaða menntun þarf til að
komast i 1. og 2. bekk Kvennaskól-
ans í Reykjavík f
2. Eru stúlkur teknar í heimavist
utan af landi ?
3. Hvað er skólagjaldið yfir áriðf
I). Hvað er kennt í verknámsdeild-
inni ?
Svar: 1. Próf úr bamaskóla nægir
til að komast í fyrsta bekk. Nem-
endur þurfa ekki að taka inntöku-
próf, en að sjálfsögðu verða þeir að
sækja um skólavist. Stúlkur, sem
hafa hlotið meiri menntun og vilja
komast í 2. bekk, verða að sækja
sérstaklega um það til forstöðukon-
unnar.
2. Það er engin heimavist við
Kvennaskólann í Reykjavík.
3. Skólagjald er ekkert, en ein-
hverja smáupphæð þurfa stúlkurnar
að greiða í sjóði.
4. Það er heldur engin sérstök
verknámsdeild við skólann, en nokk-
ur hluti námsins er verklegur.
Viltu birta fyrir mig textann við
lagið Nótt í Atlavik. Eg hef hvergi
séð það á prenti Mér finnst lagið svo
fallegt, en það er alltof sjaldan
leikið.
FORSÍÐUMYNDINA
tók í Reykjavík:
RALPH HANNAM
MUNIÐ
NDRA MAGA5IN
SVIÐLJÓ8
Nú er að verða hver síðastur að sjá nýju Chaplin-mynd-
ina Leiksviðsljós, sem Tripolibíó hefur sýnt síðan á jól-
um. Þetta er afburða góð mynd og mikill fengur í henni.
Snillingurinn Chaplin hefur áhorfandann að vanda al-
gerlega á valdi sínu og lætur hann ýmist veltast um af
hlátri eða fá kökk í hálsinn. En ekki er vert að nota
meira málskrúð um myndina en Chaplin sjálfur, sem
kallar hana einfaldlega: Sögu um trúð og balletdansmær.
Trúðurinn er orðinn gamall og hættur að geta fengið
fólk til að hlægja, þó hann megi muna fífil sinn fegri.
Honum auðnast að bjarga ungri balletstúlku frá því
að fremja sjálfsmorð og endurnýja trú hennar á lífið.
Sjálfur er hann úr leik. Þegar Terry er orðin fræg, fær
hún leikhússtjóra nokkurn til að koma á fót stórri vel-
gerðarsýningu fyrir Calvero. Sýningin verður fullkom-
inn sigur fyrir gamla trúðinn, áhorfendurnir veltast um
af hlátri, en sjálfur hefur hann hryggbrotnað við að
detta ofan í hljómsveitargryfjuna.
Efnið virðist ekki stórbrotið, en í raun og veru sýnir
myndin á gamansaman og um leið hrífandi hátt vanga-
veltur gamanleikarans um starf sitt, mannsins um ellina
og skáldsins um lífið. — Ég hef mesta viðbjóð á blóði,
en samt rennur það í æðum mínum, segir gamli trúður-
inn. Og í lok myndarinnar, segir hann: — Ég er að deyja
og þó er ég þegar búinn að deyja.
Balletstúlkan Terry (Clarie Bloom) og trúðurinn Calvero (Char-
lie Chaplin).
— Bjór, Bach og Beethoven, nú er hátíð, segir gamli trúðurinn,
sem huggar sig við að drekka og leika á liljóðfœri með götusöngv-
urum.
Utgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365
2