Vikan - 19.09.1956, Síða 2
Er hœgt að taka gagnfrœðapróf úr
kvöldskóla. Eru ekki kvöldskólar í
Reykjavík? Hvar eru þeir? Hvað er
námsgjaldið mikið . . .
SVAR: Það eru ekki margir kvöld-
skólar i Reykjavík, en þó eru þeir
til, t. d. Kvöldskóli KPUM og Náms-
flokkar Reykjavíkur.
Við snerum okkur til skólastjóra
Námsflokkanna varðandi spurningu
þína. Hann segir að skóli sinn kenni
ekki undir neitt sérstakt próf, en að
í Námsflokkunum séu flokkar á mis-
munandi stigi í mismunandi greinum,
og að nemendur, sem eru að lesa
utanskóla undir próf geti oft haft
mikið gagn af þeim.
Sennilega er sama að segja um
aðra kvöldskóla.
Hvað á ég að vera þung, þegar
ég er 16 ára og 161 sm. á hœð?
Hvaða litir fara mér bezt? Eg er
með dökk-skolbrúnt hár með rauð-
leitum blæ og dálítið rauð í andliti?
Hvemig er bezt að venja sig af
að naga á sér neglurnar?
SVAR: Haefileg þyngd mun vera
um 58 kg. Sennilega mundu hlutlausir
dökkbláir og grænir litir fara þér
vel. Einnig hlýlegir „beige“litir, brún-
leitir og eggjaskurnlitir. Þar sem við
vitum hvorki hvemig augun í þér
eru á Iitinn né hvort kinnamar eru
gulrauðleitar eða fjólurauðleitar,
getum við ekki nefnt fleiri liti.
Einfaldaata ráðið til að hætta að
naga neglumar er að bera á þær
bragðvont efni.
Bg hafði mikið Ijóst hár, en ég
hef legið á sjúkrahúsi og hárið á
mér var svo rytjulegt, þegar ég kom
hoim, að ég klippti mig. Hvað á ég að
gora til að fá sitt hár aftur sem fyrst.
líér fer það svo Ula að hafa stutt
hár.
SVAR: Rakstur er liklegur til að
örva hárvöxtinn, af því að hann ertir
hársvörðinn. Aftur á móti er það tæp-
ast rétt, að snoðklipping örvi hár-
vöxtinn, nema bara hvað hárið vex
hráðar meðan það er stutt. Það eyk-
ur líka blóðsókn til hárnabbanna, ef
ioft leikur mikið um höfuðið, en við
það örvast hárvöxturinn. Þú ættir
því að ganga sem mest berhöfðuð.
Kínín og járn hafa gott orð fyrir að
*uka mikið hárvöxtinn. Keramít er
Hka mikið notað í þessu skyni. Af
útvortis lyfjum eru kolesterín og
vaselin álitin auka mikið hárvöxt. En
óvíst er hvort það er lyf junum sjálf-
um að þakka eða hvort nuddiö, þegar
lyfiö er borið á, örvar hárvöxtinn.
Báðum lyf junum er nuddað inn í hör-
undið kvölds og morgna, tíu mínút-
ur S senn.
*U cetlaði að reyna að biðja þig
mn að birta fyrir mig kvœðið um
hcma Béttu slmamœr.........
SVAR: Kvæðið um hana Bellu
simamær hafa þau Adda ömólfs og
ólafur Briem simgið inn á hljóm-
plötu með aðstoð hljómsveitar Carls
Billichs. Við vitum aftur á móti
hvorki eftir hvern lagið né textinn er.
Halló! Halló!
Já, hvað heitið þér?
Hvað viljið þér mér,
i bíó, ónei!
Ég þekki’ yður ei.
Halló! Halló!
Nei, ert þetta þú?
Ég þekki þig nú,
þá semjum við frið,
þar slóstu mér við!
Og augun hennar eru bæði blá og
djúp og skær,
hún brosir dátt og hlær.
Hún Bella, Bella, Bella, Bella
simamær
er ekki alveg fædd i gær!
Hún Bella, Bella, Bella, Bella
simamær.
Hún kann á flestum hlutum skil
og kallar Viðtalsbil!
1 ástarmálum gildir aðeins
forgangshrað,
ég ætti bezt að vita það!
Já, i fjöri jafnt sem fegurð
allar út hún slær.
Hún Bella, Bella,
Bella símamær!
Svar til Biggu: Þú getur skrifað
utan á bréf tíl Bing Crosby c/0
Metro-Goldwyn-Mayer Studios, Cul-
ver City, California, U.S.A. Heimilis-
föng allra hinna leikaranna, sem þú
hefur beðið um, hafa áður verið birt
— að minnsta kosti einu sinni. Og af
tillitsemi við þá sem engan áhuga
hafa fyrir leikurum, verðum við að
minnsta kosti að reyna aö forðast
slíkar endurtekningar.
Getur þú ekki komið mér í sam-
band eða vísað mér á mann, sem
smíðar skip inn í flöskur eftir mynd.
Mig langar til að gefa manninum
mínum slíkt líkan af fyrsta bátnum
sem hann var með, í afmœlisgjöf t
nóvember, og þvi er ekki langur tími
til stefnu.
SVAR: Þetta er frumleg og
skemmtileg hugmynd, en því miður
vitum viö ekki um neinn, sem smið-
ar slík líkön hér á landi, en kannski
einhver lesenda Vikunnar geti orðið
þér hjálplegur og bent okkur á mann,
sem fæst við slíkt. Við munum því
geyma heimilisfangið þitt og láta
þig vita, ef til kemur. En þetta verð-
ur varla fyrir næsta afmælisdag
mannsins þíns. Annars höfum við
nýlega lesiö i einhverju dönsku blað-
anna (sennilega Familijoumal eða
MUNIO
NDRA MAGASIN
Hjemmet) um danskan mann, sem
hefur haft sýningar á slíkum skips-
líkönum. En því miður vitum við
hvorki nafn hans né heimilisfang, Blrling á nalnl, aldri og lieimilisfangi
svo það kemur að litlu haldi. kostar 6 krðnnr.
BRÉFASAMBÖND
Viltu segja mér heimilisfang Lindu
Darnell.
SVAR: Linda Darnell leikur hjá
kvikmyndafélaginu Fox. Utanáskrift
hennar er því c/o 20th Century Fox
Studios, Beverly Hills, Hollywood,
California, U.S.A.
Viltu birta fyrir mig dœgurlagið
um hana Önnu. Ég kann lítið úr því,
en einhvers staðar kemur þetta fyrir:
„horfðu á, horfðu á, horfðu á“ og svo
„vekur þrá, vekur þrá, vekur þrá“ . . .
SVAR: Ragnar Bjarnason mun
hafa sungið þetta inn á hljómplötu.
Sigríður Friðriksdóttir (við pilta
eða stúlkur 13—15 ára), Aðalstræti
39, Patreksfirði — Guðrún og Helga
Jóhannsdætur (við unglinga 14—16
ára) Aðalstræti 45, Patreksfirði —
Andrés Þórðarson (við stúlkur 19—
22 ára), Aðalstræti 79, Patreksfirði
Gerður Sveinbjörnsdóttir (við
pilta og stúlkur), Norðurfirði,
Strandasýslu. — Hulda Svansdóttir
(við pilta og stúlkur), Djúpavík,
Árneshreppi, Strandasýslu. — Krist-
ján Pétursson (við pilt eða stúlku
17—22 ára), Skriðufelli, Barðaströnd,
V.-Barð.
Ein er ungmey, sem öllum lízt vel á,
og sem yndi er hverjum að sjá.
Horfðu á, horfðu á og þá fer
hennar mynd aldrei úr huga þér.
Hvað er við þessa vinsælu snót,
sem þér vekur slíkt hugsanarót,
og þér vor finnst er vetur er á?
Vekur þrá, vekur þrá, vekur þrá.
Og ef hún Anna er við
má heyra harmsáran nið,
frá brostnum hjörtum berast andvörp
löngunairsár,
en öll þau örlagarök
ei eru ungmeyjarsök,
þvl hún er aðeins ung og hrein sem
himinninn blár.
Anna hefur eitthvað, sem ofar öllu er,
já, eitthvað sem vekur þrá hjá þér.
ó, það dýra hnoss,
ef þú fengir kross
henni hjá.
Anna brosir, allt er vaíið í geislahjúp,
sem umlauk sálar þinnar djúp.
ó, það dýra hnoss,
6 nú fæ ég koss
henni hjá.
Svör við „Veiztu — ?“
á bls. 4:
1. b). Forsætisráðherra Indlands.
— 2. Sveitastúlkan, sem sýnd var
hér í Tjamarbíó. Leikritið var sýnt
í Þjóðleikhúsinu undir nafninu Vetr-
arferð. — 3. í stinningsgolu (7,5—9,8
m. á sek.). — 4. Enginn. Báðir eru
persónulegir fulltrúar konungsins. —
5. Ekkert þeirra liggur að sjó. — 6.
Ulugi og Atli. — 7. 1896. — 8. Klar-
inett. — 9. Moskva. París og Berlín
ern næstum eins stórar. — 10.
Myrkur.
FORSÍÐUMYNDINA
tók Magnús Th. Magnússon.
Sendið mér
»-—---------->
mánaðarlega, til þess að ég
sé viss um að sjá hvert hefti.
Hérmeð sendi ég:
□ kr. 80.00 fyrir eitt ár.
□ kr. 140.00 fyrir tvö áx.
□ kr. 190.00 fyrir þrjú ár.
Nafn ....................
Heimili .................
Sendið þessa pöntun tii
ERLEND TIMARITy
SIGTÚNI 59,
REYKJAVÍK
Útgnfandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J- 4stþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.