Vikan - 11.03.1976, Page 16
Viðtal við Einar Olgeirsson
SHANGRI LJt I/X0
Sja m RsmuNA
Húsavík er vaxandi bær, og augu
manna hafa loks opnast fyrir framtíð
hans sem ferðamannaparadísar sumar
og vetur, jafnt fyrir innlenda menn sem
útlenda.
Það hefur þótt mjög forvitnilegt við hver
undanfarin áramót, hverju völva VIKUNNAR
mundi spá um óorðinn tíma, því að hún hefur
þótt furðu sannspá og margir vafalaust haft
hliðsjón af forsjá hennar hverju sinni. í árs-
byrjun 1975 spáði hún því t.d., að Húsavík
yrði nokkuð i fréttum það árið, og er það nú á
allra vitorði, að einnig þar hafði hún rétt fyrir
sér. Jarðskjálftarnir þar nyrðra hafa hrellt
marga, og húsvíkingar sjálfir hafa hrist þar
sundur og saman og lifað í eilífum ótta við
eitthvað meira...hvað, veit enginn. Þetta út af
fyrir sig mundi margur segja að væri nægilegt
efni í umsögn völvunnar, en annað er það, sem
færri vita, að þar nyrðra hefur gerst ýmislegt
nú á síðustu árum, sem húsvíkingum mundi
þykja ekki ómerkilegra en skjálftarnir. Húsavík
hefur breyst á tiltölulega stuttum tíma úr litlu
útkjálkaþorpi í virðulegan bæ, sem býður upp á
allar þær þjónustumiðstöðvar, sem nauðsyn-
legar þykja, — og þær mjög virðulegar og
tilkomumiklar. Dæmi skal nefnt hér, sem
ferðamönnum þykir fengur í, en það er hótel
mjög nýtískulegt, með stórum samkomusöl-
um og öllum þeim útbúnaði, sem bestur er
fáanlegur. Og ekki síst vel þekktum og þjálf-
uðum hótelstjóra, sem af kunnáttu, áhuga og
staðfestu rekur hótelið með mikilli prýði og
höfðingskap og tekur virkan þátt í bæjarmálum
á ýmsan hátt, þannig að bæjarbúar segja sín
á milli, að það sé hans verk, hvað bærinn hefur
tekið miklum stakkaskiptum, sérstaklega á
þeim sviðum, sem að ferðamálum lýtur.
Kannski var það þessvegna, að ferðamála-
ráðstefnan 1975 var haldin þar nyrðra, ekki
vitum við það svo gerla, en víst er, að þar var
hún haldin, hótelstjórn og húsvíkingum til
mikils sóma.
Það vita allir, að blaðamenn sniglast víða
þar sem ráðstefnur eru haldnar, af einskærri
forvitni, því færri eru forvitnari en þeir. Og
jr því að ég var nú kominn þangað, því
tá ekki að forvitnast dálítið um hótelið, Húsa-
/ík og hótelstjórann svona í leiðinni? Og endir-
inn á því varð svo auðvitað sá, að ég fór að
ræða við hótelstjórann, sem ég reyndar þekkti
af gömlum kynnum af Hótel Sögu í Reykja-
vík, en hann er Einar Olgeirsson aðstoðar-
tótelstjóri á Hótel Sögu, sem margir kannast
við og í Súlnasalnum hefur hann mörgum
hjálpað við útvegun sætis við borð, þegar
þröng hefur verið á þingi.
— Ég tók í rauninni við rekstri hótelsins
hérna strax í ársbyrjun 1975, en gat sjálfur ekki
flutt hingað norður fyrr en þrem mánuðum
síðar vegna uppsagnarfrests í mínu fyrra starfi,
sagði Einar. Hótelið er rekið af hlutafélagi,
sem stofnað var um það, og eru stærstu
hluthafarnir Húsavíkurbær, Flugleiðir, Kaup-
félag þingeyinga, og síðan fjöldinn allur af
einstaklingum á Húsavík og nágrenni, sem
eiga þar hlutafé. Því menn virðast hafa tekið
hér höndum saman um að koma þessari
aðstöðu upp, og hafa húsvíkingar gert það
með míklum glæsibrag.
— í tilefni þess að ferðamálaráðstefnan
er haldin hér, vil ég taka það fram, að hótelið
er alveg einstaklega vel sett til ráðstefnuhalds
hélt Einar áfram. Af slíku hefi ég nokkra
reynslu eftir þau 10 ár, sem ég var á Sögu.
Þar var mikið um ráðstefnur, svo ég kynntist
ýmsum kostum og göllum, sem á því voru þar.
Einar Olgeirsson hótelstjóri á nýja hótelinu
á Húsavik. Einar /ærði fyrst I Sjálfstæðishús-
inu við Austurvöl/ hjá Schröder yfirþjóni og
var á Gullfossi á sumrin. Síðar fór hann að
Hóte/ Sögu, þar sem hann var aðstoðarhótel-
stjóri. Þar var hann í um 10 ár, eða þangað til
hann tók við núverandi starfi.
16 VIKAN 1 1. TBL.