Vikan - 11.03.1976, Side 18
„ÉG Ji EKKi JiNNJi i
Bandaríski leikritahöfundurinn Tennessee Williams hefur
sett töluverðan svip á íslenskt leikhúslíf í vetur. Sýning
Þjóðleikhússins á Sporvagninum Girnd eftir hann síðastliðið
haust vakti mikla athygli og hefur hlotið góða aðsókn.
Skömmu eftir áramót frumsýndi svo Leikfélag Akureyrar
Glerdýrin, en fyrir það leikrit varð Tennessee Williams fyrst
þekktur höfundur. Tennessee Williams hefur nýlega gefið út
endurminningar sínar, og á
byggð.
,,Ég hef aldrei skrifað um neinn
löst, sem ég hef ekki kynnst af
eigin raun." Þetta lét bandaríski
leikritahöfundurinn Tennesse
Williams hafa eftir sér fyrir mörg-
um árum, en í leikverkum sínum
hefur hann meðal annars fjallað
um grimmd, græðgi, drykkjusýki,
eiturlyfjafíkn og óseðjandi kyn-
hungur svo eitthvað sé nefnt.
Tennesse Williams hefur aldrei
skýrt frá- því, hvort hann telur
kynvillu til lasta, en hann hefur
fjallað um hneigð til sama kyns í
verkum sínum. Og í nýútkomnum
endurminningum sínum dregur
hann enga dul á, að hann laðist
fremur að körlum en konum.
Hann kveðst aðeins einu sinni
hafa sængað með konu. Sú var
brjóstastór stúdína, sem hann
kynntist í háskólanum í lowa.
Tennesse Williams tók ungur að
skrifa. Sautján ára samdi hann
þeim er þessi grein aðallega
fyrstu sögur sínar og orti sín
fyrstu Ijóð. Þá var hann svo feim-
inn, að hann blóðroðnaði ef
einhver leit beint framan í hann.
Skömmu seinna sá hann sýningu
á Afturgöngum Ibsens, og eftir
það var hann staðráðinn í að verða
leikritahöfundur.
Williams varð að hætta námi í
kreppunni, því að þá dróst skósala
föður hans, en hann var skókaup-
maður, mjög saman. Williams var
þó ekki óheppnari en svo á at-
vinnuleysisárum kreppunnar, að
hann fékk starf hjá International
Shoe Company, þar sem hann
burstaði skó í þrjú ár. Síðan hóf
hann nám að nýju, en það gekk á
ýmsu. Árið 1935 fékk hann tauga-
áfall, og háskólaprófi lauk hann
ekki fyrr en árið 1939.
Þá hafði hann löngu ákveðið að
gerast leikskáld og lagði því bæði
Þóra Friðriksdóttir sem Btanche og Margrét Guömundsdóttir sem
systir hennar í Sporvagninum Girnd í Þjóðleikhúsinu.
Tennesse Williams við ritvélina. i mörg ár gat hann ekki skrifað neitt
án þess að nota einhvers konar vímugjafa.
18 VIKAN 11. TBL.