Vikan - 11.03.1976, Page 43
LJÓMANDI
MARENGSTERTA
200 gr. flórsykur (sigtaður)
4 eggjahvítur
100 gr. smátt brytjað súkkulaði
100 gr. niðursneyddar döðlur.
Stífþeytið eggjahvítur og 5 matsk.
af flórsykrinum saman. Bætið
síðan afganginum af flórsykrinum
ásamt súkkulaði og döðlum var-
lega saman við. Smyrjið ofnplötu
vel með Ljóma og sáldrið hveiti
yfir. Jafnið deiginu í tvo kringl-
ótta botna á plötuna og bakið i
2 klst. við 100°C (210°F).
1-2 pelar þeyttur rjómi
Þeyttur rjómi settur á milli botn-
anna og ofan á, ef vill. Kakan
sett saman 4-6 klst. áður en hún
er borin fram.
JARÐARBERJATERTA
4 eggjahvítur
1 bolli sykur
2 bollar kókosmjöl
100 gr. brytjað suðusúkkulaði
1 peli rjómi
1 heildós jarðarber
Eggjahvítur og sykur stífþeytt
saman. Kókosmjöli og súkkulaði
blandað varlega saman við.
Smyrjið ofnplötu vel með Ljóma
og sáldrið hveiti yfir. Jafnið síðan
deiginu í tvo kringlótta botna á
plötuna
Bakist við 150°C (300°F) í u.þ.b.
30 mín.
Botnarnir lagðir saman með ein-
um pela af þeyttum rjóma ásamt
einni dós af jarðarberjum, sem eru
marin út í rjómann.
APRIKÓSUTERTA
125 gr. bráðið Jurta
125 gr. flórsykur
3egg
125 gr. hakkaðar möndlur
(200-300 gr)
apríkósumauk (ekki of sætt)
1 peli þeyttur rjómi
Jurta, flórsykur og eggjarauður
hrært saman, þar til hvítt. Bæt-
ið þá möndlunum saman við.
Bætið siðast stífþeyttum hvítun-
um varlega út í.
Látið apríkósumaukið í botninn
á Ljóma smurðu eldföstu móti,
og hellið síðan deiginu yfir aprí-
kósurnar. Bakað í 1 klst. við 150°C
(300° F).
Kökuna má bera fram í mótinu
ásamt þeyttum rjóma. Einnig
má láta kökuna bíða í mótinu
til næsta dags, láta hana þá
á fat og skreyta hana með þeytt-
um rjóma.
11. TBI». VIKAN 43