Vikan - 18.08.1977, Blaðsíða 43
Dagur með bömum
í bústöðum
Hann Hermann Ragnar gerir það ekki endasleppt í barna-
málum! Hann hefur nú um margra ára skeið kennt börnum
frá fjögurra ára aldri að dansa, og nú hefur hann tekið að sér
gæslu barna. Það eru Æskulýðsráð Reykjavíkur og
Bústaðasókn, sem að þessari starfsemi standa, en auk
Hermanns gæta 6 unglingar barnanna.
Börnin í Bústöðum kynnast mörgu, sem er í senn
skemmtilegt og fróðlegt. Þeim gefst tækifæri til að taka þátt
í íþróttum, þau syngja mikið og útileikir eru mjög vinsælir hjá
þeim, þegar veður leyfir. Þegar rigningin bylur á þakinu, er
nnargt hægt að taka sér fyrir hendur í Bústöðum, þau teikna
og halda jafnvel tískusýningar. VIKAN fylgdist með
Hermanni og börnunum hans 64 á ferðalagi um Kjalarnes.
Hvað skyldi verða um börn á
skólaaldrinum, sem ekki komast í
sveit á sumrin, og eiga foreldra
sem vinna úti? — Flest þeirra sjá
Urn sig sjálf og eyða deginum við
leiki úti við. Mörgum þeirra leiðist
eflaust, vinirnir í sveit og mamma
°g pabbi í vinnunni. Þá er nú
ésköp leiðinlegt að koma inn og fá
sér eitthvað að borða aleinn í
^ádeginu.
Vikan komst á snoðir um, að í
Bústaðahverfi væri starfrækt eins
konar „gæsla" fyrir þessi börn,
nánar tiltekið í Bústöðum, sem er
félagsheimili í kjallara Bústaða-
kirkju. Hermann Ragnar Stefáns-
son og sex unglingar annast
börnin frá kl. 10 á morgnana til kl.
16 á daginn. Starfsemi þessi er
samstarf Æskulýðsráðs Reykja-
víkur og Bústaðasóknar, en er
ekki bundin eingöngu við börn úr
Bústaðahverfi. Börnin koma með
nesti með sér, en fá mjólk á
staðnum.
SLÖKKVILIÐIÐ SETTI ÚTKALL
Á SVIÐ
Ótal margt er gert fyrir börnin í
Bústöðum. Þau fara mikið á söfn,
s.s. Þjóðminjasafnið, Sædýra-
safnið og Náttúrugripasafnið,
heimsækja Norræna húsið og fara
á vinnustaði. Hermann sagði að
einstakt væri, hversu hlýlegar
móttökur þau hefðu alls staðar
hlotið, allir hafa verið boðnir og
búnir að aðstoða og kenna
börnunum. Sem dæmi má nefna,
þegar þau fóru í Slökkvistöðina í
Reykjavík. Rúnar Bjarnason,
slökkviliðsstjóri, gerði sér lítið fyrir
og lét setja á svið útkall, börnin
fengu að setjast inn í bílana, og
varð þeim þetta svo minnistætt,
að þau eru enn að tala um þennan
dag.
Á miðvikudagsmorgnum fara
börnin í Bústaðakirkju til séra
Ólafs Skúlasonar og hann fræðir
börnin um kristindóm, segir þeim
sögur og síðan er sungið. — Mikið
er um íþróttir, börnin fara í
langstökk, spretthlaup og fótbotla,
og í vikulok eru þau börn, sem
bestum árangri hafa náð, verð-
launuð. Á föstudögum frá kl. 14 er
svo „partý" í Bústöðum. Börnin
fá með sér verkefni heim, sum búa
til spurningakeppni, önnur sjá um
leikrit,enn önnur um tískusýningar
o.s.frv. (Vinsælasti sýningarfatn-
aðurinn eru baðföt, hattar og sól-
gleraugu, þótt dömurnar séu
ungar!) Sagði Hermann að
strákunum þætti þetta alveg jafn
skemmtilegt og stelpunum, og
tækju mikinn þátt í þessu.
Börnunum er jafnframt kennt að
taka tillit hvort til annars, og taka
þátt í allri hópstarfsemi. Þó fá
piltarnir sinn „einkatíma” jafnt og
telpurnar, t.d. leika þeir fótbolta á
meðan stúlkurnar fara upp að
Elliðaám að tína blóm.
Sungið og spjallað saman i
lautinni.
33. TBL. VIKAN 43