Vikan - 18.08.1977, Qupperneq 54
I
Erfitt að hætta!
Það er sennilega álíka erfitt að
venja sig af því að naga neglur
eins og að hætta að reykja.
Naglanagarinn líður svipuð
óþægindi og sígarettureykjarinn.
Það finnst víst engin ,,pat-
entlausn" á hvernig á að hætta
að naga neglurnar.
Við getum auðvitað sagt við
okkur sjálf: Jæja, nú hættir þú
þessum ósið og það núna strax.
Og sú aðferð er vænleg fyrir þá,
sem eru óvenju viljasterkir.
En fyrir þá, sem eru ekki eins
sterkir á svellinu eru líka ýmis ráð
og ekkert þeirra er svo kjánalegt,
að ekki megi reyna, ef það skyldi
hjálpa ögn.
Árangursríkast er að velja það
tímabil, sem þú ert í góðu
jafnvægi sem sé, að þér líði vel
andlega og líkamlega. Virtu fyrir
þér hendur þínar og ímyndaðu
þér hve fallegar þær væru með
löngum vellöguðum nöglum.
Reynandi er að kaupa sér gervi-
neglur til að sannprófa, að þú
getur líka haft fallegar hendur,
með löngum nöglum eins og þú
sérð á myndum. Upplagt er að
sétja á sig gervineglurnar þegar
þú ert að horfa á sjónvarp eða
ætlar að lesa því þá er oft hætta
á að bitið sé í neglurnar og
plastbragðið af gervinöglunumer
vont. Sumir tyggja tyggigúmmí
og það gefur nokkuð góðan
árangur.
Um leið og neglurnar hafa
vaxið örlftið þarf að ýta nagla-
böndunum vel upp og jafnvel
sverfa neglurnar, þó manni
finnist ekkert vera til að sverfa.
Það er líka ágæt regla að hugsa
vel um hendur og neglur á
hverju kvöldi, eins og t.d.
tennurnar. En vertu ekki von-
svikinn þó hægt gangi, því það
tekur eyðilagða nögl um 100
daga að vaxa og verða falleg
aftur. Og það skaltu vita, að hafi
þér tekist að safna einu sinni
fallegum, vellöguðum nöglum,
er fremur ólíklegt að þú byrjir að
naga aftur.
Shirley McLaine er ein af þeim,
sem þekkt er fyrir hnyttin tilsvör
auk þess að vera afbragðs
leikkona og skemmtikraftur.
Hún segist lengi hafa alið á þeirri
ósk sinni að sjá Warren Beatty
naktan og að leika með honum í
kvikmynd. En takið því rólega
segir hún, hann er nefnilega
bróðir minn og ég hefi ekki séð
hann nakinn síðan hann var 6
ára og það gæti verið spennandi
að sjá af hverju konur eru svo
trylltar í hann....
Handa brúðunni
hennar
Þessi karfa er eiginlega
innkaupakarfa, en henni má
auðveldlega breyta í brúðu-
vöggu undir uppáhaldsbrúð-
una. Og ef vaggan á að vera
virkilega fín, notast hankinn
fyrir skyggni, sem er fóðrað
með fallegu efni svo og
karfan sjálf. Mikið úrval af
allskonar körfum stórum og
smáum á góðu verði fást t.d.
í Gjafahúsinu, Skólavörðu-
stíg.
Um pens/a
Góðir málningarpenslar eru
dýrir og þessvegna er full þörf
á að ganga vel frá þeim og
hreinsa þá vandlega eftir
notkun. Penslar eiga að
hanga — ekki liggja í krukku
eða dósum. Því lengri, mýkri
og þéttari sem penslarnir eru,
þeim mun betri eru þeir. Og
ef þú ert ,,týpan" sem
„gleymir að ganga frá" er
ráðlégra að kaupa heldur
ódýra pensla og fleygja þeim
eftir notkun.
54 VIKAN 33. TBL.