Vikan - 06.11.1980, Síða 3
Breckenridge Hotel
Fyrsta flokks hótel alveg á ströndinni með stóru
sólarsvæði og sundlaug, bar, veitingasal, sem
orðlagður er fyrir góðar steikur og sjávarrétti.
Hljómsveit og hinn frábæri Kim Charies skemmta á
kvöldin. Aðlaðandi gististaður með góða þjónustu,
einn hinn liflegasti á St. Pete Beach.
FLÓRÍDA
Tilbreyting
og skemmtun
St. Petersburg
ÆVINTÝRALANDIÐ WALT DISNEY
WORLD,
frægasta skemmtisvæði veraldar af sinu tagi með 45
mismunandi sýningar- og skemmtiatriði, ferð sem
enginn Floridafari sleppir. — Dagsferð.
KENNEDY SPACE CENTER
Geimferðastöðin á Kennedy-höfða, með geimskipun-
um Mercury, Gemini og Appollo, sem fluttu fyrstu
mennina út i áður ókannaðar viðáttur geimsins.
Ótrúlegur tæknibúnaður og fróðleg sýn inn i
framtiðina. — Dagsferð.
SEA WORLD OG STARS HALL OF FAME -
ORLANDO
Sea World er stærsta sjávardýrasafn heimsins, þar
sem dýrin leika ótrúlegustu listir. Á 135 ekrum
lands er fjölmargt til fróðleiks og skemmtunar, s.s.
smáþorp i Hawaii- og japönskum stfl, „Fountain
Fantasi Theatre” o.m.fl.
Stars Hall of Fame er safn sem sýnir 200 frægustu
kvikmyndastjörnur sögunnar i frægum hlutverkum
og sviðsetningum. — Dagsferð.
CYPRESS GARDENS
Undir 1800 ára gömlum Kýprustrjám og pálma-
lundum gefur að líta blómaskrúð og litadýrð
náttúrunnar, sem vart á sinn líka, enda eru þessar
220 ekrur lands kallaðar fegursti garður heimsins.
Missið ekki af ballettinum á vatnaskiðum. —
Dagsferð.
CIRCUS WORLD - RINGLING BROS.
Stærsta og fjölbreyttasta sirkussýning i heimi þar
sem dýr og fjöllistamenn leika ótúlegustu listir og
margt annað er til skemmtunar. — Dagsferð.
ST. PETE hefur eitthvað við allra hæfi, og UTSYN
hefur valið farþegum sínum þægilega, hentuga og
viðkunnanlega gististaði við vægu verði.
Brottför á laugardögum.
Verð frá kr. 623.600 í 3 vikur.
St. Petersburg
Beach
St. Petersburg er stærsta borgin á vesturströnd
Floridaskagans. Á kóralrifl úti fyrir ströndinni hefur
risið upp einn vinsælasti baðstaður Florida, St.
Pete Beach með fjölda nýtizku hótela og ibúða.
Ströndin er ein hin bezta sem um getur. Við hvítan
sandinn gjálfra ylvolgar öldur Mexikóflóans. St.
Pete er kyrrlátur staður og kjörinn til hvíldar og
hressingar, en á næsta leiti eru margir áhugaverðir
staðir fyrir þá, sem vilja kynna sér náttúruundur
Florida, gróðurfar, fugla- og dýralif og ýmsa merkis-
staði. Hafgolan heldur niðri hitanum, sem oftast er
þægilegur árið um kring, og sólin skin flesta daga
ársins.
Colonial Gateway Inn
Tveggja hæða bygging með herbergjum og ibúðum,
sem umlykja stóran garð með ágætri sundlaug og
sólbaðsaðstöðu næst ströndinni. Setustofa, bar og
veitingasalur með sjálfsafgreiðslu, þar sem gestirnir
geta valið eins og lystin leyfir af hlaðborði í
sænskum Smörgásbord-stil, einnig útiveitingastaður
með smárétti við sundlaugina.