Vikan - 06.11.1980, Qupperneq 4
SKtÐAFERÐIR
KRANSKJA GORA
Kranskja Gora — einn vinsælasti skíðastaður Júgóslavíu — er slóvenskt þorp
fáeina kílómetra frá landamærum Austurrikis og Ítalíu í tignarlegri fegurð Alpanna.
Skíðasvæðið er fjölbreytt frá 2600 til 5250 fet yfir sjávarmáli.
Skfðabrautir eru samtals 22 km — lengsta göngubraut 3 km. Skautasvell eru þrjú,
bowling og keiluleikur á ís og margt fleira fyrir þá, sem ekki vilja stunda skíði
eingöngu. Hægt er að leigja sleða dreginn af hestum og skoða umhverfið sem er
mjög fallegt. Ágætir matsölustaðir, barir, kaffihús, diskótek og næturklúbbur á
Hotel Kompas.
KOMPAS HOTEL er A-flokks hótel og stendur við rætur Vitrancfjalls stutt frá
skíðalyftum. Nýtt hótel öll herbergi með einkabaði, upphituð innisundlaug og
sauna, leikfimisalur, bowling, billiard, hárgreiðslustofa. Mjög góður matsalur,
taverna bar, næturklúbbur og diskótek.
Lyftur. Nafn. Lengd: Fjöldi pr. klst.
Tog-lyfta Kekec 270 m 300
Tog-lyfta Mojca I. II. 182 m 300
Tog-lyfta Podles 732 m 720
Tog-lyfta Preseka I. II. 836 m 1540
Tog-lyfta Brsnina 420 m 400
Stóla-lyfta Vitranc I. II. 1019 m 290
Tog-lyfta Bukovnik 216 m 600
Tog-lyfta Podkoren 1250 m 900
Fyrir meðal-skíðamenn er mælt með Vitranc I og Podkoren.
Allar hinar lyfturnar eru góðar fyrir byrjendur að undanskildu
Vitranc II, sem er aðeins á valdi úrvals-skíðamanna.
Skíðaleiga (og viðgerðarþjónusta) — Skíðaskóli (30 skíðakennarar)
Vikugjald fyrir skíðaleigu; skíðaskóla og aðgangskort:
Skíðaleiga (skíði/stafir) US$ 18.00
Skíðaskór us$ 9.00
Skíði/stafir/skór uss 26.50
Viku aðgangskort uss 4.50
Skíðaskóli — vikugjald us$ 4.00
Brottför: 20. desember, 17. janúar, 7. febrúar, 7. marz.
14dagar.
Flogið um Kaupmannahöfn. Gisting og hálft
fæði á KOMPAS HOTEL
£í "
II
*
0
u
5