Dagur - 24.02.1909, Blaðsíða 5
i* tbl.
DAGUR.
3. bls.
25. 3. m.
Kosin nefnd í frumvarpið um lögaldur: Ari Jónsson. Lárus Bjarna-
son og Stefán Stefánsson.
Frumvarpinu um stækkun verzlunarlöðar á ísafirði vísað til 2.
umræðu.
Kosin nefnd til þess að íhuga alísherjar kjördæmabreyting: Sig.
Sigurðsson, Jón Sig. Einar Jónsson, Jón Olafsson og Sig. Guunarsson.
Kosin nefnd til þess að raða bót á peningaskortinum í iandinu:
Magnús Blöndal, Jón Magnússon, Björn Jónsson, Jón Jónsson frá Múla
og t’orleifur Jónsson.
Frumvarpið um að afnema Seyðisfjarðarkjördæmi og tillagan um
að láta ekki kjósa þar, felt með öllum atkvæðum gegn 2.
Vantraustsyfirlýsing til ráðherrans samþykt í n. d. með 15 atkv.
gegn 8. Umræður stóðu yfir til kl. S1/^ i gærkvöld. Til máls tóku:
Sk. Th,, J. M., H. H., J. Jóh., B. J. (ritstj.), S. S., J. Ó., B. J. (Vogi),
E. J., B. Sigf., E. P., St. St,, J. S., M. Bi., P. J. og J. J.
Þingsályktunartillagan um vantraustsýfirlýsing til ráðherrans tekin
aftur i e. d.
s. d.
Frumvarpi um stækkun verzlunarlóðar á ísafirði visað til 3. umr.
umræðulaust. — Sömul. frumvarpi um, að Keílavík só sérstakt dóinþing.
Lagt fram frumvarp um breytingar á námulögunum. Flm. Björn
Kristjánsson. Nefnd: Bj. Kristjánsson, Jóh. Jóhannesson, Sig. Gunn-
arsson, Jón Óiafsson og Ben. Sveinsson.
Frumvarp til Jaga um fornmenjasafn. Nefnd: Jón Porkelsson,
Einar Jónsson og Hálfdán Guðjónsson. ,,.......
fingsáiyktunartillaga um að kjósa nefnd til þess að athuga land-
búnaðarmál. Nefnd kosin: Hálfdán Guðjónsson, Björn Jónsson, Sig.
Sigurðsson, Jón Jónsson frá Ilvanná og Bjarni Jónsson.
Þingmenn Reykvíkinga fiytja frumvarp til breytinga á kosningai
Jögunum; kjördagur sé 10. okt. Breytingartillaga frá Sig. Sigurðssyni,
að kjördagur só 1. nóv.
Kristinn Daníelsson flytur frumvarp um, að skifta f’ingeyrariækn-
læknishéraði í tvö liéruð. fingeyrarhórað nái að eins yfir Auðkúlu-,
Pingeyrar- og Mýrahrepp, en nýtt hórað só tekið upp, sem heiti
Flateyrarhérað og nái yflr Mosvalla- og Suðureyrarhrepp.
Frarn heflr komið frumvarp ti) breytinga á lögum um borgaraiegt
hjónaband; numin burt skyldan um að auglýsa 0. fl. — Flm.: Jón
Ólafsson, Bjarni Jónsson, M. Blöndal, Jón Þorkelsson og Jón Jóns3on frá Múla.
Sig. Hjörleifsson flytur frumvarp um mat á síid; séu settir til þess
tveir yfirmatsmenn, annar á Siglufirði og hinn á Akureyri, með 1000
kr. launum hvor.
Lagt fram frumvarp um aðflutningsbaun á áfengi. Flm.: Björn
Jónsson, Björn Kristjánsson, Eggert Pálsson Sig. Gunnarsson og Stefán
Stefánsson í Fagraskógi.
Riddarar urðu 24. f, m.: Sira Árni Jónsson á Skútustöðum, Guðjón
Guðlaugsson sölustjóri, síra Kjartan Einarsson í Holti og Pétur Jónsson
á Gautiöndum.
Magnús Pétursson settur læknir í Strandasýslu.
Bátur fórst nýlega í Keflavík undir Jökli, með 9 mönnum.
Atbs. Símskeytin eru flutt með blaðamannaréttritun, en að öðru
leyti fylgir blaðið skólastafsetningunni svokaliaðri.
Hlutafjel ,Víkingur‘
tekur að sjer allskonar húsabygg-'
ingar; selur búsaefní; hefur fyrir
liggjandi tiibúin búsgögn.
ísafjörður og grennd.
Tvo gainanlciki sýndi kvennfjelagið
„Ósk“ lijer í bænum um síðaslliðna helgi.
Leikendur voru eingöngu fjelagskonur. Eigi
kveður mikið að leikum þessum og virðist
annar þeirra, Strokufanginn eftir Sophus
Neuman, mestmegnis samsafn af blótsyrð'
um, sem væri góðra gjalda vert að fella úr.
Hinn, Einfeldningurinn eptir Erik Bogh, er
heldur hugþekkur. Meðferð leikanna, þó
áfátt væii, sýnir hinsvegar að leikkraftar
kvenna hjer eru jafngóðir sem karlmanna.
Ágóðiun af leikunum rennur í sjóð
tii hjúkrunar fátækum sængurkonum lijer
í kaupstaðnum, og viljum vjer hvetja alla
til þess að efla sjóðinn með því að sækja
ieikina sökum þess.
Hclgi Svcinsson bankastjóri, kom úr
suðurför sinni á sunnudaginn var.
Axel Kctilsson, umboðsinaður ensku
botnvörpufjelaganna kom hingað frá Hull
síðastl. sunnudag. Skipið kom við í Vest
mannaeyjum og var þar iandburður af fiski,
hálft annað hundrað til hlutar. Daglaun
voru orðin 5 kr.
Kaupmcnnirnir lijer hafa nýlega
lækkað blautfisksverðið um ys eyri pd. á
máifiski, smáflski og ýsu. Eykur verð-
lækkun þessi mjög vandræði manna, sem
þó voru ærin, þar sem afli hjer er óvenju
lítiil sökum stakra ógæfta, en fiskverðið
lágt áður og auk þess eigi fengist peníngar
fyrir fisk nerna hjá stöku veizlunum, en
útlend vara í mjög háu verði. Verðlækkun
þessi ætti að verða alþýðu hvöt til þess, að
vinna með samtökum að Yelferð sinni.
Bent Bjarnason, Ijósmyndasmiður á
Bildudal, hefur nýlega misst þrjú börn
úr kíghósta. _______________
Bátstapinn, sem getið er um í sím-
skeyti hjer í blaðinu, höfum vjer frjett eptir
áreiðanlegum og skilgóðum raanni, að verið
hafl að Helin.isandi og formaðurinn heitið
Loftur Loftsson Irá Keiksbakka, ókvæntur
dugnaðarmaður um þrítugt. Plina höfum
vjer eigi heyrt nefnda.
Símtal við líeykjavík kveður ráð-
herrann hafa beðist iausnar. Nýr ráðherra
óútnefndur.