Vikan - 09.05.1940, Síða 7
VIKAN, nr. 19, 1940
7
þegar sjóræningjarnir drukku. Þegar þeir
urðu fullir, varð hann, sem þá var 15 ára,
fyllstur allra. Hann hafði orð á sér fyrir
að vera duglegasti sjómaðurinn og óhrædd-
ur við að slást, svo að sjóræningjarnir
skoðuðu hann sem jafningja sinn. En *Jack
fór alltaf annað veifið á bókasafnið til að
fá sér bækur og tala við ungfrú Coolbrith.
ræningjar kveiktu í „Razzle Ðazzle“ og
sökktu honum. Jack og „Nelson ungi“
gerðu við „Hreindýrið“ og hófu ránsferðir
sínar á ný.
Þeir unnu sér inn 180 dollara á nóttu, en
áttu samt aldrei eyri, því að „Nelson ungi“
drakk eins og svín um leið og hann steig
á land, og Jack fannst hann þurfa að feta
Á San Francisco-flóanum, sem sést I baksýn, lenti Jack London í mörgum ævintýrum.
Hann læsti káetuhurðinni, lagðist upp í
kojuna sína og las hverja bókina á fætur
annarri.
Ræningjarnir drukku, börðust í sífellu
og drápu hvor annan. Bátum var stolið
og kveikt í seglunum. Þetta átti við Jack.
I marga mánuði sigldi hann á „Razzle
Dazzle“, greiddi Jenny skuldina, sá fyrir
fjölskyldu sinni og komst í mörg spenn-
andi og hættuleg ævintýri. Síðan lagði
hann félagsskap sinn við „Nelson unga“,
tvítugan spjátrung, stóran og stæðilegan.
Jack dáðist að honum, þar sem hann
var bláeygur, ljóshærður, hávaxinn vík-
ingur. Eitt sinn þegar sjóræningarnir voru
á fylliríi, urðu mikil læti. „Nelson ungi“
var skotinn í hendina, báturinn hans,
„Hreindýrið“ var dreginn á land og öllu
stolið úr honum. Jack lenti í handalögmál-
um við „Leðurblökuna“, háseta sinn, sem
hafði kveikt í seglum hans. Nokkrir sjó-
í fótspor hans, þó að hann hefði enga löng-
un til að drekka.
Það leið samt ekki á löngu, áður en hann
fór að kunna við sig meðal drykkjufélag-
anna og verða hrifinn af söngvum þeirra
og látum. Þegar honum leiddist, drakk
hann sig blindfullan og alltaf vildi hann
vera fremstur í hverju sem var. Hann hætti
að hugsa um foreldra sína og systkini og
eyddi hverjum eyri á knæpunum. Sjómenn-
irnir voru jafnvel hræddir um, að hann
drykki sig í hel.
Eitt kvöldið sátu hann og „Nelson ungi“
auralausir og skræl þurrir inni á einni
knæpunni, en í þeirri von, að einhver byði
þeim „einn lítinn“. Joe Goose kom þá inn
og sagði þeim, að þeir fengju ókeypis
drykkjarföng á stjórnmálafundi í Hay-
ward. Þeir þurftu ekki annað en fara í
rauðar skyrtur og ganga með blys í kröfu-
göngunni. Að henni lokinni var farið inn
Ekkert mannsandlit er fullkomlega
reglulegt. Það sézt bezt, ef tekin er mynd
af öðrum helmingi þess og gert úr honum
heilt andlit. Þetta kemur meðal annars af
því, að á öllum mönnum er nefið eitthvað
skakkt. 1 tveimur tilfellum af fimm eru
augun ekki í sömu hæð, og á sjö mönnum
af hverjum tíu er annað augað stærra en
hitt. Á mjög fáum manneskjum sitja eyr-
un jafn hátt. Hægra eyrað er oftast hærra
en hið vinstra.
*
Algengasta nafn í heiminum er Wong
eða Wang. Þessu nafni heita að minnsta
kosti 150 milljónir Kínverjar eða um það
bil einn þriðji af íbúum Kína.
*
Þegar Ögmundur biskup var nær orðinn
sjónlaus, þá kaus hann séra Sigmund,
systurson sinn, til biskups og sendi hann
í Noreg. Hann var til biskups vígður, en
fyrstu nótt, sem hann var biskup, þótti
honum koma til sín kona og segja: Ef þú
ert biskup í 20 nætur, þá ríkir þú í 20 ár.
En um morguninn hafði hann fengið mein
í annan fótinn og það dró hann til dauða.
Hann dó 19. nóttina.
*
Enskur hagfræðingur hefir reiknað út,
að 63% af íbúum jarðarinnar vinni við
akuryrkju. *
Því er haldið fram, að menn drepi einn
þriðja hluta af öllum þeim bakteríum, sem
í munninum lifa með því að reykja 1
vindil, 2—3 vindlinga eða eina pípu.
*
Samkvæmt amerísku blaði hefir aldrei
neinn hljóðfæraleikari gist hið fræga Sing-
Sing-fangelsi.
á knæpu og drukkið fast. En Jack og fé-
lögum hans fannst þetta ganga of hægt, og
þeir gerðu sér lítið fyrir, réðust inn fyrir
borðin, tóku flöskurnar úr hyllunum og
fóru með þær út, þar sem þeir drukku úr.
þeim.
Um nóttina laumaði Jack þrem lítrum af
spíritus niður fyrir brjóstið á sér. Á leið-
inni til Oakland, sem var nokkuð löng, voru
innýflin í honum að brenna upp. I lestinni
braut hann rúðu, en það varð til þess, að
allt komst í uppnám, og hann var sleginn
í rot. Sautján tímum síðar vaknaði hann
og var þá nærri dauður.
Hefði Jack verið eins og hinir sjóræn-
ingjamir, hefði hann ekki hætt ránsferð-
um sínum, fyrr en hann hefði fengið kúlu
í gegnum höfuðið eins og „Nelson ungi“,
eða drukknað eins og „Skeldýrið" og
„viský-Bob“, eða lent í fangelsi fyrir glæpi
eins og „Leðurblakan" og „Nicky gríski“.
En hann var of líkur Chaney prófessor til
að láta sér þetta lynda. Þegar mnnið var
af honum lá hann tímunum saman yfir
bókum eftir Kipling, Bernard Shaw og
Zola.
En síðan kom dálítið fyrir hann, sem
breytti lífi hans. Hann og „Nelson ungi“
höfðu grætt mikið og drukkið í þrjár vik-
ur. Klukkan eitt um nótt ætlaði hann um
borð í bátinn sinn við bryggjuna í Ber-
micia, en datt í sjóinn. Straumurinn bar
hann með sér. Síðan sagði hann, að hann
hefði verið svo þunglyndur, að hann hefði
helzt viljað drukkna.
Þegar hann flaut fram hjá Solono-
bryggunni, þar sem nokkrir menn stóðu,
þagði hann viljandi. En þegar enginn
heyrði til hans, tók hann að kyrja líksöng-
inn yfir sjálfum sér. En nú var tekið að
renna af honum og þá ákvað hann að lifa
lengur. Hann klæddi sig úr fötunum og
greip til sundtakanna. Um morguninn lá
hann fyrir framan Mare Island, þreyttur
og tilfinningalaus af kulda. Grískur fiski-
maður, sem átti leið þarna um, dró hann
meðvitundarlausan á land. Þannig lauk
drykkjuskap hans.
Framhald í næsta blaði.
Vitid þér þad?
1. Hvað heitir höfuðborgin í Lit-
hauen ?
2. Hvað olli því, að Newton fann
upp þyngdarlögmálið ?
3. Hve margar miljónir Pólverja
eru nú undir þýzkri stjórn?
4. Hver málaði „Mona Lisa“?
5. Hvað er Kreml?
6. Hvaða borg var kölluð Milki-
farður?
kringum hvaða plánetu er
hringur?
8. Hvaða skáldsagnahöfundur
skrifaði undir dulnefninu Jón
Trausti ?
9. Hvar er Trotzki búsettur núna?
10. Hvar er Geirþjófsf jörður ?
Sjá svör á bls. 14.