Vikan - 20.02.1941, Blaðsíða 10
10
VIKAN, nr. 8, 1941
Heimilið
Matseðillinn.
Saltfiskur í bollum.
200 gr. saltfiskur,
200 gr. soðnar kartöflur,
2 dl. mjólk,
2 egg,
50 gr. smjör,
2 teskeiðar sykur,
100 gr. smjörlíki.
Afvatnaður saltfiskur er soðinn, roðið og bein-
in tekin burt. Fiskurinn er hakkaður með kartöfl-
unum. Hveitið, smjörið, sykurinn og mjólkin er
hrært vel saman við fiskinn. Bollumar eru búnar
til með matskeið og brúnaðar i smjörlíki á pönnu
við hægan eld. Brúnað smjör og brúnaðar gnl-
rætur eru bornar með eða grænmetisjafningur.
Irskur jafningur.
1 kg. lambakjöt,
y2 kg. kartöflur,
2 gulrófur,
4 maírófur,
salt, pipar,
75 gr. smjör.
Kjötið er skorið í sneiðar. Kartöflurnar, gul-
rófumar og næpumar eru líka skornar í sneiðar.
Feitin er brædd í potti yfir eldi. Ofurlitlu vatni
er bætt í pottinn, síðan er grænmetið lagt niður
í hann í lögum og kjöt og krydd lagt á milli lag-
anna. Þetta er soðið saman við hægan eld, þar
til kjötið og grænmetið er orðið meyrt. Gæta
verður þess, að ávallt sé vatn á pottbotninum
meðan sýður. Áður en jafningurinn er framreidd-
ur, er gott að láta lítið eitt af smjöri út í.
Áfasúpa.
1V2 lítir áfir,
40 gr. hveiti,
25 gr. möndlur,
25 gr. kúrenur,
125 gr. sykur,
1 dl. þeyttur rjómi.
Hveitinu og sykrinum er blandað saman og
hrært út með áfunum köldum; sett yfir eld og
hitað þar til sýður og stöðugt hrært í. Soðið í 5
mínútur. Möndlurnar eru hýddar og skomar eftir
endilöngu. Kúrenumar þarf að sjóða sér í vatni
í 5 mínútur. Síðan er möndlunum og kúrenunum
bætt í súpima ásamt rjómanum, sem áður hefir
verið þeyttur.
Getur verið með eða án rjóma.
(Helga Thorlacius: Matreiðslubók.
‘Crtgef. H.f. Leiftur).
Varist að draga út þræði, sem koma upp úr
gólfteppinu yðar. Klippið þá heldur til jafns við
Jóna á teppinu, það lengir endingu þess.
Drottning og konungur.
Þessi mynd er tekin af Helenu Rúmeníudrottn-
ingu og Michael konungi syni hennar á götu i
Budapest, þar sem þau eru við hersýningu. —
Drottningin er nú flúin úr landi.
t»að er ekki sama, hvernig myndin, sem þér
hengið yfir legubekkinn yðar er í laginu. Falleg-
ast er að breiddin sé meiri en hæðin og ljótt er,
að hún sé sporöskjulaga. Ef þér hafið enga nógu
stóra mynd, þá raðið nokkru smærri myndum,
^ helzt skyldum, i staðinn.
Það má varna því að- blettir eftir vatn komi á
koparkranann, ef þér berið ofurlítið af húsgagna-
áburði á hann eftir að þér hafið hreinsað hann.
Áburðurinn vamar því, að vatnið geti nokkuð
unnið á kopamum.
Persian-jakki.
Þröngir skinnjakkar eru mjög í tízku í vetur.
Jakkinn, sem sést hér á myndinni, er úr persian.
Hann er kragalaus, en húfan, sem er úr sama
efni, er fest við hálsmálið. Herðastykkið er stutt,
til þess að jakkinn verki breiðari á herðarnar.
Fellt pils fer vel við jakkann. Taskan er líka úr
persian.
Kvikmyndaleikkonan
Andrea Leeds
hefir eignast 16 marka strák nýlega á St. Vincent
spítalanum í Hollywood. Hún er í augnablikinu
gift frægum íþróttamanni, Robert S. Howard.
I Vitið pér pað?
i 1. Hvenær hófst spænska borgarastyrjöld- |
in og hvenær var henni lokið?
i 2. Hver er þingmaður Gullbringu- og |
| Kjósarsýslu ? i
í 3. Hvenær tóku Italir Albaníu ?
i 4. Eftir hvem er skáldsagan „Anna Kar- I
= enin“ ? |
i 5. Hvenær fóru Italir í striðið?
i 6. Hvað er átt við með orðinu „nælings- |
hagi" ? :
i 7. Hvaða dýr er stærst allra þeirra dýra, |
| sem nú lifa?
í 8. Hver er grafinn undir sigurboganum í =
i París ? |
| 9. Er flóðhesturinn jórturdýr?
i 10. Hvaða fugl syndir með vængjunum ? i
Sjá svör á bls. 14. :
^UUUiuuuiiHUiNiiuummuuMiiiiiiiiMHnmiuuMniimHMnmmiiMiHiiHiii^