Vikan - 01.05.1941, Side 10
10
VIKAN, nr. 18, 1941
Heimilið
Bakið
heima!
Ekki er nokkur vafi á þvi, að köku-
bakstur í heimahúsum hefir stórum
minnkað á undanförnum árum, á
þeim stöðum, sem brauðgerðarhús
hafa verið, til að taka ómakið af hús-
mæðrunum. Það er svo þægilegt, að
geta skroppið út í búð og keypt þar
alls konar kræsingar með kaffinu, ef
gesti ber að garði, og losna þannig
við erfiðið og umstangið, sem bakstr-
inum fylgir.
Ýmaar húsmæður munu þó hafa
verið tregar til að fórna á altari þess-
ara þæginda þeirri ánægju, sem er
því samfara að gefa gestum sínum
ijúffengar, heimabakaðar kökur, og
alltaf hefir það verið talinn kostur á
hverri húsmóður, ef hún kunni að
baka góðar kökur.
En hvort sem þessa breytingu ber
að telja til bóta eða ekki, þá stendur
nú hver einasta húsmóðir andspænis
þeim tveim kostum, að hætta að bera
kökur á borð fyrir heimilisfólk sitt
og gesti eða baka þær sjálf, því að
nú er ekki lengur hægt að hlaupa út
í bakarí, þegar kökur vantar með
kaffinu. Allt hveiti til kökugerðar
hefir verið tekið af brauðgerðarhús-
unum, svo að þau geta nú ekki bakað
annað en þau brauð, sem afhent eru
gegn skömmtunarseðlum.
Þeim húsmæðrum, sem velja siðari
kostinn, vill VIKAN vera hjálpleg
með því að gefa þeim uppskriftir á
kökum, og vonar, að hún geti orðið
þeim áð liði í þessu efni.
Vínarbrauð.
Af því að margir munu einna helzt
sakna vínarbrauðanna af þeim kök-
um, sem bakaríin hafa haft á boð-
stólum, þykir velviðeigandi að byrja
þennan kökudálk með uppskrift af
vínarbrauðum:
500 gr. hveiti.
110 gr. smjörlíki.
45 gr. sykur.
1 egg.
Gerduft til eins punds.
I peli mjólk.
Ögn af kardemommum.
Þetta allt er elt saman í deig og
flatt út. Síðan er flatt út á það 250
gr. smjörlíki og þannig er deigið flatt
út tvisvar. Bakað við góðan hita.
Sumum finnst gott að setja ögn af
vanille út í.
Það hefir mjög mikið að segja, að
deigið og smjörlíkið, sem flatt er út
í það, sé álíka stíft, því að þá er auð-
veldara að fá það til að samlagast.
Ef deigið er of stíft, verður brauðið
þungt og tormelt, en sé brauðið lin-
ara en smjörlíkið, fellur brauðið, þeg-
ar það er tekið út úr ofninum.
Hrökkbrauð.
100 gr. smjörlíki.
500 gr. hveiti.
*/2 I'eö mjólk.
/i teskeið kúmen.
Smjörlíkið og kúmenið er sett út í
hveitið og það hnoðað saman og
þynnt út með mjólkinni og elt. vel.
Flatt út eins þunnt og hægt er og
skorið síðan í tígla með kleinujárni
og stungið með gafli. Látið á vel-
smurða plötu og bakað við hægan
hita, þangað til það er orðið Ijós-
brúnt.
Hrökkbrauð er ' einkar ljúffengt
með smjöri og osti, bæði með tei og
kaffi.
Kafíikransar.
25 gr. smjörlíki.
125 gr. hveiti.
3 matskeiðar sykur.
2 matskeiðar mjólk.
1 egg.
1 /i teskeið gerduft.
llr þessu öllu er búið til deig, sem
siðan er vel hnoðað og flatt út eins
þunnt og hægt er. Skornir út hringar,
með glasi eða bolla og soðnir í heitri
feiti, eins og kleinur.
Tvíbökur.
125 gr. smjörlíki.
500 gr. hveiti.
1 peli mjólk.
Gerduft til eins punds.
50 gr. sykur.
1 egg-
Ögn af kardemommum.
llr þessu er búið til deig, sem síðan
er flatt út og skornar úr því um 30
tvíbökur. Bakað við sterkan hita.
Þegar tvíbökurnar eru orðnar kaldar,
eru þær skornar í tvær sneiðar og
þurrkaðar við hægan hita.
Húsráð.
Þegar púðurkvastinn er þveginn,
er oft hætt við að bómullin innan í
honum hlaupi saman í harða hnoðra.
Sprettið upp eins og tveggja cm. rauf
á hliðinni, takið gömlu bómullina inn-
an úr og setjið nýja í staðinn, þá
verður kvastinn sem nýr.
Meðferð ungbarna.
Sprungur í geirvörtum.
Brjóstamein.
Þessir illræmdu kvillar koma því
miður allt of oft fyrir. Sprungum á
geirvörtum verður helzt af stýrt með
því að halda þeim vel hreinum og
reyna strax að gera við hvert fleiður,
hve litið sem er, og hverja rispu sem
er. Ef geirvörtumar eru mjög sárar
og skinnveikar, svo að konan þoli
naumast að láta barnið sjúga, er
reynt að láta það ná úr brjóstinu
með totusogglasi. Slík totusogglös
eru af ýmsri gerð: hér er sýnd mynd
af slíku áhaldi, sem kennt er við
franskan lækni, Auvard; móðirin sýg-
Totusogglas Auvards.
ur sjálf mjólkina út í glasið, t. d. ef
hún er fastmjólk og barnið á erfitt
með að ná úr henni mjólkinni, en
bamið sýgur svo til sín mjólkina 'um
aðra totu. Hin myndin sinir aðra teg-
und af mjólkursogglasi, sem nota má
á svipaðan hátt, og er líka hentugt
til þess að toga úr geirvörtunni, þeg-
ar hún er lítil. Takist þetta ekki, er
barnið látið sjúga
það brjóstið ein-
göngu, sem minna
er viðkvæmt, en hitt
brjóstið tæmt með
sogglasi eða þurr-
mjólkað sem bezt
verður með hend-
inni, og svo borið á
geirvörtuna tannin-
spritt 2—5%, eða
lagður við hann litill
bórvatnsbakstur. Það lánast oft að
græða litlar sprungur með þessu móti,
ef þolinmæði er höfð og þrif góð.
Verði brjóstið þrútið, spennt og sárt
allt viðkomu, á að
láta við það graut-
arbakstur og binda
það svo upp (klút
bmgðið undirbrjóst-
ið og upp um öxlina
hins vegar), eða
hafður sá umbúnað-
ur með þríhymu,
sem allar ljósur kunna. Grautinn i
baksturinn ætti helzt að búa svo til,
að hræra nokkrar lúkur af hafra-
mjöli út í köldu vatni, svo að verði á
þykkt við graut. Þetta er svo látið
Brjóstaglas.
Mjólkursogglas.
Totusogglas.
yfir eld og hrært í stöðugt og látið
sjóða, þar til orðið er svo þykkt, að
drepa megi eins og smjöri á brauð;
er svo þessi grautur látinn á voð-
fellda léreftsrýju, hún brotin saman
og lögð á spmnguna eða fleiðrið, og
haft svo heitt sem konan þolir, en,
ullarklútur þar utan yfir, og skipt
nokkrum sinnum á dag, og hendin
þeim megin höfð í fatli. Bamið er
auðvitað ekki lagt á það brjóstið, en
mjólkin úr því sogin sem vandlegast
út með sogglasi. Bólgan í brjóstinu
batnar oft við þetta, en ekki nærri
ætíð; konan fær þá hitasótt, brjóstið
roðnar og stimir á það, og þegar svo
er komið, má ganga að því vísu, að
þar er komin ígerð og verður að
skera í (læknir). Bamið er látið
sjúga heila brjóstið, og er mörg móð-
irin svo mylk, að það dugar eitt fyrir
barnið, þapgað til hitt brjóstið er
gróið.
(Davíð Scheving Thorsteinsson:
Bamið, bók handa móðurinni..)
SKRÍTLUR.
Kaupmaður í Kanada setti eftir-
farandi tilkynningu í búðargluggann
hjá sér: „Hefi neyðst til að loka búð-
inni, vegna þess hve mikið er úti-
standandi af skuldum. Listi yfir nöfn
skuklunautanna og þær upphæðir,
sem þeir skulda, munu bráðlega verða
birtur hér í glugganum."
Peningarnir streymdu inn og brátt
gat kaupmáðurinn opnað búðina aft-
ur. —
*
Þau mættust á auðri götu. Hann
vék til vinstri, hún vék til sömu hlið-
ar. Til þess að forðast árekstur, viku
þau bæði til hinnar hliðarinnar og
þannig sitt á hvað, þangað til þau
voru komin fast hvort að öðru. Þá
tókst honum á síðustu stundu að
smeygja sér fram hjá henni og sagði
brosandi um leið og hann tók ofan:
„Sælar, ungfrú, mér var ánægja í
að kynnast yður!“
*
Bemhard Shaw, enski rithöfundurinn
frægi, fékk einu sinni boðskort frá
frægum veiðimanni: „Frú X verður
heima á milli fjögur og sex næstkom-
andi fimmtudag.“
Bemhard Shaw sendi kortið aftur,
en bætti við fyrir neðan: „Herra
Bernhard Shaw sömuleiðis."
HEILDSÖLUBIR6Ð1R: ÁRNl JÓNSSON.HAfNARST.5,REYKJAViK.