Vikan


Vikan - 06.06.1946, Blaðsíða 6

Vikan - 06.06.1946, Blaðsíða 6
6 sig upp með miklum erfiðismunum; hann rétti úr sér og horfði í augu hennar. „Lois, ég get alveg eins sagt það eins og það er, ekki satt?“ „Jú, auðvitað." „Þú ert svo sterk — og ég er ræfill, óhamingju- samur vesalingur. Guð gæfi, Lois, að ég hefði aldrei orðið á vegi þínum.“ „Ó, hættu nú,“ bað hún. „Segðu mér það allt eins og það er. Og ef þig brestur hug, þá mundu það, að ég elska þig og mun ávallt elska þig. Hvað sem fyrir kemur, getur það aldrei orðið öðruvísi." „Ég veit það,“ mælti hann. „Ég finn það — og það gerir aðeins illt verra. Bara að þú elskaðir mig ekki svona heitt.“ „Það get ég ekki. Hvað sem fyrir kemur, John, þá hefir ást mín til þin gert líf mitt miklu auð- ugra.“ „Ég hefi eyðilagt lif þitt.“ „Hvemig þá?“ Hann stóð niðurlútur og hendumar krepptar um sverðshjöltun. „Lois, þú hafðir rétt fyrir þér. Ég er hræddur — vonlaus, hræddur, svo að stappar örvæntingu næst. Ég veit ekki, hvemig ég á að horfa í augu þér, litla stúlkan min. Ég —.“ Hún greip fram í fyrir honum og lagði hönd- ina blíðlega á öxl hans. „John, þú þarft ekki að segja meira. Ég trúi, ég skil -— óskar þú að fá frjálsræði þitt aftur, John?“ Hann svaraði ekki. Hún lét höndina hvíla á öxl hans og starði í andlit honum, sem hann hálf- sneri undan. „Þú elskar mig ekki lengur?“ mælti hún að lokum. „Ég verð að fá frjálsræði mitt aftur." „Þú svaraðir ekki spumingn minni. Elskar þú mig? Ef svo er ekki, er ekki meira um það að tala. En ef það er einhver önnur ástæða, sama hver hún er, þá sleppi ég þér ekki.“ „Þú ert alltof góð handa mér,“ mælti hann í örvæntingu. „Farðu nú ekki í kringum málefnið, John. Svar- aðu mér. Elskar þú mig?“ „Nei.“ „Þú elskar mig ekki lengur?“ „Ekki eins og — eins og maður verður að elska þá stúlku, sem á að verða konan hans.“ Ennþá hvíldi hönd hennar á öxl honum. 1 brjósti hverrar konu, jEifnvel hinnar lítilmótlegustu, felst heill heimur af meðaumkun og hluttekningu. Og hjarta Lois þrútnaði að viðkvæmni móðurinnar, þegar hún horfði í hið sorgmædda andlit hans, enda þótt hann hefði aldrei nema eyðilagt framtíð og líf hennar sjálfrar. Hún vissi að hann leið meira en hún og það skar hana í hjartað. „Farðu nú, John,“ mælti hún blíðlega. „Við skulum ekki standa hérna og barma okkur yfir því, sem ekki getur öðruvísi verið. Ef þér hefir skjátlazt — og það hlýtur að vera — þá veit ég, að það kvelur þig eins mikið og mig. Þú mátt ekki halda, að ég beri nokkra gremju í brjósti eða sé reið. Það er mér gleði, að þú hefir verið svona hreinskilinn. Það hefði verið hræði- legt, ef ég hefði orðið að uppgötva þetía sjálf.“ „Lois, ég verðskulda ekki góðvild þína.“ Hann ætlaði að grípa hönd hennar, en hún færðist undan. „Nei, nú verður þú að fara. Þú skilur sjálf- sagt, að þetta hefir verið þungt högg fyrir mig. Ég er þreytt. Ég verð að vera dálitla stund ein -— áður en ég segi þeim það.“ „Ég skal segja það, Lois,“ mælti hann fast. Hún hrissti höfuðið. „Það er betra að ég geri það. Ég létti þá byrði þina. Ég get hlíft þér við því.“ Hann hló hátt, beiskjublandinn örvæntingar- hlátur. „Hlíft mér? Hvers vegna ættir þú að hlífa mér? Og heldur þú að ég sé hræddur við þau, eftir að hafa staðið frammi fyrir þér?“ Hún sneri sér við og gekk hægum skrefum burt frá húsinu. „Þau eru á svölunum,” mælti hún þreytulega. „Ef þú getur, þá segðu það núna.“ Rómurinn brást henni. Hún var alveg lömuð og var þakklát fyrir, að hann gerði enga tilraun til að stöðva hana eða fylgja henni eftir. Þegar hún nálgaðist gamla bungalowinn, fannst henni að hjarta sitt myndi bresta. Næstum án þess að vita hvað hún gerði, skaut hún vafningsviðnum til hliðar — siðast hafði Stafford gert það fyrir . VIKAN, nr. 23, 1946 hana! —■ og gekk inn í skuggalegt herbergið. Allt var eins og áður. Hún fleygði sér niður fyrir framan stólinn og huldi andlitiö i höndum sér. Þannig fann ofurstinn hana klukkustund síðar. Mrs. Carmichall lyfti ungu stúlkunni, sem var hálfmeðvitundarlaus, upp og tók hana í faðm sér. „Ó, Lois, litla, litla Lois,“ hvíslaði hún með móðurlegri viðkvæmni, „litla stúlkan mín; láttu þetta ekki fá svona mikið á þig.“ En þegar henni varð litið á hið föla, örvæntingarfulla andlit, braust sorg hennar og gremja út fyrir öll tak- mörk. „Elsku Lois min! Hann var þin ekki verður. Hann er þorpari. Hann vildi engar skýringar gefa, en ég vissi ástæðuna vel og sagði honum hana upp í opið geðið á honum. Það er þessi stelpa, hún Beatrice Carry. Og hann neitaði því heldur ekki. Og ég skal ekki vera þeim Þrándur í Götu. Elsku litla stúlkan min. Taktu þér þetta ekki svona nærri. Þú hefir þó okkur ennþá — við bregðumst þér ekki.“ Lois lyfti hægt upp höfðinu. „Það var rangt af mér að taka þessu svona,“ mælti hún. „Frændi, heldur þú að þér væri nokkuð móti skapi að aka mér til klúbbsins? Ennþá er hægt að ná þangað á réttum tíma og ég á að keppa við Webb kaftein. Það er engin ástæða til að eyðileggja leikinn fyrir öðrum, þó að — þó að þetta hafi komið fyrir. Fólkið á ekki að gjalda þess.“ Hún leit biðjandi í andlit honum. „Ó, þú mátt til með að hjálpa mér.“ Carmichall ofursti kinkaði kolli. Hann var hrifinn af henni. En hann tók þetta sárt, því að hann skildi nú, að þau gátu ekki hjálpað henni eða huggað. Hversu heitt sem þau elskuðu hana, gátu þau ekki bætt þetta, og það, sem hafði verið stolt hans og gleði, var nú eyðilagt. En langt frá þessum stað lét maður nokkur hest sinn lötra undir brennandi'sól. Andlit hans var náfölt og örvæntingin skein úit úr því. Hann veitti engu eftirtekt í kringum sig og virtist vera tilfinningalaus. Einnig hann leið — en engin iðnm eða eftirsjá blandaðist saman við sálarkvalir hans. Hann hafði breytt rétt og eftir sannfæringu sinni verið bæði réttsýnn og miskunnsamur. Blessað barnið! Teikning eftir George McManus. Mamman: Langar ekki Lilla til að sjá, þegar pabbi leggur teppið ? Pabbinn: Auðvitað langar Lilla til þess; láttu hann bara á gólfið, hann fylgir pabba eftir, elsku vinurinn! Pabbinn: Nú verður Lilli þægur og rólegur og horfir á pabba — en Lilli má ekki vera fyrir pabba. Lilli: Go-go! Lillf: Da-da! Pabbinn: Nú er ég alveg að verða Lilli: Va-va! Va-va! Pabbinn: Leiktu þér, Lilli minn, pabbi búinn, Lilli minn. hefir mikið að gera!

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.