Vikan


Vikan - 01.08.1946, Page 7

Vikan - 01.08.1946, Page 7
VTKAN, nr. 31, 1946 7 Andlitsduftið. Framhald af bls. 3. ur, svangur og ánægður. Irene sat og horfði á hann. Hún furðaði sig á því, að það stakk hana að sjá gleði hans. Hún átti engan þátt í henni, hún var jafnvel sprottin af einhverju því, sem hún óttaðist mest----- „Ertu þreytt?“ spurði Georg aftur, þar sem hann fékk ekkert svar. Hún hló dá- lítið - þreytt? Já hún hafði vitanlega verið á hárgreiðslustofunni og hjá saumakon- unni og haft mikið fyrir því að neita að vinna við góðgerðarskemmtun. Irene hataði skemmtanir fyrir allskonar hjálpar- starfsemi. Þessar tilgerðarlegu „hjálp- sömu“ yfirstéttarkonur fóru svo hræðilega í taugamar á henni með þessari átakan- legu hjálpsemi og helgisvip. Annað hafði hún ekki gert, svo að hún gat í rauninni ekki sagt að hún væri þreytt. Hún hafði nú annars leikið tennis við Miriam------- „Nei, ég er ekki þreytt, það liggur prýðilega á mér. Það er ekkert að.“ Augna- ráð hennar hvíldi á Georg. Það var undar- legt, hvað hún var alltaf jafnástfangin af honum og í fyrsta skiptið, sem hún sá hann, þá hafði hún tekið viðbragð, þegar hann horfði í augu hennar. Honum fóru einkarvel þessi dökku föt, þau fóru honum víst bezt-----allt í einu stimaði hún upp. Á annari öxl hans sást greinilega ljós blettur. Andlitsduft! Hann leit upp um leið. „Segðu mér, hvers vegna ertu í vondu skapi?“ spurði hann. „Hefir eitthvað kom- ið fyrr þig eða skapraunað þér?“ Hún svaraði ekki, en stóð upp og gekk að glugganum. Andlitsduft á jakkanum hans Georgs! Það var ekki hennar duft, heldur annarrar konu! Henni fannst eins og heimurinn væri að farast. Dálitlu seinna, þegar Georg hafði lokið við að borða og rauf hina óþægilegu þögn með því að fletta kvöldblaðinu, fór hún inn í svefnherbergið sitt og fór að hugsa, án þess að hún vissi hvað hún ætti að hugsa um, og hvernig hún ætti að komast að ein- hverri niðurstöðu. Nokkru seinna kom Georg inn til hennar. Hann settist á rúmið hennar um leið og hann geispaði og fór úr jakkanum. „Hum, ég held ég fari að hátta,“ muldraði hann „ég er nú þrátt fyrir allt dálítið þreyttur. Ég missti hnapp af jakk- anum mínum, geturðu ekki séð um, að hann verði lagfærður? Ég fer að hátta núna.“ Irene fann allt í einu, að hana langaði til að hann kæmi til hennar og kyssti hana, en hún þorði ekki að sýna honum, hversu hún þráði það. „Já, góða nótt, ég ætla líka að hátta snemma." Þegar hann var farinn tók hún jakkann hans. Ljósi bletturinn var alveg greinilegur. Hún fann daufa lykt af sætu ilmvatni. Það var ilmvatn, sem henni sjálfri gæti aldrei dottið í hug að nota. Hvernig skyldi sú stúlka vera, sem notaði það? Hún sá fyrir sér vin- konur sínar. En engin þeirra gat komið til greina. Þetta var ekki tælandi dýrmætt ilmvatn, heldur ódýrt og venjulegt. Við- kvæm, góð og saklaus stúlka? Ilmurinn átti ekki við öðruvísi stúlku? Allt í einu minntist hún símasamtals. Það var í eina skiptið, sem hún hafði talað við einkarit- ara Georgs. Þá hafði hún hugsað til þess brosandi, að rödd hennar líktist fremur skólastelpu en skyldurækins einkaritara. Hún hafði skemmt sér við það þá. En nú gerði það hana allt í einu dauðskelfda. Hún reyndi að hugsa sér þessa konu — nei, hún hlaut að vera ung stúlka. Hún hafði víst aðeins verið í stuttan tíma hjá Georg ------Skyldi hún vera lítil og ljóshærð, með marga lokka, barnsleg blá augu og með mikið andlitsduft? Mikið ljóst andlits- duft? Það sást á jakkanum hans Georgs. Stúlkutegund, sem er mjög hættuleg fyrir fullorðna menn, en þó hélt hún að Georg mundi ekki hrífast af slíkri stúlku. Átti hún að tala alvarlega við hann, spyrja hánn til þess að fá að vita sannleikann? Nei, ekki undir eins, Georg var þreyttur. Það var bezt að bíða. Daginn eftir horfði Irene niður eftir götunni á þeim tíma, sem hún átti von á að Georg gæti komið heim. Það var nú ef til vill nokkuð snemmt að gá að honum, en hún fann að hún varð af öllum mætti að útiloka þá hugsun að nokkuð gæti verið, sem tefði hann og tældi hann frá henni. Hann gat ekki verið ástfanginn af annarri. Mátti það ekki! — Hún gekk inn í húsið með grátstafinn í kverkunum, hún gekk inn í svefnherbergi sitt og settist á rúmið sitt. Hún varð að hætta að hugsa um þetta. Hún vildi ekki hugsa um það. En henni fannst þessi sæta ilmvatnslykt loða við allt, sem hún snerti. Hana langaði til þess að vita hver notaði það, en það var eins og eitthvað hindraði hana í því að heim- sækja Georg á skrifstofuna. Hún gat ekki hugsað sér að koma þangað og ef til vill valda óþægindum ef þetta væri satt-------- Hún þrýsti höfðinu niður í koddann. Allt í einu yfirbugaði örvæntingin hana. Þó að hún neyddist til að hafa gluggana opna dag og nótt, þá varð hún að losna við þessa andstyggilegu lykt. Hún elti hana stöðugt. Hún hafði elt hana frá því að hún hafði fundið hana af jakka Georgs. Hún vissi vel að það var engin lykt í herberg- inu, heldur hafði hún hana á tilfinningunni og það gerði hana alveg örvinglaða. Þegar hún stuttu síðar leit á úrið sitt, sá hún að hún hafði sofnað. Klukkan var yfir sex og enn þá var Georg ekki kom- inn. Allt í einu fannst henni eins og eng- inn í heiminum væri eins einmana og yfirgefin og hún. Hennar var í rauninni engin þörf hér í húsinu. Það eina sem hún lifði fyrir var Georg, og ef nú------nei. Það mátti ekki vera svona. Til hvers gat hún flúið nema hans? Allt í einu mundi hún eftir Daniel, Daniel litli! Hún sá hann í rauninni alltof sjaldan. Hvernig gat hún gleymt honum, skipt sér svona lítið af honum? Þessi sektartilfinning yfirbugaði næstum því allar hugsanir hennar um Georg, og hún hljóp undir eins að dynm- um og upp stigann sem lá upp í litla barnaherbergið. Barnfóstran var líklega að hátta hann núna. Það hlaut að vera kominn háttatími fyrir svona litla veru. Hún opnaði dyrnar og leit inn í herbergið. Daniel lá á stórum kodda á miðju borðinu og spriklaði kátur, þegar barnfóstran reyndi að greiða úr litlu lokkunum hans. Og við hlið hennar stóð Georg! Undrandi gekk hún til hans, en það leið dálítil stund áður en hann tók eftir því að hún stóð hjá honum. Hann var svo niðursokkinn í að leika sér að litlu höndunum, að hann leit ekki upp fyrr en hún kom við handlegg hans. — — Góðan daginn, vina mín, ertu komin, ég vildi ekki ónáða þig af því að þú svafst. Rödd hans var dálítið feimnisleg. — Og svo fór ég beint hingað, bætti hann við afsakandi. Irene leit fyrst á Daniel og síðan á Georg. Og allt í einu fann hún aftur þessa sætu ilmvatnslykt. Hún ieit á talkúmdós bamsins. Hún þreif hana í flýti og lyktaði. Jú, þetta var ilmurinn, þessi sæti, barns- legi og dálítið venjulegi ilmur. Hún hristi ofurlítið í höndina og lyktaði að því, bein- línis andaði ilmnum að sér. „Segðu mér, Georg,“ sagði hún „fórstu líka hingað upp í gær áður en þú komst inn í borðstofu til mín?“ Hann svaraði dálítið feimnislega: „Já, þú veizt, að þar sem ég kem venju- lega svo seint heim, sé ég aldrei þegar verið er að hátta hann. Svo að ég flýtti mér þess vegna hingað upp í gær. Og í dag vildi ég ekki trufla þig af því að þú svafst. Daniel litli fór allt í einu að sprikla ákaft af því að pabbi hans var hættur að horfa á hann, Georg brosti hamingju- samur og tók með annarri hendinni um hina litlu hönd sonar síns en hina lagði hann á öxl Irene og hvíslaði: „Finnst þér hann ekki fallegasti dreng- urinn í heiminum ?“ „Jú, það finnst mér“ svaraði hún og stráði í kæti sinni dálitlu af talkúminu á öxl Georgs. Stúlkan: Þa3 er ekki öi-uggt, þótt hann gelti, hann gœti bitið lika!

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.