Framtíðin - 11.03.1923, Side 1
I. Árgangur.
Siglufirði lí. iriars 1923.
1. tölublað.
Ritstjóri: Hinrik Thorarensen.
Avarp.
Með þessu blaði hefur nýtt blað
göngu sína hér í Siglufirði. það er
venja flestra blaða að byrja með
ávarpi til lesenda, sem oftast nær
er ekkert annað en heillöng þula
yfir það sem blaðið lofar að gera.
Loforðin eru góð en efndirnar
betri.
»Framtíðin« ætlar ekki að lofa
miklu en reyna að efna því meira.
Aðallega mun blaðið ræða um
áhugamál Siglufjarðar og hvetja þar
til framfara og framkvæmda. Einn-
ig mun það ræða þau mál er snerta
þjóðarheiidina, og ieggja það eitt
til þeirra, er það telur heillavænleg-
ast og þjóðinni fyrir bestu. Pað
skal tekið skýrt fram, að »Framtíð-
in« er ekki neitt flokksblað heldur
algjörlega sjálfstæð og óháð.
Fréttir útlendar sem innlendar
mun blaðið flytja eftir megni.
Um leið og eg hérmeð hleypi
>-Framtíðinnu af stokkunum vonast
eg til að henni verði vel tekið, og
að margir verði til þess að greiða
götu hennar og styrkja hana.
Alþingi.
Alþingi var sett eins og venja er
tii 15. febr., þó voru engir fundir
ha'dnir fyr en 19., sökum Jaess að
beðið var eftir Goðafossi, en með
honum voru þingmennirnir að
austan og norðan.
Forseti sameinaðs þings var kos-
inn Magnús Kristjánsson lands-
verslunarforstjóri, forseti efri deild-
ar var kosinn Halldór Steinsson
læknir og forseti neðri deildar var
kosinn Benedikt Sveinsson fyrv.
bankastjóri,
Stjórnin hefur lagt fram 26fium-
vörp og hafa nckkur þeirra þegar
verið tekin til 1. umræðu og af-
gieidd til annarar.
Frumvörpin uin breytingar á em-
bættaskipuninni hafa mætt mikilli
mótspyrnu í þinginu. Sérstaklega
hefur verið þrætt um biskupsem-
bættið, hvort rétt væri að afnema
það eða ekki. Forsætisráðherra sótti
það af miklu kappi að frumvarp
■ þetta næði fram að ganga, og lýsti
því yíir að biskupsembættið væri
að mestu leyti óþarft, þar sem það
væri nú búið að missa þau verald-
legu völd, sem það áður hefði liaft,
og hvað það snerti væri biskupinn
aðeins skrifstofuniaður hjá stjórnar-
ráðinu. Hinu andlega valdi og virð-
ingu embættisius vildi hann ekki
draga úr, en frumvarpið ætlast tif
að vígslubiskuparnir taki við þeim
hluta þess.
Stjórnin viil einnig láta afnema
landlæknisembættið og stofna í
þess stað heilbrigðisráð. Forsætis-
ráðherra skýrði frá að þetta væri
ekki aðeins sparnaðarráðstöfun,
heldur væri heilbrigðisstjórninni
komið í betra horf með þessu fyrir-
komulagi.
Frv. um fækkun sýslumannaem-
bætta var nýlega til 1. umræðu.
Forsætisráðherra fylgdi því úr hlaði'
og lofaði þinginu meira aí sams-
konar góðgæti ef þessú .yrði vel
tekið. í þeim sýslum, sem missa
sýslumann sinn, eiga sýslunefnd-
irnar að kjósa sér oddvita, er að
nokkru leyti á að koma í stað
sýslumanns, og á hann að hafa
300 kr. í árslaun. Frumvarpi þessu
var illa tekið, urðu margir þing-
menn tii að andmæla því. Að lokn-
um urnræðum var því þó vísað til
2. umræðu og allsherjarnefndar.
Jóúas Jönasson frá Hriflu hefur
komið fra'm með fyrirspurn til
stjórnarirmar um hverjir aiþingis-
menn og dómarar eigi hluti í ís-
landsbanka. Lítur út fyrtr að Jónas
álíli að það geti liaft áhrif á at-
kvæði þingmanna hvort þeir eigi
hlutabréf í bankaúum eða ekki.
Magnús Guðmundsson fyrv. fjár-
málaráðherra hefur komið fram með
frumvarp um breytingu á stjórnar-
skránni. Vill hann fældca ráðlferr-
unum, hafa aðeins einn ráðhetra
eiiís og áður var til 1917 að þeim
var fjölgað. Sörnuleiðis vili hann
fækka þingunum, liafa þing aðeins
annaðhvert ár, og lengja kjörtíma-
bilið um tvö ár. vbð þetta sparast
mikið fé þar sem iivert þing kost-
ar [ojóðina um 250.000 kr. IJó
þessi stjórnarskrábréyting verði
samjDykt á þinginu, þarf eickeit
þingrof frarn að fara, þar sem þetta
þing er síðasta þingið á yfirstand-
andi kjörtímabili.
Eitt af aðal áhugamálum Sigl-
firðinga er að koma hér upp ís-
húsi er geti tekið íil starfa nú í